Heima er bezt - 01.08.1967, Page 18
ÚRSLIT í RITGERÐASAMKEPPNI „HEIMA ER BEZT"
ISLENZKI
HESTURINN
Eins og um getur í síðasta hefti bárust allt 59 ritgerðir um íslenzka hesta í
ritgerðasamkeppni „Heima er bezt“. Það hefur verið allmikið verk fyrir dóm-
nefndina að lesa og dæma um allar þessar ritgerðir. En nú hefur dómnefndin
lokið störfum og varð hún sammála um að veita verðlaun fyrir eftirtaldar
ritgerðir:
1. VERÐLAUN: Kr. 5000.00 hlaut ritgerðin „FJÖREGGIÐ" merkt
dulnefninu „k. s n.".
2. VERÐLAUN: Kr. 2500.00 hlaut ritgerðin „DRÁTTARHESTAR"
merkt dulnefninu „Búandkarl".
3. VERÐLAUN: Kr. 1500.00 hlaut ritgerðin „HREFNA" merkt dul-
nefninu „Burnirót".
Þegar umslögin með dulnefnunum voru opnuð, kom í ljós, að hin raunveru-
Iegu nöfn sigurvegaranna voru:
„k. s. n." er Hinrik A. ÞórSarson, Reykjavík.
„Búandkarl" er Jón Sigurðsson, Yztafelli, Suður-Þingeyjarsýslu.
„Bumirót" er Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum.
Við sendum sigurvegurunum í þessari skemmtilegu ritgerðasamkeppni okkar
beztu árnaðaróskir, og biðjum þá vel að njóta verðlaunanna.
Þá viljum við einnig nota þetta tækifæri til að þakka öllum þeim sem tóku
þátt í samkeppninni, fyrir þær mörgu ritgerðir sem blaðinu bárust.
í þessu hefti og þeim næstu verður birt úrval þeirra ritgerða sem bárust. Verðlaunaritgerðin „FJÖREGGIÐ"
birtist í þessu hefti á bls. 275, verðlaunaritgerðin „DRÁTTARHESTAR" birtist á bls. 277 og verðlaunarit-
gerðin „HREFNA" birtist á bls. 282.
274 Heima er bezt