Heima er bezt - 01.08.1967, Side 4
SIRA AGUST SIGURÐSSON I VALLANESI:
Friérik Jónsson, bóndi
á Porvaldsstöéum
Inn af hinu viðfeðma láglendi Fljótsdalshéraðs ganga
þrír megin-dalir, sem aftur skiptast í tvo byggðar-
dali. Nyrztur og lengstur er Jökuldalur með byggð
í Hrafnkelsdal, í miðju og upp af Lagarfljóti Fljóts-
daiur, byggður í Suður- og Norðurdal, en syðstur
Skriðdalur, sem greinist í Suðurdal og Geitdaí. Allt
þetta mikla byggðasvæði, fjórar sveitir Út-Héraðs, Fell
og Vellir ásamt dölunum, nema Jökuidal, er nefnt einu
nafni Fljótsdaishérað, eða aðeins Hérað. Þar eru tíu
hreppar, þegar Jökuldalur er með talinn, eins og rétt
er, þá litið er á þenna Jandshluta sem menningarlega
heild. Eitt þessara sveitarfélaga, Egilsstaðakauptún, er
aðeins 20 ára. Þar er Héraðsheiniilið Valaskjálf, sam-
eign allra hinna tíu hreppa. — Héraðið skiptist á þjón-
ustu tveggja lækna og þriggja presta. Hagsmunafélög
eru tvö, Kaupfélag Héraðsbúa, með aðalbækistöð í
Egilsstaðakauptúni, og Verzlunarfélag Austurlands,
miðstöð þess á Hlöðum við norðurenda Lagarfljóts-
brúar. Sex af sveitum Héraðsins eru í Norður- en
fjórar í Suður-Múiasýslu.
Skal nú ekki frekar upp talið né gerð náin grein
fyrir landa- og félagsfræði Fljótsdalshéraðs, en vísað
til Arb. Ferðaféiagsins 1944, sem Gunnar skáld Gunn-
arsson, þá bóndi á Skriðuklaustri, reit.
En að baki nafns allra félagssvæða og samtaka liggur
hugsun og starf. Einn þeirra manna, sem hæst ber á
þeim vettvangi á Héraði nú um áratugaskeið skulum við
hitta heima. Það er Friðrik Jónsson bóndi og oddviti
á Þorvaldsstöðum í Skriðdal; um sl. 40 ár mesti for-
svars- og fyrirmaður Skriðdalshrepps, lengi þann tíma
í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa og formaður hennar
seinni árin, menningarlegur höfðingi á Héraði, kunn-
ur út í frá vegna blaðagreina um menn og málefni
á Fljótsdalshéraði.
Stórbýlið Þorvaldsstaðir er í norðanverðum Skrið-
dal, skammt þar inn frá, sem þessi fagri-dalur náttúru-
sköpunarinnar klofnar um hinn svipfagra og sérkenni-
lega Múlakoll. Setrið rís undir gróinni hlíð, en neðan
bæjarins liggur eggslétt túnflæmið í jöfnum halla nið-
ur að Geitdalsánni. Horfir þar yfir í Múlann, brattar
skriður undir ótrúlega meitluðum hamraþiljum. Norð-
an- og austanundir Múlanum stendur hinn forni kirkju-
staður Þingmúli. Þar fellur Múlaá neðan við túnfót-
Friðrik á Þorvaldsstöðum, þrítugur.
260 Heima er bezt