Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Page 21

Heima er bezt - 01.07.1986, Page 21
börnin sín „stafa“, sem kallað var, þau urðu flest fljótt læs, en þú Sigga litla, varst nú ansi löt. Það lagaðist, þegar mamma þín Valgerður, sagði eitt sinn við þig í gamansömum tón: „Nú skaltu taka letina, Sigga mín, binda stein við hana og sökkva henni niður í Lómatjörnina.“ Þetta fannst þér svo skemmtilegt og alveg tilvalið. Eftir þetta fórstu alltaf á hverjum degi til ömmu þinnar, enda varstu fljótt læs, sex ára, minnir mig. Guðrún mín dó í júlí 1924. Öllum varð hún harmdauði, þessi góða og greinda kona. Nú átti Valgerður dóttir hennar mig, í nokkur ár, þar til þú, Sigga litla, baðst um að fá að eiga mig. Ég varð nú glöð, þegar þú fékkst Baldvin Kristinsson smið, til að laga mig til, það veitti ekki af því. Hann bætti nýjum fjölum í skúffurnar mín- ar, þar sem þurfti, málaði mig hvíta og setti gyllt höld á þær. Já, þá var ég nú fín og falleg. Svo áttir þú mig lengi, fórst með mig suður á land og hvað eina. Það var þegar þú varst ung og ógift, en þegar þú giftist honum Helga Schiöth, þá geymdi ég alltaf barna- fötin fyrir þig. Já, ég hef nú séð sitt af hvoru um dagana, en nú er ég komin í eigu Valgerðar, dóttur þinnar, sem býr á Rifkelsstöðum í Eyjafirði. Skrítið, nú er ég á elliárum mínum komin í eigu Valgerðar — og handa Valgerði var ég smíðuð í fyrstunni. Ég var orðin ellimóð og fína máln- ingin víða molnuð af mér, þegar ég komst í eigu Valgerðar III, en maður- inn hennar, hann Gunnar Jónasson, er svo mikill smiður, hann lagaði mig og setti í mig nýtt bak, það var nú munur. Og nú fékk ég aftur á ný að geyma barnaföt, það þótti mér gam- an. Valgerður III er mér góð og nota- leg. hún gætir þess að vel fari um mig. Mér þykir vænt um. þegar þú kemur og strýkur hendi yfir mig, já, rnargar mjúkar konuhendur hafa farið urn mig höndum um æfina, en ég er líka viss um, að hún Valgerður I. sú sem átti mig í upphafi, er ánægð með það, hvernig fer um mig — og að ég hef alltaf verið hjá góðu fólki. Einhvern- tíma líður að lokum fyrir mér, eins og öllum dauðlegum hlutum.“ HALLGRÍMUR HELGASON, Droplaugarstöðum MINNINGAR ÚR FELLUM III Fj allasels-Gunna (draumur) Nokkuð jafn snemma og ég skynjaði þá tilveru sem kring- um mig er, hefur mig dreymí. Þetta hefur þó ágerzt eftir 55-60 ára aldur, og nú dreymir mig flestar nætur. Hingað til hefi ég aldrei skrifað upp drauma mína, enda hef ég sjaldnast getað ráðið þá. Þó hefur mig oft dreymt fyrir gestakomum, og sagt heimafólki draum minn að morgni. Aðfaranótt fyrsta vetrardags, 22. október 1977, dreymdi mig, að ég var að ganga upp stigana hér á Droplaugar- stöðum. Þeir eru tvískiptir af litlum palli, sem gengið er inn á um útidyr. Þegar ég kem upp á pallinn, verð ég var við hreyfingu úti á tröppunum (án þess þó að sjá það gegnum glerið á hurðinni). Þá er komið við hurðina, greinilega, en þó fannst mér ekki vera drepið á dyr. Ég hafði þá mundað fótinn til að stíga upp í neðstu rimina í efra stiganum, en hætti við það, og ríf opna útihurðina, með snöggu handbragði. Sá ég þá standa á tröppunum manneskju, rétt í meðallagi háa og þéttvaxna. Sýnin varaði ekki nema sekúndubrot. Sá ég þó greinilega fætur hennar, dálítið upp fyrir hné, um leið og hún tekur með báðum höndum í pilsið, sem var blátt að lit eða gráblátt (upplitað) og reigir sig snöggt dálítið aft- urábak, en við það kom sokkafaldurinn í ljós, með ljósleita eða hvíta tölu utanvert á hvorum sokk. Ekki lék vafi á, að þetta voru konufætur, dálítið þreknir, og sá niður á ristina. Hún var í yfirhöfn eða slopp, er náði rétt ofan fyrir mjaðmir, virtist úr þykku, útlendu efni frekar en ull (vaðmáli), grænn að lit, orðinn velktur fljótt á litið. Á fótunum fannst mér vera þunnir sauðskinnsskór, heima- gerðir, með þvengjabindingu. Ekki sá ég meira af verunni, en glaðvaknaði við drauminn. Daginn eftir, kl. 3-4 kvöddu tveir Jökuldæiingar dyra og báðu um að komast í síma, þeir Eiríkur Sigfússon á Gili og Kjartan Sigurðsson í Teigaseli. Til skýringar má geta þess, að bein Guðrúnar sálugu Magnúsdóttur frá Fjallsseli (Fellum), sem varð úti veturinn 1877-78 á leið að Hnefilsdal, fundust í landi Teigasels 1916. Var það Þorleifur bóndi þar, sem beinin fann, en gleymdi að merkja staðinn, svo hann týndist og fannst ekki aftur fyrr en 1972. (Sjá Þjóðsögur Sigfúsar Sigfússonar, 3. bindi (1. útg.), bls. 259 og Múlaþing 5. árg. 1970, bls. 161-162). Heimaerbezt 265

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.