Heima er bezt - 01.11.1984, Blaðsíða 38

Heima er bezt - 01.11.1984, Blaðsíða 38
RAFN JÓNSSON: PERLUR í MOLD "****# y Júnínótt Það var sumar við fjörðinn, þennan mikla fjörð, er svo margir smærri firðir gengu inn úr. Það lögmál breyttist ekki, að vorið kæmi, þótt stundum þætti það koma nokkuð seint. En mannlífið tók stöðugum breytingum, sumir fóru, aðrir komu, bújarðir lögðust í eyði, og margar þeirra mundu aldrei byggjast aftur. Svo voru þeir staðir, er taldir voru eiga framtíðina fyrir sér, til dæmis úti á nesinu. Það var talið víst, að þar héldist byggð um ókomin ár. Þarna bjó rótgróið bændafólk mann fram af manni, en það var annað, er blasti við augum þeirra framsýnustu: Þarna var jarðhiti, og alls staðar, þar sem hann var fyrir hendi, var staður þróunarinnar. En fleira getur átt sínar uppsprettur en hugvit mannsins, og enginn gæti til lengdar verið þræll sinnar iðju, kannski ævina á enda, — látið brauðstritið eitt ráða öllum sínum hugsunum og gerðum, hafa aldrei um frjálst höfuð strokið, — vera aldrei hann sjálfur. Stundum er svo auðvelt að lifa í hinum margslungna einfaldleika tilverunnar og sannfærast um að allt sé það, sem við sjáum og heyrum, en rekast svo á andstæðuna einn góðan veðurdag, mótsögn, er kemur manni gersamlega í opna skjöldu, brýtur í bága við allt, sem talið er eðlilegt. Við neitum að trúa þessu, — slíkt getur alls ekki verið. Hér hlýtur að vera um mishermi og ofsjónir að ræða, segir fólk, en nóg um það. Eitt var víst: Vorið við fjörðinn var engin ofskynjun, enda hafði það komið í fyrra og árið þar áður. Það kæmi um ókomin ár, og alltaf fól það eitthvað nýtt í skauti sínu, mönnunum til dásemdar. Sumir fengu fleiri lömb en í fyrra, sprettan leit betur út þetta árið, þeir er stunduðu hrognkelsaveiðar öfluðu betur og svo framvegis. Þeir voru líka til, er mest glöddust af fegurð umhverfisins og hinu nývaknaða lífi, hvert sem litið var. Vorið hafði komið sunnan yfir fjörðinn, lagt undir sig eyjarnar og skerin, gætt þessi smáríki frjómagni sínu og yl, en haldið svo upp að ströndinni, inn með hlíðunum, fram í dalbotna, áfram yfir hálendið, tiltölulega stutta leið, í daladrögin handan þess. Það var eins og bæirnir svæfu. Djúp þögn hvíldi yfir öllu þessa björtu júnínótt, einn og einn máfur flaug fram með fjöruborðinu og rauf kyrrðina. Ærnar móktu á víð og dreif uppi í hlíðunum, og lömbin lágu við hlið mæðra sinna, áhyggjulaus og frjáls í æskugleði sinni, grunlaus um kom- andi tíma. En heima á Miðbæ hafði engum orðið svefnsamt. Einnig þar, í ríki mannanna, var lífið að boða komu sína. Von bráðar varpaði morgunsólin roðaflóði sínu á brúnir fjallanna, er teygðu sig óðfluga niður hallann, og vakti mófuglana af værum blundi. Bóndinn hélzt ekki við inni, og þess vegna hafði hann ranglað út. Konan hans var að ala barn. Ljósmóðirin hafði komið í gærkvöldi, og það voru bókstaflega allir á þönum að hjálpa eitthvað til. Vonandi gengi þetta vel, en það var einhvern veginn svona.... Hann gat ekki hugsað sér að vera viðstaddur. Honum varð litið upp í brekkurnar, þangað sem dagur- inn var risinn, — kindurnar komnar á beit, og spóinn vall glaðlega. Ósjálfrátt komu fram í hugann ljóðlínurnar, er lýstu þessu umhverfi svo vel: Hlíðin mín fríða, hjalla meður grœna, blágresið blíða, berjalautu vœna. A þér ástaraugu ungur réð ég festa, blómmóðir besta. Hann söng þessi ljóðstef hálfupphátt fyrir munni sér. Annars var hann ekki vanur neinni sönglist, en í þetta sinn gerði það ekkert til. Nú heyrði enginn til hans. Hugurinn var svo bundinn við kvæðið og innihald þess, að hann tók varla eftir að kallað var til hans. „Steini! Þorsteinn! Ætlar þú ekki að koma og heilsa upp á hana dóttur þína?“ Ljósmóðirin var að enda við að baða þá litlu og ganga frá henni í körfunni. Konan svaf djúpum svefni, en ósköp var hún föl á vangann. Hann hætti sér ekki lengra en í dyrnar, — þar stóð hann líkt og negldur niður. Þessi fnykur af svæfingarlyfinu kom illa við hann. „Sjáðu, hvað hún er myndarleg, litla manneskjan. Hún orgaði ekki mikið, bara örlítið. Hún er fædd í tvíbura- merkinu, og óvíst, að henni verði svo grátgjarnt í lífinu," sagði ljósmóðirin brosandi. „Það kæmi mér ekki á óvart, þótt hún hefði eitthvað það til að bera í framtíðinni, sem fjöldanum er hulið, og út á það kann hún að þola bæði súrt og sætt,“ bætti hún við. En að þessu sinni var brosið henni fjarlægt. Þorsteini fannst alvöruþungi í rödd hennar. Hún mælti þessi orð með svo mikilli festu. Hver setning smaug inn í hugskot hans, sat þar bókstaflega rígföst, þótt hann reyndi að varpa þessu frá sér eins og hverju öðru marklausu hjali. Hann leit ofan í körfuna og virti fyrir sér þennan litla anga. Þetta var dóttir hans, og hann skyldi reynast henni góður faðir, á hverju sem gengi. Hann lokaði herbergis- hurðinni og yfirgaf þennan vettvang að sinni. Frá eldhúsinu heyrðust háværar samræður. Það voru tvær nágrannakonur, sem boðið höfðu aðstoð sína, en voru nú farnar að hnotabítast um völdin. Þær tóku ekkert eftir honum, er hann settist við borðið. „Hvernig er það? Er kaffikannan tóm?“ spurði Þor- steinn, en j?ær heyrðu ekki til hans. „Ég ætla bara að segja þér það, að svona hefur húsmóð- irin aldrei látið sér detta í hug að hafa þetta,“ mælti önnur þeirra. „Hvað ætli þú vitir mikið um það? Mér eru hlutirnir kunnugri hér en þér, enda á ég heldur styttra að sækja en þú,“ svaraði hin. „Já, það vantar ekki í þig forvitnina og frekjuna, enda með nefið niðri í hvers manns koppi. Mér væri nær að halda, að sumt af slúðrinu hérna ætti ætt sína að rekja til þín. Ekki veit ég, hvað Guð hefur verið að hugsa, þegar hann skapaði annað eins óhræsi og þig. Að þú skulir ekki skammast þín, að láta þér slíkt um munn fara. Ég hef ekki hingað til borið óhróður milli fólks. Það veiztu, og hana- nú.“ Hún rauk á dyr og skellti á eftir sér hurðinni, svo hvein í öllu. „Það er naumast. Er hún orðin vitlaus, kerlingin?" sagði sú, er eftir var og sneri sér við. Hún leit stórum augum á Þorstein, og auðséð var, að henni líkaði miður að hann skyldi hafa orðið áheyrandi að samtalinu. Hún forðaðist að líta til hans, en fór strax að laga á könnuna. Kaffið var óðara komið á borðið, og hann hlakkaði til að drekka það. En rétt í þessu kom ljósmóðirin fram, opnaði dyrnar með hægð og gæðist inn fyrir. „Ég rann á þessa ilmandi góðu kaffilykt. Vonandi hefur húsbóndinn ekki á móti því að ég drekki með honum.“ „Langt frá því,“ mælti Þorsteinn. „Gerðu svo vel.“ Og hann dró fram stól handa henni. En nágrannakonunni þótti sér misboðið, og hún fór út úr eldhúsinu í fússi. „Hvað er að henni? Af hverju fær hún sér ekki sopa með okkur?“ spurði yfirsetukonan. „Sjálfsagt hefur hún farið á eftir stöllu sinni, annað hvort til að sleikja úr henni fýluna eða halda áfram að rífast,“ ansaði hann. Rafn Jónsson höfundur þessarar nýju framhaldssögu, erfrá Einifelli í Stafholtstungum, Borgarfirði, en býrnú í Borgarnesi. Hann hefur starfað hjá Kaupfélaginu, m.a. við mjólk- ureftirlit. Rafn rekur œttir sínar í Húsafellsætt og Deild- artunguœtt, auk skyldleika við Thoroddsena. Hann er m.a. skyldur Guðmundi Gíslasyni Hagalín. 358 Heima er bezt Heima er bezt 359

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.