Heima er bezt - 01.11.1973, Síða 10

Heima er bezt - 01.11.1973, Síða 10
hver áhrif það hafi á umhverfið utan þess. Að vísu þekkjum vér nokkuð til þess hver áhrif skógar, kjarr og votlendi hafa á vatnsmiðlun umhverfisins, ljóst er og hver áhrif skógar hafa á mildun loftslags, og hve þeir skýla gróðri í nágrenni sínu. Miklu minna er kunnugt um samfélög lífveranna og gildi þeirra í umhverfinu. í ýmsum löndum hafa margvíslegar rannsóknir verið gerðar í þessum efnum, og má þar nefna Norðurlönd- in og ýmis lönd Vestur-Evrópu. Mætti vissulega margt af þeim læra, og ber oss skylda til að hagnýta oss reynslu þeirra. Sakir þess hversu þekking vor nær enn skammt er hætta á, að vér ráðumst í ýmsar framkvæmd- ir áður en vér gerum oss grein fyrir til hvers þær geta leitt, og eins, að andstæðingar slíkra framkvæmda berj- ist gegn þeim með því að balda fram ýmiskonar hættu, sem ekki er létt að mótmæla, þegar ekki er nægur þekk- ingargrundvöllur fyrir hendi. En eitt er 'víst, að á land- svæðum, þar sem mörg samfélög dýra og plantna eru, þá er þar tiltekið jafnvægi, sem þó er viðkvæmt gegn röskun, einkum í hinni fáskrúðugu náttúru vorri. í því sambandi mætti benda á, að þurrkun mýrasvæða getur haft ótrúlega mikla röskun í för með sér út fyrir hið þurrkaða svæði. 2. Útivistarsvæði. Sífellt er leitað meira og meira eftir útivistarsvæðum eftir því sem þéttbýli eykst. Hér sem annars staðar sækja menn einkum til ósnortinna landsvæða, og hefir einkum verið mikil sókn í skóglendi af þeim sökum. í raun réttri geta fjöldamörg lífsvæði þjónað þessu hlut- verki önnur en skógurinn, t. d. hraun, grónar hlíðar, sjávarstrendur o. fl. Eitt meginatriði er þar, að svæðin séu nægilega stór og fjölbreytt. En til þess að halda þeim svæðum óspilltum þarf margs að gæta frá sjónar- miði náttúruverndar, og m. a. gæti verið full nauðsyn á að setja þar reglur um ítölu gesta líkt og búfjár í haga. 3. Skólar og rannsóknir. Skólarnir kref jast meiri og meiri kunnáttu í náttúru- fræðum, en jafnframt því er horfið frá hinu einhæfa bóklega námi í þeim fræðum, og í stað bókanna og rykfallinna náttúrugripa af skólasöfnum kemur nú skoð- un náttúrunnar sjálfrar, lífsvæðanna, eins og þau eru hverju sinni. Til þess svo að vísindamennirnir geti aflað sér þeirrar þekkingar, sem nauðsynleg er, þurfa þeir að geta fylgst með lífsvæðunum árum eða áratugum sam- an. í þessu sambandi mætti minna á mómýrar sem æski- legt viðfangsefni til náttúruskoðunar, bæði fyrir nem- endur í skólum og fræðimenn. Þar má rekja sögu gróð- ursins allt frá því ísa tók að leysa að lokinni ísöld til vorra daga, með því að greina frjó og tímasetja gróð- urstigin í sambandi við öskulög. En á yfirborðinu er nútímagróður mýrarinnar æskilegt viðfangsefni, og þá um leið athugun á því hver áhrif mótekjan hefir haft, og hvernig ný gróðurlendi skapast í mógröfunum, og sennilega einnig nýtt dýrasamfélag. Þannig gefur líf- svæði mýrarinnar margvísleg forvitnileg verkefni nem- endum og fræðimönnum. En hún er ekkert einsdæmi líkt má segja um öll lífsvæði landsins. Þannig eru líf- svæði skóglendanna ekki síður forvitnileg rannsóknar- efni. 4. Alfriðun lífsvæða og tegunda. Sá þáttur náttúruverndar, sem víðtækastur má kall- ast er alfriðun, og þegar um er að ræða alfriðun stórra svæða er hættast við að árekstrar geti orðið. Hinsvegar verður ekki hjá alfriðun sneitt á ýmsum stöðum. Með vaxandi þéttbýli og auknum hverskonar athöfnum eykst hættan á að tilteknum lífsvæðum verði eytt að mestu eða öllu. Þannig getur að því rekið að taka verði til al- friðunar svæði í hverju héraði að heita má, svo að þau geti staðið ósnert til skoðunar í framtíðinni. Einnig er sífelld hætta yfirvofandi að sjaldgæfum tegundum verði útrýmt, við breytingar eða eyðingar lífsvæða. Hér er ekki unnt að rekja þetta á breiðum grundvelli, en fara vildi ég nokkrum orðum um mýrlendi landsins, en oft er á það drepið í undanfarandi. Mýrlendi mun vera það gróðurlendi, sem minnst hætta er á að eyðist af völdum náttúrunnar. Þó er það staðreynd, að mýrar geta eyðst af áfoki og uppblæstri, enda þótt maðurinn komi þar ekki nærri. A það einkum við um hálendismýrar, eins og mörg merki sjást til. Að óathuguðu máli mundi fæstum til hugar koma, að mýr- lendi landsins væru í þeirri hættu stödd, að þörf væri friðunaraðgerða, þegar litið er á hversu víðáttumikil þau eru. En þegar vér lítum á hinar stórfelldu fram- ræslu- og þurrkunarframkvæmdir síðustu áratuga, verð- ur annað uppi á teningnum. í sumum byggðarlögum má kalla, að hver mýrarblettur sé þurrkaður, sumum breytt í tún, en annars staðar liggur landið enn órækt- að, en þurrkskurðirnir gína opnir við vegfarandanum, og ef farið er um svæðið, sést að mýrasamfélagið er úr sögunni, með því sem þar heyrir til. Því að ekki má gleyma dýralífi mýranna, þótt vér festum helst augu á mýrafuglunum, sem naumast halda sig í öðrum lífsvæð- um landsins. Svo mjög hefir mýrlendið sett svip á land- ið, að heil héröð hafa hlotið nafn af því, svo sem Mýrar og FIói. Ég hef ekki farið um Flóann svo heitið geti nú nýlega, en mig grunar fastlega, að flóasvæðin þar séu ekki orðin ýkjamörg eða víðlend. Eða hvað líður jaðrakaninum þar. Er hann ekki orðinn sjaldséður fugl nú?, en fátt gaf fuglalífi Flóans meiri svip en hann fyrir nokkrum áratugum. Vér eigum í höggi við rányrkju og landeyðingu, og blandast engum hugur um, að gera þarf stórátök til landvemdar, svo að þeim vágestum sé bægt frá oss. En vér þurfum eigi síður að framkvæma stórfellda hluti, til þess að framfleyta þjóðinni á komandi árum og öld- um. Vér þurfum að rækta tún og bithaga, koma upp nýskógum um Ieið og hinir eldri eru verndaðir, leggja vegi, virkja vatnsföll og byggja borgir og bæi. Ekkert af þessu verður stöðvað svo lengi sem vér viljum lifa í landinu sem menningarþjóð. En allar þessar fram- Framhald á bls. 417 386 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.