Heima er bezt - 01.05.1963, Side 34
Síáasti páttur í verðlaunagetrauninni uni
GASCOIGNE mjaltavélarnar
Þá er komið að 5. og síðasta þætti í verðlaunaget-
rauninni um einnar fötu GASCOIGNE mjaltavél-
arnar með öllu tilheyrandi (að undansikldum loft-
rörum) ásamt auka fötu, að samanlögðu verðmæti
kr. 11.500.00. Ef sá, sem verður svo heppinn að
hljóta þessi glæsilegu verðlaun, þyrfti á enn þá
stærra kerfi að halda, þá getur hann að sjálfsögðu
fengið það með því að greiða sjálfur verðmismun-
inn.
Eins og getið var um í febrúarblaðinu, þá hafði
Árni Jónsson, tilraunastjóri, lofað að segja lesend-
um „Heima er bezt“ eitthvað um þá reynslu sem
fengizt hefði af GASCOIGNE mjaltakerfinu í til-
raunabúinu að Galtalæk við Akureyri, en þar hef-
ur slíkt rörmjaltakerfi nú verið í notkun um 5 mán-
aða skeið. Eftirfarandi ummæli hefur Árni Jónsson
nú látið „Heima er bezt“ í té:
Reynsla okkar á Gascoigne rörmjaltakerfi
er mjög góð. Kerfi þetta hefur verið í notk-
un á Galtalæk í um 5 mánuði. Fjósið er
fyrir 40 kýr. Það er reynsla okkar að einn
maður á léttara með að mjólka með þrem
settum af mjaltatækjum, en að mjólka með
tveim vélfötum á venjulegan hátt. Það er
því staðreynd að þetta kerfi sparar a. m. k.
30% vinnu við sjálfar mjaltirnar.
Að mínu áliti hefur enginn mjólkurfram-
leiðandi, hvar sem er á landinu, efni á því
að handmjólka kýr. Mjaltavélar eru jafn
nauðsynlegar við mjólkurframleiðslu og
vélknúin sláttuvél.
Reynzt hefur auðvelt að hirða og halda
hreinu rörmjaltakerfinu, með þeim hætti,
sem framleiðendur gera ráð fyrir.
Við höfum fengið með þessum tækjum
mjög hentuga mjaltafötu, sem nota þarf,
þegar mælt er úr hverri einstakri kú og
teknar fituprufur. Það er á mjög einfald-
an hátt hægt að tæma þessar mjaltafötur
inn í rörkerfið. Þessar fötur eru einnig
mjög hentugar til þess að mæla nákvæm-
lega hversu langan tíma tekur að mjólka
hverja kú og fylgjast með því hversu marga
lítra hver kýr selur á hverri mínútu. Er
þetta gert með því að fylgjast með mjólk-
urhæðinni í sérstöku gegnsæju röri utan á
mjólkurfötunni, en á sjálfri fötunni er
skali, þar sem hægt er að lesa af mjólkur-
magnið líkt og lesið er af hitamæli.
Tilraunastöðin, Akureyri, 24. apríl 1963.
ÁRNI JÓNSSON
tilraunastjóri.
Þrautin sem þú átt að £ást við að þessu sinni er
alveg á sama hátt og þær fjórar, sem á undan eru
gengnar. Sendið allar 5 ráðningarnar saman til
„Heima er bezt“, pósthólf 45, Akureyri. Ráðningar
þurfa að hafa borizt fyrir 20. júní n. k. Berist fleiri
en ein rétt ráðning, verður dregið um verðlaunin.
5. ÞRAUT
Hér sjáið þið óvenjulega mynd
af einum vinsælasta núlifandi ís-
lenzkum rithöfundi, sem skrifar
bækur sínar fyrst og fremst fyrir
böm og unglinga. Fyrsta bókin í
mjög vinsælum bókaflokki, sem
þessi ágæti rithöfundur hefur
skrifað, heitir „Falinn fjársjóð-
ur“.
Hver er maðurinn?
5...........................
186 Heima er bezt