Heima er bezt - 01.11.1984, Blaðsíða 25
KJARTAN STEFÁNSSON
(K Keen)
Boðskort ínn í Himnaríki
Gamansaga frá Hjalteyri
Höfundur þessarar
sögu kynntist
Hjalteyri í barn-
æsku. Hann hefur
sjálfur teiknað
myndirnar sem
fylgja. Kjartan
Stefánsson birtir
stundum efni und-
ir höfundarnafn-
inu K. Keen.
Skipið var á leið sinni inn lognmildan
fjörðinn. Þungur skriður þess sendi
bógöldu sína frá stefninu og alla leið
upp i fjörubogann í litla sjávarþorp-
inu úti með firðinum. Sendlingar ráku
upp tíst og hoppuðu lengra upp í
fjörusandinn um leið og fyrsta aldan
ónáðaði þá við miðdagsmatinn
þeirra....
Raunar var það svo að fátt var til að
trufla hið venjubundna líf þorpsins.
Það var róið til fiskjar, brædd síld í
verksmiðjunni eða þá að hún var
söltuð. Þegar bátarnir komu að landi
var gert að fiskinum og bátarnir spil-
aðir upp á land. Allir unnu sín árs-
tíðabundnu verk. Jafnvel börnin
höfðu reglu á leikjum sínum eftir
veðri og mánuðum.
Nokkrir drengir sátu niðri í fjöru.
Þeir voru að lesta báta sína með síld.
Síldin var steinar, sem þeir máluðu
rauða og dreifðu hingað og þangað
um fjöruna. Þeir litu upp úr verki
sínu, þegar þeir heyrðu þungar drun-
ur í trukknum sem kom niður bratta
brekkuna. Af og til sprengdi vélin
aftur úr sér og skotdrunur hváðu við á
eyrinni.
„Herinn er kominn! Herinn er
kominn“, kallaði einn af eldri drengj-
unum sem hafði setið á símstöðvar-
tröppunum. Stóri yfirbyggði GMC-
trukkurinn hossaðist uppá hóteltúnið.
Drengirnir í fjörunni hlupu af stað til
að sjá herinn og stórútgerðin þeirra lá
í fjörunni á hliðinni. Útgerðarmenn-
irnir voru farnir.
Eldri drengirnir höfðu sagt þeim
yngri, að það kæmi her frá Akureyri
og nú var það að koma í ljós. Reyndar
höfðu þeir ekki minnst á að þetta væri
Hjálpræðisher, og þegar þeir yngri
vildu ekki trúa og sögðu að þeir væru í
búningum, — hermannabúningum.
Þeir yngri vissu að trukkurinn var
frá hernum. Þeir voru því nokkuð
vissir í þvi, að stóru strákarnir höfðu
sagt þeim satt. Þarna var trukkurinn
eins og ljóslifandi á túninu og út um
allar dyr komu hermenn og herkonur.
Heima er bezt 345