Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Page 23

Heima er bezt - 01.07.1986, Page 23
0 Voru þarna ,,annarleg og óheillavœnleg fyrirbœri(< að verki? ri r i i h i Svartárkot 1945, 9 Hvers vegna fœldist Faxi við Dysjarhjallann? <»g eidstæði í rústum sandmúia. að vera að bera farangur okkar, annar var Mósi Sigurðar bróður hans. vilj- ugur brokkari fremur smár en ólseig- ur og röskur reiðhestur. Þriðji var Stjarni Páls í Engidal, sá var brún- stjörnóttur prýðilegur ferðahestur, en hafði mjög lítið verið notaður þetta vor. Þennan dag var milt veður en sól- skinslaust, austanátt og skýjað. Þegar við komum að Svartárkoti var að byrja að rigna. Auðvitað var okkur boðið kaffi eins og öllum. sem í Svartárkot koma. Við þáðum það, settum hestana inn í hús og töldum ágætt að láta regnskúrina ganga vfir á meðan við drykkjum kaffið, en hér kom engin venjuleg sólstöðuskúr, heldur varð þarna stórrigning í þrjá til fjóra tíma. Þann tíma allan sátum við í góðu yfirlæti í Svartárkoti, höfðum drukkið mikið kaffi og borðað silung úr Svartárvatni, sem er hið mesta lostæti, þegar við lögðum af stað á ný um miðnættisbil. Regnið var þá hætt, en vindáttin gengin til norðausturs með þoku og úða öðru hvoru. milt veður en mjög þungskýjað. Frá Svartárkoti er fyrst yfir hraun að fara, við fórum hægt og vorum hinir ánægðustu, töldum jafngott að ferðast á nótt sem degi á þessari árstíð og þó hér væri þoka og súld, gat verið bjart veður suður við jökla og Veður- stofan hafði spáð léttskýjuðu með morgni. Við áðum smástund á Rétt- artorfu, sem er gott hestahaglendi rétt sunnan við hraunið, og nú fyrst vor- um við komnir á hin eiginlegu Bárð- ardalsöræfi. Sú var tíð að hér var heilt hérað byggðra býla, fáar sagnir eru til um þá byggð, en þó er ein til, saga Hrana Hrings Egilssonar Bárðarsonar á Lundarbrekku. Þar segir, meðal ann- ars, að Helgi hét maður og var nefnd- ur Krókur, hann sigldi til fslands og kom skipi sínu í Skjálfandafljótsósa. Hann var í frændsemi við Egi! á Lundarbrekku og gaf Egill honum land að nema suður með Skjálfanda- fljóti. Þar reisti hann sér bæ og nefndi að Helgastöðum, en dalinn nefndi hann Króksdal, nú er hann kallaður Krókdalur. Glöggt sér fyrir rústum á Helgastöðum og víðar á Krókdal. Suður frá Réttartorfu gengur Hafurs- staðahlíð, en undir henni stóð býlið Hafursstaðir. Frá hlíðinni að fljótinu er allbreitt gróðurlendi, Hafursstaða- eyrar, suður frá þeim gnæfir Sandmúli við himinn, norðan undir honum var býlið Sandmúli, sjást þar rústir glöggt. Milli Sandmúla og Hafursstaðahlíðar er Sandmúladalur en suðvestan Sandmúlans er Krossárgil, ferlegt klettagil, þar lengra suðvestur er Krókdalur. Vel gæti það hafa verið við Kross- árgil, sem þeir handsömuðu sauðina forðum, Vakur sauðamaður Helga- Króks og ójafnaðarmaðurinn Sigfús Vopnfirðingur. Átti Helgi sauðina, nema Vakur átti sjálfur þann vænsta. Heimtaði Sigfús sauðinn af Vakri, en hann vildi ekki lausan láta, greip þá Sigfús öxi sína og hjó Vakur bana- högg. En er Hrani kom þar og spurði þessi tíðindi, ámælti hann Sigfúsi harðlega, fór svo að þeir börðust og vóg Hrani þar Sigfús. Á næsta vori kom svo bróðir Sigfúsar, Hróaldur Galti, til bróðurhefnda að Hrana, hann var þá enn með Helga frænda sínum á Helgastöðum og var það að skógarhöggi nyrst í Smiðjuskógi. Hróaldur Galti reið vestur yfir Skjálfandafljót hjá Hrafnabjörgum og suður með því og fundust þeir Hrani við stóran hól gegnt mynni Krossárgils. Áttu þeir þar harða orr- ustu og felldu Hrani og menn hans Galta og fylgdarlið hans allt og dysj- uðu þar í hólnum. Heitir hann síðan Galthóll. Munnmæli herma að eitt sinn hafi kirkja verið á Helgastöðum og að átj- án bæir hafi átt þangað kirkjusókn. Þó hæpið sé að taka tölur alvarlega í munnmælum er hitt víst, að á þessum slóðum bjó fólk. sem átti sína sögu, háði hér sína lífsbaráttu, lifði og dó. Bein tveggja þeirra, sem hér dóu, liggja nú ber á uppblásnum auðnum gnúin sandi og veðrum. Önnur beinagrindin er í Bálabrekku á Krók- dal austanverðum, nær því á móti 0 Hverra beinagrindur voru að veðrast í Bálabrekku og á Dysjarhjalla? Heimaerbezt 267

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.