Heima er bezt - 01.08.1967, Page 39
76. Ætlun þeirra var að reka hestana út í svo djúpan snjó,
að þeir gætu komizt fast að þeim og varpað snöru um háls
einhvers hestanna. Og þetta tókst á þann hátt, að þeir
sóttu síðan að hestunum frá þremur hliðum, Humri, Palli
og hundarnir. Þetta heppnaðist ágætlega. Hestarnir lágu
á kviði í fönninni, og þrír villihestar voru glæsilegur ár-
angur þessara hrossaveiða. — 77. A Spáni hafði Palli
kynnzt bæði nauta- og hestatöku á þennan hátt, og nú
kom þessi kunnátta hans að góðu haldi. Þeir mýldu síðan
hestana með heimagerðum múlbeizlum, og bundu síðan
stuttum taumnum niður í annan framfót hestsins, og að
fáum dögum liðnum gátu þeir teymt villtu hestana í hús.
Og eftir stutta sultarskömmtun urðu hestarnir svo tamir,
að þeir átu úr lófa heimafólksins. Og nú voru allir íbúar
skógarvarðarkofans heldur en ekki hreyknir af þessum
mikla bústofnsauka sínum. — 78. A skógarvarðarsetrinu
var einnig í mörgu að snúast. Eðvarð var m. a. sendur til
Lundúna í erindum skógarvarðarins. Hann bar alltaf þá
leyndu þrá í brjósti að komast í þjónustu Karls konungs.
Og í Lundúnaför sinni myndi hann fá tækifæri til að átta
sig á, hvar konungs-herinn væri staðsettur. Eðvarð kvaddi
Petrínu innilega og reið af stað með þjón til fylgdar, er
Sámur hét og var vel kunnugur í Lundúnum. — 79. Skóg-
arvörðurinn hafði leyft Eðvarði að ríða hvert sem hann
lysti, er hann hefði skilað bréfum þeim sem hann hafði
meðferðis, þvi smám saman hafði skógarvörðurinn fengið
mesta dálæti á ESvarði. I Lundúnum tókst Eðvarði fljótt
og auðveldlega að finna þau heimilisföng, sem bréfin voru
ætluð með góðri aðstoð Sáms. Og Steinn hafði sennilega
borið honum vel söguna í bréfum sínum, því alls staðar
var Eðvarði vel tekið og hjartanlega og einnig ráðlagt og
leiðbeint, hvernig hann gæti hitt konunginn. Og loks vel
búinn og birgur af öllum nauðsynjum reið hann norður
á bóginn að nokkrum dögum liðnum. Sám sendi hann
heim og bað hann fyrir beztu kveðjur sínar.