Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Síða 17

Heima er bezt - 01.07.1986, Síða 17
heldur blóði. I trúnaðarbréfum, sem hún ritaði um þessar mundir og fyrst voru birt fyrir nokkrum áratugum, játar hún, að sagan sé þeirra, í raun réttri sönn frásögn um samband þeirra, eins og því vék við frá hennar bæjardyr- um. Von var, að Björnson reiddist slíkri bersögli og ónær- gætni, enda trylltist hann. Skömmu eftir að sagan kom út, skrifar frú Thoresen frá Kaupmannahöfn, að skáldið sé orðið „svarinn andstæðingur“ hennar og gangi nú manna á milli og ljóstri upp ýmsu því, sem hann hefur orðið vísari, eftir að hafa átt trúnað hennar í tíu ár. — Upp frá þessu var hann alltaf á varðbergi gagnvart henni, þó ekki yrðu full vinslit. Frú Thoresen hafði farið til Noregs með þeim ásetningi að gerast norsk skáldkona, en hér hlutu stórskáldin að skyggja á hana. Hún gaf út fjölda bóka, leikrit, ljóð og sögur, og mun nú flest gleymt nema Myndir frá vestur- strönd Noregs og Myndir frá landi miðnætursólarinnar. Þar sækir hún efnið til Norður-Noregs og lagði á sig ótrú- legt erfiði til að kynnast daglegu lífi þar um slóðir. Með þessum þjóðlífsmyndum, sem komu út á árunum 1884- 1886 hlaut hún loks alntenna viðurkenningu á Norður- löndum. en bréfasafn hennar, sem kom út fyrir nokkrum áratugum, mun lengst halda nafni hennar á lofti. Síðari hluta ævi átti hún jafnan við fátækt að búa. Syni sína báða missti hún úr berklum, er þeir voru að hefja lífsstarf sitt, eftir að hafa hlotið ágæta menntun. Dætur hennar giftust mestu merkismönnum, og eru ættir frá þeim komnar. Um nokkurra ára skeið átti hún heimili í Þýzka- landi, Sviss og Ítalíu, vann þar að ritstörfum og hélt heimili fyrir soninn Axel, sem nam verkfræði, þann, sem hún nefndi oft „litla bróður Benjamín“. — Síðustu 20 ár ævinnar átti hún heima í Höfn. Árið 1856 skrifaði hún í bréfi til vinkonu: „Ég á óskir, sem aldrei geta rætzt; brostnar vonir; vaxandi efasemdir; kröfur, sem kalla mig æ; en það er orðið langt síðan sálar- friður hefur kvatt dyra hjá mér, og hans má ég enn lengi bíða; um það hef ég öruggt hugboð.“ — Henni hlotnaðist hann löngu síðar, og ber það mannkostum hennar fagurt vitni. Á áttræðisafmælinu 3. júní 1899 var henni sýnd margs konar virðing. Skáldastyrks hafði hún þá notið um nokkur ár. Mikið hóf var haldið henni til heiðurs, og sjálfsagt hafa hennar gömlu augu glaðzt við að líta þá miklu prosessíu pótentáta lista og vísinda, sem heiðraði hana með návist sinni. Frændþjóðirnar þrjár veittu henni heiðursmerki úr gulli (Fortjenstmedaljen). — Hún ofmat aldrei skáldgáfu sína, og Norðurlönd hafa eignazt meiri skáldkonur en hana, en hún mun einn fjölþættasti og merkilegasti per- sónuleiki þeirra kvenna, sent sett hafa svip sinn á andlegt líf á Norðurlöndum. Um hennar daga hafði engin kona jafn- náin kvnni af merkisberum norrænnar menningar og hún. Það hefur verið um hana sagt, að hún hafi „verið á brúðarklæðum ævina alla, ímynd kvenlegs yndisþokka og ásthneigðar". — Þegar hún var nokkrum mánuðum yfir áttrætt, sendi Björnson henni ljósmynd af sér sunnan úr löndum. Aftan á hana skrifaði hann ljóð og lýsir þar skap- gerð hennar fagurlega, segir. að hamslausar ástríður henn- ar, sárar og sætar, hafi með aldri og þroska umbreytzt í vísdóm, góðvild, fegurð: Fra smerteskriket til elskovsflammen til visdom blev det, til godhed blev det, til skönhed blev det, altsammen! Nokkrum mánuðum síðar höfðu Björnsonshjónin við- dvöl í Höfn á heimleið til Noregs. Þau óku auðvitað til frú Thoresen, sem tók þeim með hlýju, en báðum þótti skrýtið, að hún minntist ekki aukateknu orði á erindið, sem Björn- son hafði ort til hennar. Svo kom að kveðjustundinni. Frú Karólína var komin af stað niður þrepin, er frú Thoresen kippir Björnson hvatlega inn fyrir dyrastafinn aftur eitt andartak og hvíslar í eyra honum: „Takk fyrir ljóðið!“ Öll þúsundljósin á altari þessarar konusálar loguðu enn! Þau hjónin kímdu oft að þessum atburði og þótti nokkurs um vert, hve kvenlegir eiginleikar voru fylgispakir gömlu konunni. að eldar afbrýði og ásthneigðar skyldu loga svo glatt, að hún gerði sér í hugarlund, að Björnson ætti enn leyndarmál með henni á laun við eiginkonuna. Þegar frú Jakobína Thomsen endursendi frú Thoresen bréf þau, sem farið höfðu á milli hennar og Gríms, ritaði hún ekkjunni þakkarbréf, sem ber vitni um hjartahlýju og töfrandi skapgerð. Þarsegir hún m.a.: „Með angurværum huga las ég þau, því að þau köll- uðu fram í hugskotið minningar frá þeim tíma, er ég enn stóð mitt í lífsins hörðu raun og vissi í sannleika ekki, hvern enda hún mundi fá. Nú erstríðinu lokið! Ég er nú á áttræðasta árinu, og gröfin bíður hins göngumóða ferðalangs.... Dr. Grímur Thomsen var í sannleika stórgáfaður og eftir því sérstæður persónuleiki. Æskuhrifning mín af honum var mikil, kæra frú! Og mér veittist sú hamingja, að minn ágæti eiginmaður tók fullan þátt í aðdáun minni, er hann kynntist honum. Og nú vil ég kveðja yður! Drottinn gefi yður sól og frið á ævikvöldi yðar. Með virðingarfyllstu og hjartanlegustu kveðjum. Yðar Magdalene Thoresen. “ Lengi hafði hún óttazt, að hún héldi ekki andlegum kröftum til hinztu elli. En hún þurfti ekki að taka undir með fornvininum Björnson: „kan ej længer vejde mine tankers flok“. Hún hélt óskertum sálarkröftum til loka- dægurs. Síðari hluta marzmánaðar árið 1903 er hún venju fremur máttvana, svo að hún fer í rúmið, og laugardaginn 28. sama mánaðar fjarar líf hennar út í hljóðlátri ró, eins og þegar sólbjartur dagur hverfur inn í húmið. Hún taldi sig — þrátt fyrir allt — hafa lifað sólbjartan ævidag. Heimaerbezt 261

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.