Heima er bezt - 01.08.1967, Qupperneq 28
Ég heyri lindina niða og horfi á móinn litkast, björkina
laufgast og grasið gróa. Ég heyri lóuna og þröstinn
syngja og sé máríuerluna byggja sér hreiður í bæjar-
kampinum. Ég sé lömbin og kiðlingana að leik og verð
vitni að því hvernig ærnar fagna afréttafrelsinu eftir
húsvist og hömlur.
Ég sé hestana í haganum, vel á sig komna, reista og
gljáandi. Ég geng til þeirra og slæ beizli við einn. Hrefna
er enn fagureyg og með göfugu yfirbragði. Hún reisir
sig hátt og sýpur hreggið þegar sezt er á bak henni.
Taumarnir leika Ijúft í höndum, þykkt, svart en ofur-
lítið hæruskotið faxið fellur upp í fangið. Spretturinn er
gripinn, og stundin verður unaðssæl. Stekkjargrundin er
góður skeiðvöllur og niður árinnar er ánægulegt undir-
spil. Það er þakkað fyrir sprettinn, þegar stigið er af
baki, strokið létt urn svitavott brjóstið og bógana, sem
titra af áreynslunni og kysst á mjúkan, dökkan flipann.
Þegar Hrefna er laus við beizlið hristir hún sig snarp-
lega, frísar hátt og brokkar í átt til hestanna. Hún sting-
ur mikið við. Ég horfi á eftir henni með þakklæti í huga,
en líka ineð sárindi í samvizkunni. Spretturinn hafði
verið nokkuð langur, og ég hafði verið ótrauð að hvetja
til æ meiri hraða og snarpari tilþrifa. Það var svo gaman
að finna skerpu skeiðgripanna og Hrefna hafði verið fús
að leggja sig fram.
En hafði ég þá heimtað of mikið?
Ég hafði margsinnis verið áminnt um að ofbjóða
henni ekki. Og sannarlega var ekki ætlun mín sú að gera
það. En æskan sést ekki alltaf fyrir þegar hún fær notið
ríks unaðar.
Hitt vissi ég að þetta yrði Hrefnu síðasta sumar. Veik-
in í fótum hennar ágerðist ört, svo að ekki þótti líðandi
að leggja meira á hana og gott hefði verið að geta launað
henni liðinn tíma með því að láta hana standa óhreyfða
þennn biðtíma til lokaþáttar. En ástæður bönnuðu að
hægt væri að sýna þá líknsemi og þann þakkarhug, nema
að mjög litlu leyti.
Ég renni augum upp á grundina til hestanna. Hrefna
er komin til þeirra. Hún veltir sér nokkrum sinnum og
fer svo að kroppa grængresið, en hvílir fætur til skiptis.
Sjón mín óskýrist og eitthvað vott læðist niður vang-
ana. Ég kasta beizlinu um öxl mér og sný mér undan —
í áttina heim. Ég kenni kuldahrolls, enda er náttkælan
að falla yfir. Eg ætti að hraða för minni, en spor mín
eru allt í einu orðin svo einkennilega þung. Niður ár-
innar er einnig breyttur, nú er hann ekki lengur léttur,
heldur sorgblandinn og blómin sem rétt áðan brostu
opnum krónum eru nú með lukta brá undir þunga dagg-
arinnar. Lóan kveður næturljóð úti í lyngmónum og
þrestinum hefur runnið í brjóst, þar sem hann situr í
hríslukverkinni. Slakkinn er sveipaður rökkurslæðu og
þokufaldur er að myndast á kolli Kambfellshnjúks. Dag-
urinn er á enda og eins yrði brátt um söguna hennar
Hrefnu.---------
Þá sögu hef ég leitazt við að segja hér í stórum drátt-
um. Ég hef gengið á vit hins liðna og fellt saman brota-
silfur minninganna. Göturnar, sem hún Hrefna þræddi
áður eru nú sumar gleymdar og grasi gróin hófsporin.
Auðn ríkir, þar sem allt var fyrrum kvikt af lífi.
Bergmálið af hneggi hennar er dáið út og grundirnar
þar sem fætur hennar stigu listdans á mjúku grasi eru nú
vaxnar viði, sem ekkert mannlegt auga gleðst lengur af
að sjá skrýðast gróðrarskrauti.
En innst í hjarta mínu snertir gleðin næman streng,
hvenær sem ég minnist þeirra óteljandi yndisstunda,
sem við áttum saman. Mynd hennar er skýr, skarpt svip-
mótið, glampi augans og kvik eyrans. Hljómur hneggs-
ins, fjaðurmagn hreyfinganna og mýkt sporsins er í
fersku minni og dynurinn frá hófaslætti hennar lætur
mér enn ljúft í eyrum.
Annar þáttur í verðlaunagetraun
„Heima er bezt44 um hin glæsilegu
verðlaun, sem eru samanlagt að
verðmæti kr. 26.000 ,oo
Þá er komið að öðrum þætti í hinni stóru og spennandi
verðlaunagetraun, sem þið eigið að leysa alveg á sama
hátt og í síðasta blaði. Hér fyrir neðan sjáið þið ein-
kennilega röð bókstafa, sem fljótt á Iitið virðist ekki
tákna neitt sérstakt, en ef betur er að gáð kemur í Ijós
að þegar stöfunum er raðað í rétta röð, mynda þeir
nafnið á íslenzkum kaupstað, sem mjög hefur komið við
sögu síldariðnaðarins á síðari árum.
SIFRYJEÖÐSUÐR
Kaupstaðurinn heitir....................
Athugið vel, að ráðningar á ekki að senda til blaðsins
fyrr en heildargetrauninni lýkur. Munið einnig, að ef
þið hafið hug á að afla ykkur nánari upplýsinga um hina
stórglæsilegu verðlaunagripi, eða fleiri gerðir af sams-
konar heimilistækjum, þá getið þið fengið litprentaða
myndalista og verðlista senda um hæl ef þið skrifið eða
hringið í FÖNIX S.F., Suðurgötu 10, Reykjavík, sími
(91)24420.
284 Heima er bezt