Heima er bezt - 01.04.1961, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.04.1961, Blaðsíða 4
STEINDOR STEINDORSSON FRA HLOÐUM: Hermann Stefánsson íbróttakennari P ab mun tæplega ofsagt, að nú um 30 ára skeið hefur enginn einn maður unnið jafnmikið að eflingu íþróttalífs og söngmenntar í Akureyr- arbæ og Hermann Stefánsson. Og hvar sem vér hittum hann er hann alltaf sístarfandi, einn daginn á skíðamóti uppi í fjalli, um kvöldið að syngja í Geysi, kominn að kennslu snemma næsta morgun, starfandi í sundlauginni þegar líður á daginn, á fundi eða hamingj- an veit hvað. En hvar sem vér hittum hann er hann alltaf hinn sami, glaður og reifur, hlaðinn orku og síungur. Hermann Stefánsson er fæddur í Miðpörðum í Greni- O vík 17. januar 1904. Foreldrar hans voru Friðrika Krist- jánsdóttir og Stefán Stefánsson útvegsbóndi. \Toru þau hjón bæði þingeyskrar ættar. Ólst hann úpp við sjómennsku og landstörf jöfnum höndum, því að fast var sóttur sjórinn frá Grenivík og margs þurfti með að gera að afla og hirða um hann er í land kom. A uppvaxtarárum Hermanns í Grenivík var þar í Höfðahverfinu mikið félagslíf. Knattspyrnufélagið Magni var þá í blóma og var um skeið eitt' fremsta knattspvrnufélagið hér norðanlands. Tók Hermann þátt í því af lífi og sál. Þórhildur og Hermann og synir þeirra, Stefán verkfrceðingur og Birgir laknanemi. Sörigstjóri og formaður Karlakórins Geysis: Ingimundur Arnason og Hermann Stefánsson. Á árinum 1919—22 stundaði Hermann nám í Gagn- fræðaskólanum á Akureyri. Ekki varð um það deilt á þeim árum, að hann væri fremsti íþróttamaðurinn og einn bezti söngmaðurinn í skóla. Þá þegar kom í ljós, að honum létu vel hvers konar umsvif, var hann um- sjónarmaður skóla og mjög starfandi í félagsskap öllum. Að loknu gagnfræðaprófi var hann tvíráðinn í, hvað gera skyldi. Einhvern tíma á skólaárunum hafði Lárus Rist haft á orði við Hermann, hvort hann vildi ekki gerast eftirmaður sinn við skólann. Sigurður skóla- meistari mun og hafa verið þess hvetjandi, því að hon- um var þá kappsmál að ráða unga menn að skólanum, ekki sízt nemendur hans, sem honum voru að góðu kunnir. Haustið 1927 réðst Hermann til utanfarar til íþrótta- náms við Gvmnastik Höjskole Niels Buchs í Ollerup. Var skóli sá þá í hvað mestum uppgangi og íslending- um að góðu kunnur. Kennsla þar var ágæt og eigi síð- 112 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.