Heima er bezt - 01.05.1963, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.05.1963, Blaðsíða 11
Sagt er að Davíð hafi hljóðnað við þetta, en Ólafur getað notið gleðinnar það sem eftir var veizlunnar. Um það mál, er Davíð fékk kenningamafn sitt af hafa myndazt ýmsar sagnir og eru sumar þeirra prentaðar, en flestar þeirra eru meira og minna úr lagi færðar, og öllum sem ritaðar hafa verið er það sameiginlegt að í þær vantar orðaskiptin, er voru orsök þeirra atburða, sem málið reis út af. En fram á síðustu ár hefir þó lifað á vörum einstöku manna saga um upphaf þessara mála, og er auðvelt að rökstyðja hana með öruggum heimildum, sem sögumenn þekktu ekki, en óyggjandi sannanir fyrir henni munu nú glataðar. Öruggustu heimildir um þetta mál, eru forsendur landsyfirréttardóms, sem um það var kveðinn upp, og skal nú saga þess rakin eftir þeim, en þó fyllt upp eftir öðrum heimildum. Öræfingar sóttu til verzlunar á Djúpavog, og var Davíð staddur þat ásamt sveitungum sínum og fleiri sýslungum 11. júlí árið 1804, í kaupstaðarferð. Þann dag þingaði sýslumaðurinn, Þórður Thorlacius, í Háls- þinghá (á Djúpavogi) og var af þeim sökum lokuð búð hjá kaupmanninum. Davíð og nokkrir af félögum hans fóru því á þingið til að heyra hvað þar færi fram. Á þinginu var gömul kona, og ber sögnum ekki saman um, hvort sýslumaður hafi í ógáti krafið hana tvisvar um skatt, eða að kaupmaður hafi krafizt þess að hún léti ábreiðu af rúminu sínu upp í skuld og sýslumaður samþykkt kröfuna. — Davíð gat þá ekki orða bundizt og kastaði fram þessari vísu: Það er dauði og djöfuls nauð að dyggða snauðir fantar safna auð með augun rauð, en aðra brauðið vantar. Spunnust af þessu nokkur orðaskipti milh sýslumanns og Davíðs, og varð alvarleg truflun á þinginu, því Davíð svaraði sýslumanni fullum hálsi og gaf í engu eftir. Úti á höfninni lá norskt skip og voru tíu af skips- höfninni staddir á þinginu. Þórður tók það ráð að biðja þessa menn — en sumir þeirra voru vopnaðir — að taka Davíð og flytja hann út í skip, en dæmdi hann um leið í rúmlega 22 dala sekt fyrir að valda truflun á þinginu. Skipverjar bundu Davíð og hröðuðu sér með hann út í skipið, enda telja sagnir að dregið hefði til alvar- legri atburða, ef þeir hefðu ekki framkvæmt þetta með svo skjótum hætti. Ein sögn hermir, að þegar menn sáu að þeir fengu ekki að gjört, hafi reiðin beinst að kaupmanninum, og einn bændanna, Halldór hreppstjóri í Þórisdal, rekið hann niður á höfuðið, svo að hann hafi legið í óviti á eftir. Daginn eftir borgaði Jón bóndi Árnason í Papey sektina fyrir Davíð, og var hann þá fluttur í land og látinn laus. Þegar hann var spurður um þetta síðar, svaraði hann: Hugur hvorki hló né grét — hóf er bezt og mátinn. — Djúpavogs- þá -Loftur lét leiða mig í bátinn. Meðan Davíð var úti í skipinu vildi það til að mat- sveinninn datt fyrir borð, en var þó bjargað. Þá orti Davíð: Yrkja verð ég enn á ný ofinn kvala smokknum. Skrattanum þótti skömm að því að skila ekki aftur kokknum. Sem vonlegt var undi Davíð þessari meðferð illa. Ár- ið 1806 kærði hann Þórð sýslumann, en sú kæra bar engan árangur; mun hafa verið vísað frá vegna form- galla, því í landsyfirréttardóminum er sagt, að dómi Þórðar er hann dæmdi Davíð á Djúpavogi, hafi aldrei verið löglega áfrýjað. Davíð gat því ekkert aðhafzt til að ná sér niðri á sýslumanni, fyrr en tækifærið barst honum í hendur árið 1814, er Þórður sýslumaður fór vestur í Ámes- sýslu, sem honum hafði þá verið veitt. Gyða, kona Þórðar segir í æviminningum sínum, að Halldór (nafnið ekki rétt hjá Gyðu) sonur Davíðs, hafi beðið Jón Stefánsson kaupmann á Djúpavogi að segja sýslumanni að faðir sinn hefði á honum þungan hug og mundi reyna að klekkja á honum, ef hann fengi færi á, og væri því réttara fyrir Þórð að fara norðan- lands, eða að hafa með sér svo marga menn að hann þyrfti ekki að óttast Davíð, en Þórður hefði svarað að hann væri hvergi hræddur. Saga frúarinnar verður ekki rengd, hvað þetta snert- ir, og vel getur það hafa verið með vitund og vilja Davíðs að þessum skilaboðum var komið. Hann hefur verið orðinn vonlaus um að fá nokkra rétting mála sinna og verið það nokkur huggun, ef hann gæti hrætt Þórð til að gjöra sér ferðina kostnaðarsamari en þörf var á, annað hvort með því að fara lengri leið, eða að hafa fleiri fylgdarmenn en ástæða var til. Sýslumaður lagði af stað frá Eskifirði 16. marz og hafði einn mann til fylgdar. Segir nú ekki af ferðum hans fyrr en 2. apríl, er hann hélt frá Fagurhólsmýri, eftir að hafa gist þar hjá Jóni hreppstjóra Árnasyni og var kominn spölkorn fram hjá Hofi. Kemur þá Davíð ríðandi, að því er virðist úr fjárleit, með svipu og broddstöng, stekkur af baki fyrir framan hest sýslu- manns, svo að hann snöggstanzaði, og ávarpar Þórð þannig: „Sælir nú Theodórus,“ (en Þórður hafði verið skírður því nafni, sem var latnesk afbökun af Þórður, nafni afa hans). „Hvar eru nú þeir dönsku og norsku þrælar með byssur og korða, sem þú lézt arresta mig?“ Þar eftir hefur hann upp kröfu um að sýslumaður greiði sér þá 22!4 ríkisdal, sem Jón í Papey hafði borg- að fyrir hann, og var Davíð illilegur og hávær. Heima er bezt 163

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.