Heima er bezt - 01.04.1961, Page 7

Heima er bezt - 01.04.1961, Page 7
MAGNÚS GUNNLAUGSSON: Næturvist á Pumlungsbrekku 1918 að mun hafa verið uni mánaðamótin febrúar- marz 1918, að ég lagði af stað frá Krosshóli í Skíðadal vestur í Fljót. Aðalerindið var að sækja þangað nokkuð af fatnaði og öðru dóti, sem ég átti þar, en þar hafði ég verið í vist nokkur undanfarin ár. Veður og færi var gott, þegar ég lagði af stað. í mér var nokkur tilhlökkun, einkum vegna þess, að foreldrar mínir og nokkur systkini voru búsett í Fljótum, og átti þetta því að verða um leið nokkurs konar skemmtiferð. Ferðin gekk vel vestur, ég lauk erindi mínu í Vestur- Fljótum með eðlilegum töfum, og hélt síðan yfir í Austur-Fljót, en þar hafði ég nokkra viðdvöl hjá skyld- fólki mínu. Það mun hafa verið um miðja viku, er ég kom þangað í bakaleiðinni. Þá höfðu nokkrir ungir menn í sveitinni ákveðið að halda dansleik í Storaholti á laugardagskvöldið. Mig langaði til að vera á skemmt- uninni, enda varð það úr, að ég beið helgarinnar. Á dansleik þessum heyrði ég spilað lag, er mér þótti þá mjög faliegt, enda þótt mér þætti lítið til þess koma síðar, er ég kynntist fleiri lögum. En það var ekki lag- ið eitt, sem vakti athygli rnína, heldur einnig, hvernig dansað var eftir því. Þann dans hef ég aldrei séð fyrr né síðar. — En nóg um það. Á sunnudaginn lagði ég af stað fram að Flring í Stíflu, en þar hafði ég hugsað mér að gista síðustu nóttina áður en ég legði á fjallið. Ég nam staðar á Stífluhólum, en þaðan blasa við i norðri öll Austur-Fljót í sjó niður, en í suðri Stíflan. Mér komu ósjálfrátt í hug nokkrar hendingar úr hinu undurfagra Ijóði Jóns Magnússonar frá Minna-Holti, er hann orti um sveitina sína: Fögur eru Fljótin mín, einkurn þegar vorið væna vefur þau í skrautið græna. Signuð á þau sólin skín. Fjöllin með sitt fannalín yfir tún og engi mæna. Nyrzt og austast eru Fljót, en í suður Stíflan liggur, ef þú vel að henni hyggur, segðu mér hvar sé hún Ijót o. s. frv. Já, víst er um það, Fljótin eru sumarfögur sveit, þó var Stíflan einkurn sumarfögur á meðan hún var óskemmd af vélamenningu nútímans. En þetta var nú útúrdúr. Á mánudagsnóttina gerði asahláku, og var allhvasst um morguninn, þegar ég kom á fætur. Sarnt lagði ég af stað fram að Þrasastöðum. Þar átti þá heima Guð- mundur Sigurðsson, móðurbróðir minn. Bað ég hann um fvlgd upp á fjallið, eða svo langt, sem þurfa þætti. Tók hann bón minni vel, en kvað ófært mundi yfir fjallið eins og stæði sakir veðurofsa. Ég skyldi því bíða rólegur til morguns í von um batnandi veður. Um klukkan hálfþrjú síðdegis var orðið nærri heið- skirt veður, hægur vindur í byggð, en skóf mikið á fjöllum. Vildi ég þá ólmur leggja af stað, en piltar voru í svo miklu annríki, að enginn komst til að fylgja mér. Lagði Guðmundur frændi minn enn að mér að bíða morguns. Sagðist hann geta farið með mér snemma næsta morgun, og mundi ég þá geta unnið það upp, sem ég þættist tapa í dag. En ég var þrár og vildi eng- um ráðum hlíta, enda virtist engin hætta á ferðum, þótt degi væri tekið að halla. \'eður var orðið bjart, og mik- ið farið að lægja, sem fyrr segir. Lagði ég svo af stað, og fylgdi mér unglingspiltur, átti hann að fylgja mér upp á svonefndan Olnboga, sem er nokkuð fyrir neðan aðalfjallbrekkurnar. \ ar svo til ætlazt, að hann bæri farangur minn, svo að ég kæmi ólúinn undir fjallið. Frarn og upp af fvrrnefndum Olnboga liggur all- mikill hólaklasi, Drykkjarhólar, en samnefnd á rennur út með hólunum fyrir Olnbogahornið, og beygir þá í vesturátt áleiðis niður í byggð. Nokkru frarnar taka svo við brekkur, allbrattar, upp í skarðið. Ein af brekk- um þessum heitir Þumlungsbrekka. Virðist nafnið helzt benda til þess, að menn hafi oft orðið að þumlunga sig upp eftir henni í þungu færi. Og víst er um það, að mörgum mun hafa volgnað á fjallvegi þessum, meðan hann var aðalleiðin milTi Svarfaðardals og Fljóta. Sunnan við Þumlungsbrekku er hálfflatur melhóll. Á honum stóð grjótvarða. Minnir mig, að tvær aðrar vörður væru á þessari leið með alllöngu millibili. Hafa þær sennilega átt að vera til leiðbeiningar meðan leið þessi var fjölfarin. Þegar pilturinn skildi við mig, var 'veður enn bjart og gott, en nokkuð tekið að þykkna í lofti. Ég helt sem leið lá frarn undir aðalbrekkurnar og hvíldi mig þar örlítið. Þegar hér var komið, var orðið alskýjað, og sýnilegt að hríð yar í aðsigi. Ég hélt þó ótrauður áfram upp brekkurnar en sóttist seint, því að allmikil skel var komin á snjóinn, svo að skíðin leituðu meira aftur en fram. Varð ég því að kafa upp alla Þumlungsbrekku og draga skíðin. Reyndist það erfitt, því að snjór var í miðjan legg eða meira. Framhald á bls. 128. Heirna er bezt 115

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.