Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 2
Sumarleyn útivist Ein hinna mörgu nýjunga í þjóðlífi voru eru sumar- leyfin og sumarferðalögin. Ekki þurfum vér að hverfa marga áratugi aftur í tímann, til þess að finna að þetta voru þá óþekkt fyrirbæri meðal þjóðarinnar, nema ef til vill hjá einstöku efnamönnum. Allir, sem vettlingi gátu valdið, hlutu að vinna slitalaust allt sumarið, sem var og er hábjargræðistími þjóðarinnar. Og ekki mun örgrannt um, að sumir þeir, er muna gamla tímann, líti þessi nútímaviðbrögð hálfgerðu hornauga. En ekki tjáir að sakast um þetta. Breyttir þjóðfélagshættir og aukin velmegun hefur gert sumarleyfin og ferðalögin að staðreynd, og mér liggur við að segja þjóðfélagslega nauðsyn. Það er bein afleiðing þess, að vér höfum breyzt úr sveitaþjóðfélagi í borgaþjóð. Og borgarbú- anum, sem dvelst við innistörf allt árið, er nauðsyn að njóta útivistar og náttúru landsins nokkra sumardaga. En vér sjáum, að sumarferðalögin hafa tekið tvær ólík- ar stefnur, inn á við og úti á við, ef svo mætti kalla það. Stöðugt fjölgar þeim, sem fara erlendis í sumarleyf- um sínum. Það þykir nú naumast meira að fara til Spánar eða Ítalíu, eða jafnvel til Austurlanda en að bregða sér bæjarleið í gamla daga. Daglega flytja út- varp og blöð fjölda auglýsinga um ferðir til útlanda, og þar býður auðvitað hver sem betur getur, ódýrustu og skemmtilegustu ferðirnar, og heil skemmtiferðaskip eru tekin á leigu auk hinna föstu ferða flugvéla og far- skipa. Ekki er ég svo fróður að vita hve mörgum tugmilljón- um þjóðin eyðir í þessi ferðalög, eða eru það ef til vill hundruð milljóna? Eitt er víst, að hér er um mikla gjaldeyriseyðslu að ræða, sem vér verðum að afla oss með sölu á framleiðslu vorri. Og þótt engum sé láandi að hann kýs heldur að eyða sumarleyfi sínu í sólskini suður við Miðjarðarhaf, en í súld og regni norður við íshaf, er þetta samt alvörumál, og athugunarvert, hvort ekki sé unnt að draga eitthvað úr slíkum ferðalögum, og beina sumarferðunum meira inn á við um vort eigið land. Slíkt verður að vísu ekki gert með bönnum og boðurn, heldur nteð því einu að laða ferðafólkið út urn landið og skapa því þar einhver þægindi og fyrirgreiðslu meiri en verið hefur. Enginn neitar því, að ntargar eru furður lands vors, og náttúra þess gædd meiri töfrum en flestra landa annarra. Og svo vel vill til, að sömu staðirnir geta sí- felldlega sýnt oss eitthvað nýtt, hversu oft sem vér heimsækjum þá, ef vér aðeins höfum augu og eyru opin og gefum oss tóm til að líta í kringum oss. En erum ekki haldin því eirðarleysi, sem knýr manninn til að þjóta frá hverjum staðnum til annars með síaukn- um hraða, eins og margt virðist allt of oft bera vitni urn. Og er það ekki einmitt þessi hraði, sem lokkar menn mest í Iangferðirnar úti í lönd. En margt er oss erfitt hér heima fyrir. Ekki ráðum vér við duttlunga veðurfarsins, en því miður spilla þeir alltof oft sumarferðum manna hér innanlands. En hvað er unnt að gera til að skapa meiri fjölbreytni og létta undir með sumarferðalögin. Kunnugt er að margir leita öræfanna, og mundu enn fleiri gera það, ef þar væri létt undir. Ferðafélag íslands og Akureyrar hafa byggt nokkur sæluhús við fjölfarnar leiðir en þau eru enn of fá. Ymis sveitarfélög hafa á síðustu árum reist ágæta leitarmannaskála, sem komið gætu að góðu haldi. Öllum slíkum skálum þyrfti að fjölga, einkum við gönguleiðir, svo að gangandi rnenn gætu lagt leiðir sínar um öræfin án þess að bera með sér annað en nauð- synlegt nesti, ef treysta mætti á búnað skálanna. Einnig þyrfti í byggðum að gera gangandi mönnum og akandi léttara fyrir með að fá ódýra gististaði með svefnpoka- plássum og nauðsynlegasta útbúnaði til matseldar. Þetta mundi örva ferðamannastrauminn nokkuð. Eitt vinsælasta sumarsport margra manna er lax- og silungsveiði, en þar eru margir þröskuldar á vegi. Leiga eftir laxveiðiárnar er svo há, að einungis fáir geta leyft sér að fá þar veiðidaga, og þá einungis fáa á hverju sumri. Og aðstæðurnar til slíkra hluta versna raunveru- lega með hverju árinu sem líður. Ekki er nema ein leið til að bæta úr þessu. Fjöldi vatna er bæði í byggðum og óbyggðum tií lítilla nytja, þótt nokkur veiði sé í þeim. Hið opinbera, ríki og bæjar- og sveitarfélög eiga að taka öll slík vötn og raunar enn fleiri í sína umsjá. Síðan á að rækta þau, svo að flest þeirra verði nýtileg veiðivötn, verði þau þá gerð eins konar almenningar, þar sem hver og einn 258 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.