Heima er bezt - 01.03.1970, Blaðsíða 4
KARL KRISTJÁNSSON:
vonanna
ve
ídi”
i.
inn' 10. ágúst 1969 hélt Garðræktarfélag Reyk-
hverfinga árlegan aðalfund sinn á heimili fram-
kvæmdastjóra síns, Atla Baldvinssonar, að
Hveravöllum í Reykjahreppi í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Á fundinum flutti Atli Baldvinsson skýrslu
um starfsemi félagsins s.l. ár, ásamt greinargerð reikn-
inga ársins. Þetta var þrítugasta ársskýrsla hans og reikn-
ingsskil sem framkvæmdastjóra félagsins, því hann tók
við því starfi á árinu 1938.
Þrjátu ár ntega teljast alllangur tími miðað við starfs-
ævi manns. Og þetta árabil síðan 1938 hefir viðskiptalíf
landsins bylt sér á ýmsar hliðar og reynt á taugar þeirra,
er með fyrirtæki fjármála og framleiðslu hafa farið.
En Atli Baldvinsson er alltaf samur við sig: yfirlætislaus
en traustur, ráðsvinnur og gætinn. Hlýtur þakkir við
hver árslok fyrir giftusamlega forstöðu. Hann hefir í
illu sem góðu árferði verið maður hinnar áfallalausu,
sígandi lukku, sem máltækið segir líka bezta.
II.
Atli Baldvinsson er fæddur á Húsavík 31. október
1905. Foreldrar hans voru Baldvin Friðlaugsson búfræð-
ingur og kona hans, Sigríður Stefánsdóttir.
Baldvin var fæddur 25. okt. 1877 að Hafralæk í Aðal-
dal. Sonur hjónanna Friðlaugs Stefánssonar og Sigur-
íbúðarhlisið á Hveravöllum. Yztihver gýs. Stundum er vatns-
súlan 25 metra há.
Steinunn Ólafsdóttir 19 ára.
laugar Jósefsdóttur, sem þar bjuggu. Friðlaugur var son-
ur Jóns Jónssonar, bónda á Hafralæk og konu hans,
Hólmfríðar Indriðadóttur.
Sigurlaug, kona Friðlaugs, móðir Baldvins, var dóttir
Jósefs Þórarinssonar bónda á Kálfborgará í Bárðardal
og konu hans, Helgu Sæmundsdóttur, systur Ásmundar
bónda á Hvarfi í Bárðardal, síðar á Flögu í Þistilfirði,
föður Valdimars ritstjóra í Reykjavík.
Sigríður, kona Baldvins, móðir Atla, var fædd 5. maí
1876, að bænum Skarði í Grýtubakkahreppi. Foreldr-
ar hennar voru: Stefán Guðmundsson bónda á Nolli í
Grýtubakkahreppi Stefánssonar og kona hans, Jónína
Jónasdóttir, bónda að Krossi í Ljósavatnshreppi Bjarna-
sonar bónda í Fellsseli í sömu sveit Jónssonar.
80 Heima er bezt