Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 16
Séð yfir Ásbyrgi. (Ljósm. Eðvarð Sigurgeirsson.) við náttúru landsins. Lögmál náttúrunnar eru óhaggan- D DD leg. Hver sem brýtur þau, hvort heldur einstaklingur eða heil þjóð, hlýtur að gjalda þá skuld fyrr eða síðar. Ekki vitum vér gjörla hversu viðhorf forfeðra vorra hefur verið til náttúrunnar eða landsins, en nokkurri furðu gegnir, hversu lítið áhrifa náttúrunnar gætir í hinum fjöiþættu og margslungnu fornbókmenntum vorum. Höfundar þeirra, sein voru furðu glöggskyggn- ir á mannlega sál og örlög, sýnast hafa gefið því lítinn gaum, hvernig náttúran og umhverfið orkaði á mann- lífið. Hamfarir náttúrunnar tóku þeir sem hvert annað böl, er guðirnir legðu á þá. Samt megum vér ekki glevma því, að forn örnefni sýna undramikinn skilning á sérkennum landsins. Eins og vænta mátti í harðbýlu landi, þar sem ill ör- iög kreistu smám saman máttinn úr þjóðinni, gáfu menn iegurð náttúrunnar og undrum lítinn gaum, er fram iiðu stundir. Öll orka og elja beindist að því einu að draga fram lífið, og til jress varð að neyta allra þeirra gjafa og gæða sem landið hafði að bjóða, hvort sem það var í samræmi við lög náttúrunnar eða ekki. Tækjalaus og fátæk þjóð hlaut að stunda rányrkju. Hrjóstur lands- ins, sem ekkert gáfu af sér, en torvelduðu iífsbaráttuna, 272 Heima er bezt urðu ijót í augum þeirra, sem sífellt áttu í höggi við hungurvofuna, sem beið þeirra á næsta leiti. Og oft var nærri því höggvið, að náttúra landsins yrði þjóðinni of- jarl. Þegar svo er háttað verður þess ekki vænzt, að menn sjái fegurð í brunahraunum eða hamravirkjum. Stórfengleiki eldgosanna varð tákn eyðileggingarinnar, jökulhvel og ísalög ógnun við tilveru þjóðarinnar. Haf- ísarnir voru „hundrað þúsund kumla kirkjugarður“ og annað ekki. Ljóst kemur þetta viðhorf fram hjá Eggert Óiafssyni, sem var manna lærðastur og náttúrufróðastur sinnar samtíðar. Honum þykir ekki annað landslag fag- urt, en „þar sem smjör drýpur af hverju strái“. Athyglisvert er hinsvegar, að jafnskjótt og þjóðin tekur að réttast úr kútnum, breytast viðhorf hennar til náttúru landsins. Öræfin verða ekki lengur ógnvaldur, þar sem þjóðtrúin lét tröll og hverskyns illar vættir eiga bólstaði. Heldur taka menn að skynja tign þeirra og fegurð, jafnótt og svift er af þeim dularhjúpi vanþekk- ingarinnar. Og nú er svo komið, að skynja má, að sam- band fólksins við náttúru landsins og furður þess verð- ur innilegra, eftir því sem vér þekkjum það betur og kunnum betri tök á samskiptunum við það. „En betur má ef duga skal“ liggur mér við að segja.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.