Heima er bezt - 01.03.1970, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.03.1970, Blaðsíða 12
en þar sem við vorum þreyttir og sængur prestsins mjúkar gleymdum við brátt erfiðleikum okkar. Næsta dag héldum við áfram út með firðinum. Storm- urinn og haglélin héldust óbreytt og töfðu ferð okkar. Fyrstu tvær eða þrjár klukkustundirnar sá ég ekkert frá mér að kalla. Ég hnipraði mig saman innan í yfir- höfn mína og reyndi að skýla andlitinu eins vel og ég gat. Ég batt upp beizlistauminn á hestinum, og eftir að hafa sett upp þrenna íslenzka belgvettlinga lét ég hann ráða ferðinni. Það eina, sem ég gerði mér ljóst var, að við höfðum storminn alltaf í fangið. Um fjögur leytið skánaði veðrið, þokuna reif frá, svo að við sáum í ströndina hinum megin fjarðarins. Hún var klettótt og brött fjöll risu upp frá henni. Við náðum brátt mynni Hrútafjarðar, og þar sem þokunni létti sáum við nú yfir í Bálkastaðanes, sem er endinn á hálsinum austan megin fjarðarins. Við höfðum nú sjálfan Húnaflóa á hægri hönd, en það er mikill flói, sem margir firðir skerast inn úr. Grængolandi íshafsbylgjurnar komu æð- andi á móti okkur og brotnuðu við ströndina í trylltum leik. Þegar við nálguðumst Guðlaugsvík varð strandlengj- an vogskornari en áður og um leið með meiri tilbreyt- ingum. Nokkrar þunnar hamrabríkur, 30—40 feta háar, stóðu þar upp úr sjónum. Þær voru mjög furðulegar tilsýndar, þar sem öldurnar brotnuðu á þeim og þeytt- ust upp í froðukúfa. Það litla, sem við sáum á þessum síðasta hluta dagleiðarinnar vakti forvitni oltkar eftir meiru, en þokan og dimmviðrið huldi aftur alla útsýn. Þegar til Guðlaugsvíkur kom vakti það fögnuð okkar og undrun er við vorum ávarpaðir á móðurmáli okkar. Hinn ágæti bóndi* þar heilsaði okkur með orðunum „Welcome Master“, og bauð okkur þegar í bæinn, sem var hreinlegur og að mestu leyti laus við hinn íslenzka bæjaþef. Hann bauð okkur beztu stofuna til íbúðar, og tókum við því með þökkum og fögnuði. Gestgjafi okkar var miðaldra maður, og miklu snyrti- legri utan um sig en íslendingar almennt eru. Hann sagði okkur síðar, að hann hefði unnið sem timburmeist- ari í dönskum skipasmíðastöðvum, og í sambandi við störf sín þar hefði hann oft farið til Svíþjóðar, Þýzka- lands og Englands. Ferðalög hans til annarra landa, sem lengra voru komin áleiðis en ísland, höfðu opnað augu hans fyrir því, hve íslenzk húsakynni og mataræði stæði þeim að baki. Meðan við dvöldum undir þaki hans var hann sífellt að afsaka móttökurnar, fullkomlega að þarf- lausu, að okkar dómi. Þegar hann vísaði okkur í ágæt rúm sagði hann: „Ensk rúm eru góð en þessi ekki.“ Og við miðdegisverðinn: „Þetta er ekki gott, en annað er ekki til.“ Hann var mjög greindur maður og ræðinn að sama skapi, og benti okkur á alla beztu áfangastað- ina á væntanlegri leið okkar. En hann var engu að síður sannfærður um að ferð okkar væri vonlaust fyrirtæki. Honum var kunnugt um hafísinn og ófærðina á Stein- grímsfjarðarheiði. Um Drangajökul sagði hann afdrátt- * Tómas Jónsson, timburmaður, b. í Guðlaugsvík 18ó2—’69. arlaust: „Fráleitt, enginn maður kemst upp á hájökul- inn, jökullinn nær niður undir sjó. Þar er mjög kalt. Alveg fráleitt.“ Höfuðskepnurnar héldu sínum tryllta leik áfram án afláts allt laugardagskvöldið og sunnudaginn. Stormur- inn næddi gegnum skjólbeztu fötin okkar, svo að það var næstum eins og við værum naktir. Hitinn var 25 °F. Yið þökkuðum okkar sæla að hafa fundið svo þægilegan dvalarstað, og það fór hrollur um okkur við tilhugsun- ina um, ef við hefðum orðið að liggja í tjaldi á bersvæði í því veðri. Gestgjafi okkar sagði okkur margt hræðilegra og ömurlegra sagna um hinn íslenzka vetur. Hann sagði okkur frá stórhríðum, fannfergi og ógurlegum snjó- flóðum, sem sópuðu brott öllu, sem á vegi þeirra varð. Einnig lýsti hann fyrir okkur norðurljósunum, sem stundum eru svo björt, að hægt er að lesa á bók í skini þeirra. Hann var vel efnaður á íslenzkan mælikvarða. Auk Guðlaugsvíkur átti hann aðra jörð vestur undir Jökli. Þar dvaldist hann á vetrum við sjóróðra og varð sjónarvottur þeirra skelfinga, sem hann sagði okkur frá. Hann sagði okkur að sumir bæir undir Jökli lægju þannig, að þá fennti algerlega í kaf á vetrum, og grafa yrði mörg þrep niður í snjóinn, til að komast að bæjar- dyrunum. Menn settu langar stangir með veifu á endan- um á húsaburstirnar, til þess að aðkomumenn gætu fund- ið bæina. Á sama hátt eru einstök peningshús merkt, því annars yrði ókleift að finna þau í fannferginu. ís- lendingar fara léttilega yfir fannirnar á skíðum sínum, finna stengurnar og grafa síðan niður að húsdyrunum og skepnunum. Á þessum afskekktu bæjum lifir fólkið mjög fábreyttu lífi yfir hina löngu vetrarmánuði. Konur prjóna vett- linga, sokka, peysur og aðrar flíkur úr ullarbandi, en karlmenn hirða um skepnurnar. Næstum hver maður er læs o? skrifandi, og nokkrar bækur eru til á flestum bæjum. Hver bóndi er smiður á járn og tré. Þeir smíða sjálfir hestajárn eftir þörfum, og smíða og gera við flesta þá hluti, sem heimilið þarfnast. Þegar fólkið lifir svo einangrað yfir veturinn er ekki furða þótt það verði málgefið og skrafdrjúgt um hlut- ina. Enda virðast samræður vera bezta skemmtun þess. Gestakoma er í þeirra augum eins og þegar póstvagn- inn kemur hjá oss. Fólkið á bænum safnast kringum gestinn, og honum dvelst oft klukkustundum saman, og þá er spjallað og tekið í nefið án afláts. Hvar sem við komum endurtók sagan sig. Frá því við riðum í hlað og þangað til við kvöddum var Ólafur í hrókasamræðum við einhvern heimamanna, hverja þá stund, sem hann ekki þurfti að snúast fyrir okkur. Is- lendingar iðka nær enga leiki sér til gamans. Á stöku stað sá ég þó dominótafl og spil á örfáum stöðum. Höfuðvinna fólksins á hverju ári er heyskapurinn, sem stendur í tvo mánuði, júlí og ágúst. Hver maður, sem veldur orfi eða hrífu hlýtur að taka þátt í því starfi. Bezta heyið fæst af túninu umhverfis bæina, en auk Framhald á bls. 94 88 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.