Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 30
Stakkahlíð. — Ljósmynd: Páll Jónsson. og alþingismaður bjó að Nesi í Loðmundarfirði virð- ist hann stundum hafa átt í deilum við samsveitunga sína og ekki vandað þeim kveðjurnar í Ijóðum sínum. — Landfræg er þessi vísa Páls: „Það er ekki þorsk að fá í þessum firði. Þurru landi eru þeir á og einskis virði.“ En þótt þröngt sé í Loðmundarfirði og snjóþungt á vetrum, þá eru þar landkostir góðir, og stórfengleg sumarfegurð og gróðursæld. Um það leytið, sem byggð var fjölmennust í Loð- mundarfirði voru þar tíu jarðir í byggð og tvíbýli á sumum jörðunum. En þegar ég kom þar í fyrsta skipti í febrúarmánuði 1943 voru þar 5 eða 6 jarðir byggðar og 58 manns, sem áttu þar lögheimili, þótt sumt af því fólki dveldi þá við atvinnu annars staðar. Á þessu ári, 24 árum síðar, eru aðeins tvær jarðir í byggð og heim- ilisfastir þar 8—10 manns. Er Loðmundarfjörður því nú fámennasta sveit landsins, sem talin er í byggð. Þegar ég hafði námsstjórn á Austurlandi voru tak- mörk svæðisins frá Mýrdalssandi austur og norður í kring að Raufarhöfn. Það er löng og að sumu leyti erfið strandlengja, að ferðast um. Fyrsta veturinn fór ég í Öll skólahverfi á þessu svæði og kauptún og kaup- staði, nema Mjóafjörð og Loðmundarfjörð, en næsta vetur fór ég í báða þessa staði, þótt erfitt væri að kom- ast þangað. Um mánaðamótin janúar og febrúar árið 1943 var ég staddur á Seyðisfirði, og hafði þá ákveðið að fara í Loðmundarfjörð, ef færi gæfist. Akvað ég að sammæl- ast pósti, sem fara átti gangandi frá Seyðisfirði að Stakkahlíð í Loðmundarfirði. Var farardagur ákveð- inn 3. febrúar. — Þessar póstferðir voru farnar tvisvar í mánuði. Pósturinn var ungur og röskur piltur frá Dvergasteini við Seyðisfjörð. Að morgni þessa dags, er við skyldum leggja upp í ferðina, var veður kyrrt og bjart og frostlítið. I Seyðis- firði var ekki snjóþungt, en fannalög mikil á fjöllum og heiðum. Leiðin, sem við áttum fyrir höndum frá Seyðisfirði að Stakkahlíð er líklega um 12—15 km, en hún liggur um Hjálmardalsheiði, sem er 600—700 metra yfir sjáv- armál og þverbratt upp á brúnina hjá Dvergasteini. Pilturinn bar póstinn í poka á öxlinni og var bagg- inn bæði í bak og fyrir. Þyngri og fyrirferðameiri pakkinn á bak, en sá léttari og minni í fyrir. Ég var með hnakktösku, sem ég bar í ól um öxlina. Við lögðum upp um kl. 10 að morgni, og var svo ráð fyrir gert, að Stefán bóndi í Stakkahlíð kæmi á móti okkur miðja vegu á heiðina, tæki þar við mér og póstpokanum, en fylgdarmaður minn frá Dvergasteini sneri þá aftur, sömu leið og við komum. Við gengum létt fyrst út með firðinum, meðan snjó- létt var og hlíðarbrekkan lítið eitt á fótinn. En þetta brcyttist fljótt. Færið þyngdist og brattlendið tók við. — Nú er þess að minnast að heiðarbrúnin mun vera um 600 metra há, og er hækka tók reyndist þar nokk- urt harðfenni. Strax og tók að þyngjast fyrir fæti, bauð pilturinn mér að taka við minni tösku og brá hann henni yfir öxl sér á ólinni og lagði hana þannig ofan á póstpokann. 286 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.