Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 24
fjallveginum gerði vonda skafla og langar þiljur, svo að örðugt var að finna veg, þótt auður væri með köflum. Grímur réð því að láta reiðingshestana fara lausa á und- an. Ef til vill mundi einhver þeirra finna rétta leið. Og þetta reyndist svo. Það var Faxi, sem tók forystuna. Otrauður lagði hann í hvern skafl, brauzt á undan og hitti alltaf nákvæmlega á auða vegarkaflann. Lestin kom öll á eftir tiltölulega greiða leið. Grímur kom með Faxa hingað heim, hrifinn af klárn- um og hrifinn af sjálfum sér að hafa valið hann og séð, hvað í honum bjó. Faxi sýndi ekki aðeins dugnað sinn og skerpu, heldur og mikil hyggindi. A fyrri árum hans voru ennþá not- aðar taugar við sleða og girðingur yfir hnakk til drátt- ar. Faxi átti ekki fælni til, en honum féll illa að fá sleða á hæla sér. Niður hjarnfannir hugði hann vel að sleðan- um og stillti svo til, að hann rann fram með honum en aldrei á hæla hans. Honum varð ljóst, að léttara var að draga á fönnum eða klaka en á auðu. Þegar „höft“ voru á venjulegri leið, beygði hann sjálfur af til að þræða fannir, ef augljóst var, að komast mætti hjá höftum. Ef hliðarhalli var á fönnum, hafði hann auga á sleðanum og gætti þess að fara svo ofarlega, að sleðinn ekki slingraði á autt. Faxi var aðaldráttarhesturinn hér á heimilinu nær tvo áratugi. En aðdrættir uxu, og með honum var fenginn annar hestur, mikill grár hestur, fríður og duglegur, en hafði þann slæma galla að vera dálítið fælinn, svo hon- um var aldrei að treysta. Eg fór oft með þá báða í sleða- ferðir. Á ísum voru þá sleðarnir og hestarnir bundnir saman hlið við hlið, en í snjó og troðnum slóðum var taumur Grána bundinn aftan í sleða Faxa, og lét Faxi Grána aldrei raska rólyndi sínu eða svipta sér til. Ein kaupstaðarferð með þá báða mun mér aldrei úr minni líða. Ég lagði af stað með báða klárana. Með mér var nágxanni minn, sem við nefnum Villa. Leiðinni hef- ur þegar verið lýst í frásögninni af Gamla-Jarpi. Þegar kom að árísunum, var komin asahláka með hvössum vindi af suð-vestri. Það þiðnaði ört af ísnum. Hlákustormurinn þeytti leysingarvatninu um gljáfægð svellin í þunnri bylgju. Hér var svo hált, sem mest mátti verða. Nú voru að vísu komin aktygi á hestana og kjálkar við sleðana. Samt var ekki álitlegt að sitja á sleða og stjórna hestunum með aktaumunum, viðnámið ekkert á ísnum fyrir sleðana. Vindurinn gat svipt þeim á hlið og fram með hestunum, svo að ekki yrði við neitt ráðið. Villi var aðeins með einn hest og sleða. Okkur sýndist tryggast að taka gamla ráðið frá dögum tauga- sleðanna, að setjast á klárana. Ég batt báða sleðana sam- an, hvorn aftan í annan, og setti Faxa fyrir, settist á balc Grána og teymdi Faxa við hlið mér. Við vissum ísana trausta, en mundum þó eftir Pollaálnum. Ekki voru nokkur tök á að reyna ísinn, um að gera að fara nógu langt frá landi. En það tókst þó ekki. Áður en varði brast ísinn, báðir hestarnir lentu niður í vatnið og á sund. Vatnið var jafnhátt ísnum og bullaði upp á hann. Nú var gott, að fæturnir voru ekki fastir í ístöðum. Mér tókst að henda mér upp á skörina og hafa föst handtök á taumum beggja hestanna. En þrátt fyrir það voru mér allar bjargir bannaðar, viðspyrnulausum á glerhálli skörinni við opna vökina með straumþunga, sem var tilbúinn að bera mig og hestana undir íshelluna. En félagi minn gat stöðvað sinn hest, traustan og ró- lyndan. Hann var skjótráður, náði í mikinn og traustan broddstaf af sleða sínum og laust reipi. Hann losaði fyrst sleðana frá Faxa og kom síðan til mín. Við bundum sitt reiptaglið í hvorn hesttaum, studdum okkur báðir við stafinn og færðum okkur upp á traustari ís, öruggir um að halda höfðum hestanna upp úr vatninu. Ekki var ólíldegt að til okkar sæist af þrem bæjum, sem voru skammt frá, og okkur yrði komið til hjálpar. Það varð að bíða og sjá hvað setti. En nú gerðist nokkuð óvænt. Við sáum Faxa rísa upp að framan. Hann hafði kennt grunns með afturfótunum, náð viðspyrnu og mildu stökki upp á skörina og kom á vetfangi til okkar. Gráni ætlaði að gera slíkt hið sama. En stökk hans var linara, hann reri á barminum, hneig síðan aftur á bak, og straumurinn tók búk hans og bar hann flatan undir ís- inn, en hausnum gátum við haldið á lofti. Nú var fanga- ráðið að binda reipi úr taumi Grána í aktygi Faxa og láta hann draga hann flatan upp á ísinn. Þetta tókst. Hestarnir voru settir aftur fyrir og ferðinni haldið áfram, unz komið var í kaupstaðinn. En þetta var örðug ferð. Hlákan var svo mikil, að örísa mátti heita í grennd við kaupstaðinn. Við fengum kerrur lánaðar og settum hestana fyrir og fluttum sleðana og nokkuð af varningi meira en hálfa leið heim, þangað sem aftur tóku við ís- grottar. Komið var heim með lítil æki eftir erfiða og söguríka för. BRÚNN Faxi var allur nálægt lokum fyrri heimsstyrjaldar. Ég var þá að taka við búi og vantaði dráttarhest. Sigurður frá Draflastöðum hætti skólastjórn og búskap á Hólum vorið 1919. Hann hafði fengið annálaðan stóðhest úr Hornafirði, sem nefndur var Hornafjarðar-Brúnn. Út af honum átti hann úrvalshestastofn, sem nú skyldi selja. Ég skrifaði Sigurði og bað hann um valinn hest til allra nota, en einkum til dráttar. Því lofaði hann. Fleiri hesta seldi hann hér í sveit. Menn komu með Hólahest- ana. Ég man enn, þegar hópur þeirra kom í hlaðið. Þetta voru valdir gripir, flestir brúnir, vel fóðraðir og gljá- andi á belginn og báru sama svipmót. Nokkrum dögum áður höfðu farið hér um hestamenn með óhrjálegt stóð, marglitt, horað og sneplótt. Sigurður hafði úthlutað mér brúnum fola. Ég er ekki talinn hafa vit á hestum, en Brúnn tók óðara hug minn allan. Mér fannst hann bera langt af öllum hestum, sem ég hafði kynnzt, jafnvel Faxa. Hólamenn sögðu hann líkjast föður sínum, Hornafjarðar-Brún, mest allra hans niðja. Hann var allra hesta hæstur á herðakamb og vöxt- 280 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.