Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Page 11

Heima er bezt - 01.07.1986, Page 11
Skagfirðingar í Osló 1984: Andrés Björnsson, fyrrum útvarpsstjóri oy góðvinur Sigurðar, sem gestur á heimili lians i Osló 1984. MYND: OHT. þangað 1960; hún var þar enn þegar ég kom aftur 14 árum síðar og sú sama og hún áður var. Við höfum því verið samstarfsmenn alls í 17 ár. Þegar ég hugsa til samstarfs- manna minna á löngum starfsferli er mér hún efst í huga. Auður er mjög greind kona og sérstaklega fljót að átta sig á öllum vandamálum, flínk í starfi sínu og þekking hennar á norskum málum og staðháttum frábær. Þó met ég allra mest trúnað hennar og trygglyndi og hvað mjög hún lagði sig fram í samstarfi okkar. Ég geri Auði hér að umræðuefni en vil samt taka það fram, að ég stend í mikilli þakkarskuld við annað starfsfólk mitt við sendiráð íslands í Osló, Elínu Finborud og Börk Karlsson, samstarf við þau var eins gott og á varð kosið, en mun styttra en samstarf okkar Auðar. í Osló áttum við fyrir gamla vini og samband við þá tókst á ný. Þá var Tönnes Andenæs ennþá á lífi. Dvöl okkar í Noregi varð því ánægjulegri en ella þrátt fyrir fjarveru barna, en sérstaklega þýðingarmikið fyrir okkur að elsta dóttir okkar, Þórunn, gift Jakobi Kielland, var þar enn búsett og börn þeirra þrjú. Um áramótin 1985-1986 var ég skipaður ambassador, líklega var það viðurkenning fyrir störf mín í utanríkis- þjónustunni. Ég notaði titilinn þó ekki, því að sendiherra var í Osló á sama tíma. Sumarið 1986 lét ég síðan af störfum og flutti alkominn heim. GÓÐ LJÓÐ OG GRINDARSNÚNINGSVÍSUR / upphafi þessa viðtals er Sigurður Hafstað kallaður sendiherra Ijóðsins. Margir hafa dóiðst að smekkvísi hans og þekkingu i þeim efnum, og Friðrik Þórðarson háskólakennari i Osló fœrir rök að því í dýrlegri af- mœlisgrein um Sigurð sjötugan í Þjóðviljanum 27. júlí 1986, að líklega hafi fá sendiráð í heimi verið þess umkomin að veita hetri þjónustu, en þegar Sigurður miðlaði af nœgtum sínum i skáldskap. í samtölum okkar Sigurðar í Osló, á Tjörn í Svarfaðardal og i Revkjavík har Ijóðlistina oft á góma. Ég hað hann að nefna uppáhaldsskáldin sin, spurði hvort hann orti sjálfur eða vœri persóna i hókum. Eins og ég gat um hér að framan vöndumst við systkinin snemma á ljóð og sögur. Síðan alltaf haft gaman af ljóðum og lesið þau og lært. Þegar ég byrjaði í skóla hef ég líklega haft mestar mætur á Davíð Stefánssyni, en hann entist mér ekki lengi. Seinna tók Einar Benediktsson við og hann mat ég mest af öllum skáldum í nokkur ár. En smekkur manns breytist með tímanum og maður breytist sjálfur og skiln- ingur manns á skáldskapnum líka, það koma nýir menn með nýjar hugmyndir og önnur viðhorf og knýja dyra. Ég kynntist Steini Steinarr og Jóni Helgasyni og þeir höfðu báðir mikil áhrif á mig. Steini kynntist ég á síðustu æviárum hans, meðan ég var forsetaritari, og hann kom daglega til mín. þegar ég snæddi þá á Hressingarskálanum. Jón hafði ég nánara samband við. Árni bróðir minn sem var í verkfræðinámi í Kaupmannahöfn á stríðsárunum var eins og margir íslenskir stúdentar tíður gestur á heimili þeirra Jóns Helgasonar og Þórunnar konu hans, og urðu þeir Magnús Kjartansson, síðar ritstjóri og ráðherra, sem þar var líka, heimagangar hjá þeim hjónum. Árni hefur æ síðan verið aðdáandi og mikill heimilisvinur Jóns. Síðar fóru á þessar slóðir til náms systur mínar, Steinunn, Guð- björg og Valgerður, og svo kom, að Jón leit á fjölskyldu mína sem skyldmenni sín, það sagði hann mér einu sinni sjálfur. Hús hans og Þórunnar Björnsdóttur stóð okkur opið í fjölda ára. það er gott að hafa átt þess kost að kynnast slíku fólki og við eigum vafalaust engum vandalausum eins mikið að þakka og þessum hjónum. Kynni okkar Jóns hófust 1951. þá hitti ég hann í fyrsta skipti á leið minni frá Rússlandi heim til íslands. Eftir það lágu leiðir okkar oft saman. Hann sendi mér að jafnaði það sem hann birti eftir sig eða gaf út, og meira að segja ýmis- legt sem ekki hefur komið á prent. Þegar hann gisti hjá mér fyrir 10 árum spurði ég hann hvort hann ætti margt óprentað af ljóðum. Þá svaraði hann, ef til vill í spaugi, að það væru hundrað kvæði. Það getur nú ekki talist til yrkinga, þótt ég hafi stundum sett saman hringhendur mér til dægrastyttingar þegar ég fór milli landa. Fáir hafa heyrt þær og ég hef gleymt þeim flestum sem betur fer. Hins vegar kannast sumir við stökur sem við Bjarni Guðmundsson blaðafulltrúi lékum okkur að um tíma, það var fáránleikahúmor sem var fólginn í því að stæla með ýmsu móti vísu eftir Lárus Salómonsson, glímumeistara og skáld. Sú vísa er svona: Hcela tinda húsdýrin hafa ómvndarhúning þeirra yndis yfirskin er með grindarsnúning. Heima er bezl 25 5

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.