Heima er bezt - 01.11.1984, Blaðsíða 10
ARNGRÍMUR SIGURÐSSON:
KELTNESKT
TÍMATAL
Helstu dagsetningar
Keltneska árið byrjaði 1. nóvember. Þetta upphaf nefndist
Samhain eða Samain. Þá var öllum hindrunum milli manns og
hins yfirnáttúrulega svipt burt. í Skotlandi varð þessi dagur síðar
11. nóvember. Fyrsti mánuður vetrarins nefndist Samon.
Hinn 1. febrúar (síðar 2. febr.) nefndist Imbolc. Þessi tímamót
voru einkum bundin frjósemidýrkun. Þá hófst vorið. í kristni var
þessi hátíðisdagur kenndur við heilaga Birgittu (St. Brigid).
Fyrsti mánuður sumarsins nefndist Giamon. Hann hófst 1. maí
og var hátíðlega haldinn. Hátíðin nefndist Beltine eða Beltaine
(síðar 15. maí). Þessi tímamót voru hátíð bjartsýninnar en um leið
voru þau helguð frjósemi og hækkandi sól. Bál voru kveikt og á
milli þeirra voru reknir nautgripir til að vernda þá fyrir sjúkdóm-
um, en fólk dansaði sólarsinnis eða réttsælis í kringum eldana.
Þessum athöfnum var stýrt af drúídum (Keltaprestum).
Hinn 1. ágúst (hélst óbreyttur) nefndist Lugnasadh. Þessi hátíð
var helguð keltneska guðinum Lugus, Lugh á írsku. Nafn hans
kemur nú einungis fram í örnefnum eins og Lyons, Leyden,
Lug(U)dunum sem síðar varð að London, og Luguvallium sem nú
heitir Carlisle. Eitt af viðurnefnum Lughs var hinn fjölleikni enda
gat hann brugðið ýmsu fyrir sig. Lugh minnir óneitanlega á ásinn
Loka.
0 Af ofangreindum dagsetningum sést að þessar fornu hátíðir
Kelta tóku lítio mið af tímatali sem byggist á sólstöðum og jafn-
dægrum vorra tíma.
330 Heima er bezt