Heima er bezt - 01.11.1973, Síða 44
31. í um það bil klukkustund biðu menn í varðstöðu og hlustuðu
eftir minnsta hávaða. Hlaðnar byssur voru tilbúnar, og ég
hafði þann starfa að hlaða og sjá um skotfærin. Allt í einu lyfti
Joyce byssu sinni og skaut. Skotinu var svarað með mörgum
skotum frá skógarjaðrinum. Við töldum 12—14 skot, svo margir
voru andstæðingarnir að minnsta kosti. Með háum öskrum stökk
nú flokkur uppreisnarmanna út úr skóginum og réðist á staura-
girðinguna. Nú sáum við hvert aðalárásin stefndi og gátum því
gert ráðstafanir til að mæta henni. Sjóræningjarnir klifu létti-
lega yfir stauragirðinguna, því miður.
32. Meðan þeir klifruðu yfir stauragirðinguna, tókst okkur að
skjóta þrjá þeirra, en fjórir komust inn fyrir og gerðu nú árás á
sjálft bjálkahúsið. Þeir fjandmenn, er voru utan girðingar, öskr-
uðu hvatningarorð til árásarmanna og héldu uppi meinlausri
skothríð. — Vegna þess hve snöggir þeir voru í snúningum, kom-
ust þessir fjórir sjóræningjar í bjálkahúsið án þess að verða fyrir
skotum. Einn glæpamannanna greip um hlaupið á byssu Hunters,
reif hana til sín og sló Hunter niður. — Þegar nú fjandmennirnir
voru komnir alveg að skotraufum virkisins, breyttist staða okkar
til hins verra.