Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 29
Loðmundarfjöröur — Hjálmardalsnei í Landnámu er þannig sagt frá landnámi í Loðmund- arfirði: „Loðmundur hinn gamli hét maður, en annar Bjólf- ur, fóstbróðir hans. Þeir fóru til íslands af Vors af Þulunesi. Loðmundur var rammaukinn mjög og fjöl- kunnugur. Hann skaut fyrir borð öndvegissúlum sín- um í hafi, og kvaðst þar byggja skyldi, sem þær ræki á iand. En þeir fóstbræður tóku Austfjörðu, og nam Loðmundur Loðmundarfjörð og bjó þar einn vetur. Þá frá* hann til öndvegissúlna sinna fyrir sunnan iand. Eftir það bar hann á skip öll sín föng. — En er segl vor dregið, lagðist hann niður og bað engan vera svo djarfan, að hann nefndi sig. En, er hann hafði skamma stund legið, varð gnvr mikill. Þá sáu menn, að skriða mikil hljóp á bæ þann, er Loðmundur hafði búið á. Eftir það settist Loðmundur upp og tók svo til orða: „Það er álag mitt, að það skip skal aldrei heilt af hafi koma, er hér siglir út.“ Síðan segir frá því, að Loðmundur siglir skipi sínu suður með Austfjörðum, allt suður fyrir Hornafjörð og vestur með allt vestur undir Hjörleifshöfða og lenti þar nokkru vestar. — Hann nam þar land, sem súlurnar höfðu konrið, á milli Hafursár og Fúlalækjar. Þar heitir # Frá = frétti. éi - Sólheimar nú Jökulsá á Sólheimasandi. Hann bjó í Loðmundar- hvammi og kallaði þar Sólheima. Þegar ekið er austur yfir Jökulsá á Sólheimasandi og austur sandinn, þá blasa Sólheimabæirnir við sýn á vinstri hönd. Er þar bæjarstæði fagurt. Landnámssaga Loðmundar gamla í Loðmundarfirði er alveg sérstæð í Landnámu. Hann er talinn nerna þar iand, en er þar aðeins einn vetur. Ekki er talað urn, hvað hann nefndi bæ sinn, en þegar hann hefur ferð- búizt og seglbúið bát sinn, þá leggst hann fyrir og bannar öllum að yrða á sig, og féll þá skriða á bæinn, senr hann var að yfirgefa, og jafnframt bað hann firð- inum óbæna. Ekki veit ég til að í neinum ritum sé það skráð, hvernig byggð myndaðist síðar í Loðmundarfirði, og ekki man ég eftir að Loðmundarfjarðar sé getið í ís- lendingasögum eða Sturlungu. — En mannsnafnið Loð- mundur kemur síðar fyrir á Suðurlandi og eru það iíklegast afkomendur Loðmundar í Sólheimum, sem það nafn bera. Loðmundarfjörður er, eins og allir vita, lítill fjörður norðan við Seyðisfjörð og gengur inn úr Seyðisfjarðar- djúpi. Er fjörðurinn fremur grunnur og hafnlaus. Ekki er fjörðurinn heldur fiskisæll. Þegar Páll Ólafsson, skáld X Ihj-Óf ^nmm mm

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.