Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 6
Friðrik Jónsson. Jón, faðir Friðriks, var son ívars hreppstjóra á Vaði í Skriðdal Jónssonar og konu hans Onnu Guðmunds- dóttur, voru þau kunn merkishjón, en Ivar mikið karl- menni. Hélt sínum hlut við hvern, sem átti, þótti ötull í málum sveitar sinnar. Herborg, rnóðir Friðriks, var dóttir Eyjólfs í Litla- Sandfelli Benediktssonar og konu hans Þuríðar Jóns- dóttur. Var Herborg bæði vel greind og menntuð kona, dul, raungóð. A Víkingsstaða-heimilinu voru oft langdvölum óskyldir þurfalningar, börn og gamalmenni, sem nutu alls hins bezta, sem hinir góðu húsbændur áttu að veita. Alannaferð rnikil um Víkingsstaði og gestanauð. Svo O O O bar það til einn vetrardag á fermingarári Friðriks, er jörð var freðin, að faðir hans féll af baki og var þeg- ar örendur. Hafði verið að járna ungan fola og ætlað að taka skeifnasprettinn, en taumurinn slitnaði. Herborg hélt áfram búskap, en Friðrik fór á skóla eigi að síður. Vinur og nágranni þeirra, síra Magnús Blöndal í Valla- nesi, var þess mjög hvetjandi, enda mun honum hafa þótt Friðrik gáfaður og bókvís, er hann kenndi hon- um undir fermingu. F'riðrik fór út á Borgarfjörð og var þar tvo vetur í unglingaskóla Þorsteins M. Jóns- sonar. Haustið 1915 hélt hann til Reykjavíkur og las þann vetur undir gagnfræðapróf, en um sumarmál varð hann altekinn af augnveiki og hlaut að snúa heim við svo búið. Og bar nú tvennt til í einu. Bærinn á Vík- ingsstöðum brann og misstu þau þar mæðginin allt sitt innbú, að sjálfsögðu óvátryggt á þeim tíma. Var nú útséð um frekari skólagöngu. En þessum áföllum tók hinn ungi námsmaður með því áræði að byggja upp á leigujörð móður sinnar og nema síðan með löngum starfsdegi bóndans bókvit og mannvit. Seint á haust- inu 1917 tók ung og glæsileg stúlka við húsmóður- sætinu á Víkingsstöðum. Þau höfðu kynnzt syðra Frið- rik og Björg J. Hansen frá Sauðárkróki. Hún var ljóð- ræn og falleg eins og hennar fólk í Skagafirði. En elsk- an er hvikul eins og morgunský. Llnga konan á Vík- ingsstöðum var öll, þegar aprílsnjóinn tók upp 1924. En Friðrik bjó áfram í umhverfi sorgarinnar með sinni góðu móður — og átti ungan son, að sönnu niikið mannsefni. Tveimur árum síðar tók hann örlögríka ákvörðun. O Og kveðjum við þar með honum Víkingsstaði og Velli. Við höldum upp túnið á Þorvaldsstöðum. Þar hafa þau búið í rúm 40 ár sæmdarhjónin Sigríður Ijósmóðir Benediktsdóttir á Þorvaldsstöðum Eyjólfssonar í Litla- Sandfelli Benediktssonar, og Friðrik Jónsson oddviti. Þau höfðu komið hingað með honum 1926 móðir hans og litli drengurinn. Hvorugt varð lengi, Herborg dó vorið 1929, en Jón Karl F'riðriksson á afrnæli sínu, sumardaginn fyrsta 1932. Friðriki og Sigríði varð auðið tveggja dætra. Mar- grét er fædd undir árslok 1927, ljósmóðir í Reykjavík, gift Sigurþór Sigurðssyni. Jóna Vilborg haustið 1932, og ber hún nafn Vilborgar ömmu sinnar á Þorvalds- stöðum. Fer vel á, því að eins og amma hennar býr Vil- borg Friðriksdóttir rausnarbúi á Þorvaldsstöðum; hún og maður hennar, Kjartan Runólfsson frá Litla-Sand- felli, eiga hálfa jörðina og búa með börnum sínum á efri hæðinni í hinu reisulega íveruhúsi. Þeir reistu það saman Friðrik og Kjartan 1955 fram á gamla bæjar- hlaðinu. Aður hafði Friðrik byggt við bæinn og endur- nýjað hann, svo að hann var raunar ágæt íbúð. Hér verður ekki fjölyrt um framkvæmdir Friðriks í búnaði. Hann hefur jafnan haft gott bú og arðsamt og átt góða hesta, sem kornu honum vel á margri ferð til fundahalda og í þágu hinna ýmsu félagsmála. Og þá ekki sízt Sigríði, sem átt hefur langar ferðir upp og ofan með óreiðum ám á leið til sængurkonu. Hinn mikli aðstöðumunur fyrri og nýrri tíma niinnir hér á, að fyrir atbeina oddvitans á Þorvaldsstöðum kom sveita- 262 Heima. er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.