Heima er bezt - 01.05.1963, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.05.1963, Blaðsíða 27
margt, sem ég þyrfti að segja Birni, þegar hann kæmi heim, bara að mér væri þá ekki runnin reiðin. Það var margt til í því, sem Hans hafði sagt. Björn myndi aldrei taka tillit til mín, þegar skyldustörfin kölluðu. „Skyldu- störfin“ hafði Hans sagt með háðstón. „Það er svo margt hægt að flokka undir þau, jafnvel spilamennsku og kvennafar.“ iVIér datt nú samt ekki í hug, að Björn hefði aðrar konur, og þó, hvað vissi ég um það. Þær voru margar snotrar, sem unnið höfðu hjá honum, og gat ekki verið, að fleirum en mér hefði litizt vel á hann? Loks ákvað ég að sofna í mínu herbergi, fékk mér eina róandi töblu, sem Hans hafði gefið mér. Þær komu mér alltaf í sérstaka stemningu. Björn mátti fara sína leið, nú leið mér vel. Það var skrítinn svipur á Birni morguninn eftir, þeg- ar hann kom inn til mín, en ekki sagði hann neitt. Eg dauðskammaðist mín fyrir að hafa læst hann úti, og allt það sem ég hafði ætlað að lesa yfir honum var gleymt. Haustið leið, og veturinn kom. Ég var alltaf að upp- götva nýtt og nýtt í fari Björns, sem sýndi hve góðan rnann ég hafði fengið. Stundum fórum við út saman, en það var sjaldan. Ég hafði komizt að raun um, að Björn var sæmilegur dansherra, þó ekki jafnaðist hann á við Hans. Það var sjaldan sem Björn átti frí, en þeirra stunda nutum við bezt með því að vera tvö saman, eða að minnsta kosti fannst mér það. Ég held líka að Björn hafi verið hamingjusamur. Ég spurði Önnu einu sinni um Dóru. Hún andvarp- aði bara þunglega og sagði: „Bíddu bara, þangað til Björn léttir á hjarta sínu og segir þér sögu hennar.“ Nokkru fyrir jól fékk ég nafnlaust bréf. Það var hroðalegt bréf, fullt af dylgjum og alls kyns óhróðri um Björn. Nafn Dóru var nefnt og fleiri stúlkna. Vissi ég, hvernig hann hefði leikið Dóru? og hvers vegna hann gat eltki gift sig, fyrr en hún var dáin? Mér varð óglatt eftir þennan lestur. Ætti ég að sýna Birni bréfið? Örðin brunnu á vörum mínum, en ég hik- aði og hugsaði, að það væri skammarlegt af mér að leggja minnsta trúnað á þáð, sem í því stóð, en þó lædd- ist einhver efi inn í hug minn. Hvers vegna sagði Björn mér aldrei neitt um Dóru, og hví hafði hann sagt, að sér væri skyldast að sjá um hana? — Hvers vegna, hvers vegna? — Ég spurði sjálfa mig aftur og aftur, en fann enga lausn. Það fór svo, að Björn sá, að eitthvað amaði að mér. Hann horfði lengi íhugull á mig eitt kvöldið og spurði svo, hvað nú amaði að? Ég lézt verða undrandi á spurningunni, ég vissi ekki annað en ég væri, eins og ég ætti að mér. „Ónei, elskan mín, þú blekkir mig ekki,“ sagði hann og kyssti mig. „Viltu ekki trúa mér fyrir því, sem angr- ar þig?“ „Ætli þú þurfir ekki heldur að segja mér eitthvað?“ sagði ég og sneri mér frá honum. „Hvað nú?“ Hann varð svo undrandi, að ég skamm- aðist mín fyrir tortryggnina og sagðist bara hafa verið að spauga. Hann andmælti mér og sagðist hafa tekið eftir, að ég væri öðruvísi en venjulega núna seinustu dagana. „Segðu mér það, það er ekki ómögulegt, að við get- um hjálpast að við vandamálið,“ sagði hann biðjandi, en ég þagði. Samband okkar var ekki eins innilegt eftir þetta. Ég reyndi að finna eitthvað tortryggilegt í hverju orði, sem hann sagði. Það kom fyrir, að við töluðum ekki saman nema tvö þrjú orð allt kveldið, en þegar við vor- um háttuð, stóðst ég ekki freistinguna, en leitaði í faðm hans eftir skjóli og öryggi. Oftar en einu sinni hafði ég orðið þess vör, að rótað hafði verið í skrifborðinu mínu. Ég kunni því illa og ákvað að komast eftir, hver það væri. Það var ekki um marga að ræða, en ef það var Bjöm, því bað hann mig þá ekki um leyfi, og hvað gat hann haft gaman af að grúska í mínum plöggum? Eitt kvöldið stóð ég hann svo að verki. Ég sagðist ætla í heimsókn til Hönnu, en fór hvergi, heldur faldi mig inni í gestaherberginu. Það var allt hljótt í húsinu. Anna var ekki heima, og Páll ekki heldur. Mér fór að leiðast biðin og fór inn í herbergi mitt. Það var maður þar fyrir, en það var ekki Björn, heldur Hans! Eitt augnablik stóð hann kyrr, svo snerist hann á hæl og fór út um svaladyrnar, yfir grindurnar og lét sig detta nið- ur í garðinn. Ég lokaði dyrunum, læsti og dró tjöldin fyrir. Svo þetta var þá Hans, og ég sem hélt að hann væri í margra sýslna fjarlægð! Hvað vantaði hann í skrif- borðinu mínu? Ég settist í stólinn og lagðist fram á borðið. En ekki hafði Hans getað verið að verki hin kveldin, því svalahurðin var alltaf læst. Ég' hafði bara verið að viðra úti á svölunum þennan dag og gleymt að læsa. En hann hafði sennilega útidyralykil! Allt í einu opnuðust dyrnar, og Björn stóð þar. Hon- um brá auðsjáanlega, er hann sá mig. „Hvað, ert þú ekki hjá Hönnu?“ spurði hann. Ég benti á skrifborðið og sagði: „Björn, hefur þú verið að leita í skrifborðinu mínu?“ Ég beið í ofvæni eftir svari. Hann gekk til mín, settist á stólbríkina hjá mér og sagði: Hann gekk til mín, settist á stólbríkina hjá mér og sagði: „Já, vina mín, ég verð að játa, að ég hefi gert það.“ „Hvernig gaztu gert þetta, Björn,“ sagði ég æst. „Því baðstu mig ekki um leyfi, ég hefði ekki trúað því, að þú færir svona á bak við mig, en líklega er þetta ekki í fyrsta skiptið, sem þú gerir það.“ Hann tók um hönd mína. (Framhald.) Heima er bezt 179

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.