Heima er bezt - 01.07.1986, Qupperneq 18
Sérstök grein í íslenskum bókmenntum:
Grindarsnúningsvísur
Sigurður Hafstað er eitt grindarsnúnings-
skáldanna. Örfáir aðilar hafa náð valdi á
þessum rímþrautum, þar sem innrímið í
hringhendunum er alltaf eins. Þar eru konur
kenndar við „hælatinda“ og hentugt er að
fjalla um „kindarúning" og „yndirbúning“,
formsins vegna.
Upphafsmaður grindarsnúningsvísna, Lárus Salómons-
son, hefur tæplega gert sér grein fyrir því sögulega hlut-
verki sínu að marka og móta þar með sjálfstæða bók-
menntastefnu. í Ijóðakveri sem hann gaf út ungur maður
1930 er hringhenda, með afdrifaríkri kvenkenningu í
fyrstu línu og stefnuskránni sjálfri í þeirri síðustu:
Hælatinda húsdýrin
hafa ómyndarbúning.
Þeirra yndis yfirskin
er með grindarsnúning.
Samkvæmt ströngustu reglum formsins í þessari bók-
menntagrein eru síðustu tvær vísurnar hér á undan samt
falsaðar og ólögmætar. Orðið grindarsnúningur verður
nefnilega að koma fyrir í hverri vísu.
Hér er svo rétt kveðin afmælisvísa sem Sigurður Hafstað
sendi Bjarna Guðmundssyni sextugum:
Allt í lyndi lífs á tind
og lokið kindarúning.
Með Ijúfri hind og laus við synd
leiktu nu grindarsnúning.
Guðrún Árnadóttir frá Oddstöðum tók líka þátt í því að
yrkja grindarsnúningsvísur:
Þá var yndi, þá var synd
þurfti grindarsnúning.
Hælatinda hrokalind
hataði kindarúning.
Seinna höfðu viðhorfin breyst og þá kvað Guðrún:
Bjarni Guðmundsson blaðafulltrúi og Sigurður Haf-
stað sendiráðunautur gerðu sér að íþrótt að nýta þessa
stöku sem fyrirmynd að skringilegum hringhendum.
Sigurður er Skagfirðingur (,,undan Tindastóli") og fór
eitt sinn á ráðstefnu erlendis. Barst honum þá þetta
símskeyti í dulmálslykli utanríkisþjónustunnar, frá Bjarna
í ráðuneytinu í Reykjavík:
Stóli tinda áður und
iðkaði kindarúning,
fer nú blind' með franska hrund
fullur í grindarsnúning.
Sigurður svaraði svona:
Allt í lyndi lék um stund
uns lostug grindarsnúnings
hælatindagleðigrund
mig glapti án yndirbúnings.
Snúnings þindarlausum leik
lauk í synd og trega.
Hælatindabikkjan bleik
brá mér skyndilega.
Bjarni kvað enn:
Vöktu girndir víðfrægar,
voru syndum gerspilltar,
hömpuðu yndi á hótelbar
hælatindabikkjurnar.
Tæmt var yndi, töpuð synd,
tregt um grindarsnúning.
Hælatinda hryggðarmynd
hvarf að kindarúning.
------------- ---------------------------
SKYRINGAR:
Orðfæri grindarsnúningsvísna getur reynst byrjendum
strembið til skilnings. Sigurður Hafstað leitaði á sínum tíma
til lögmæts skýranda, Lárusar Salómonssonar, sem hafði
óvart hrundið þessum kveðskap af stað. Niðurstöður eru
þessar:
Hælatindar = háir hælar á kvenskóm.
Hælatinda-húsdýr = kvenfólk sem gengur á háhæluð-
um skóm.
Yndis yfirskin = uppáhalds látalæti, blekkingar. Hér er
gefið í skyn, að konum sé almennt ekki treystandi, en
helsta töfrabragð kvenna sé grindarsnúningur.
Grindarsnúningur = mjaðmavagg, það að vagga sér
í lendunum.
Ljóðaþók Lárusar með fyrstu grindarsnúningsvísunni er
afar fágæt, þó til á Landsbókasafni. Sögur herma að
ákveðinn ættingi skáldsins hafi ekki verið nógu ánægður
með kveðskapinn og keypt upplagið.
262 Heima er bezt