Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Qupperneq 48

Heima er bezt - 01.07.1986, Qupperneq 48
UMSJÓN: Björn Egilsson VISNAÞATTUR Skammavísur Björn Fr. Schram bjó á Hofi á Höfða- strönd 1896 til 1905. Hann var bæði smiður og skáld. Eitt sinn hitti Björn mann í Hofsósbúð, er Evert hét. Það gæti hafa verið Evert Evertsson, síðast á Nöf hjá Hofsósi. Evert kvað til Björns: Á eg að sýna ykkur mann eða svfn með þyrnum. Skrítinn um trýni og talandann, tveimur sýnir glyrnum. Björn svaraði: Evert slær í ofboði, allar klær út þenjandi. Laus við æru á lífsvelli, líkur gæru í hundskjafti. Þorsteinn Jónsson bóndi á Gili í Svartárdal orti um skagfirzkan bónda, er hann taldi að hefði gert sér grand: Ærinn galla og girndafans, grær í skalla þessa manns. Fær að malla hróður hans, í hrærudalli andskotans. Fallegar vísur Hrefna dóttir séra Hallgríms í Glaum- bæ lá í Sjúkrahúsi Sauðárkróks og andaðist þar 10 ára gömul. Faðir hennar kom oft í heimsókn og eitt sinn kvað hún: Elsku pabbi oft eg finn, að þín blæða sárin. Hérna er litli lófinn minn, eg legg hann ofan á tárin. Elínborg dóttir Péturs prófasts á Víðivöllum, var lengi prestsfrú á Mæli- felli, gift séra Sigurði Arnþórssyni. Þegar frú Elínborg fór frá Mælifelli kvað hún: Burt mig flytja forlögin, en frá þér aldrei huga minn. Kveð eg líka legstað þinn, liðni hjartans vinurinn. Meinlausar vísur Eiríkur Einarsson frá Villinganesi fluttist til Akureyrar frá Lýtingsstöðum 1937. Hann var áhugasamur Sjálf- stæðismaður og starfaði fyrir flokkinn á Akureyri. Það mun hafa verið við próf- kosningar í Sjálfstæðisflokknum fyrir bæjarstjórnarkosningar 1946, að Eirík- ur var kosinn í þriðja sæti á lista, en flokksstjórn færði hann í fjórða sæti, sem var vonlaust. Þá kvað Eiríkur: Áður hélt eg upp um skeið, átti pólitízka drauma. Nú er eg á niðurleið, náklæði mér vinir sauma. Eftir þetta var Eiríkur í einhverjum trúnaðarstörfum fyrir flokk sinn. Þá kvað Sigurður Kristófersson: Úr fínum efnum flokkurinn, fötin beztu vinum saumar. Nú berðu ekki náklæðin, nú eru að rætast gamlir draumar. Laust eftir 1920 voru þeir saman við heyskap í Héraðsdal, Eiríkur Einarsson og Emil Petersen. Eiríkur var skerpu- maður við alla vinnu og svo mikill sláttumaður, að sagt var, að tvær stúlkur hefðu nóg með, að raka á eftir honum. Emil kvað: Mikið ærist Eiríkur, eru færur breiðar. Hristir lærin hraðfengur, hefur tvær til reiðar. Eiríkur svaraði: Emil knár sig frægja fann, færur skára breiðar. Fyrr á árum hefur hann, haft þær þrjár til reiðar. Orðið færa saman og spilda á teig var ekki notað hér. Emil kom með það að norðan. Símon Dalaskáld birti framtal sitt í Ijóði: Tólf á eg hross og átján ær, er mitt framtal svona. Mín er líka mjúk um lær, Margrét orðin kona. Símon gerði vísu um tvær fallegar heimasætur, aðra í Húnaþingi og hina í Skagafirði. Sigurbjörg var frá Holti í Svínadal. Sigurbjörg í Holti hrein, hugnast sveinum glöðum. Kveikir bái í köldum stein, Kristín á Hofsstöðum. Eftirfarandi tvær vísur gætu verið eftir Símon Dalaskáld: Sporum beinum snilldar snýr, snót að feitum arði. Borin Sveini Hildur hýr, hress á Geitaskarði. Fangar skærast freyju hrós, fríð gullhringa rúna. Áður mætust meyja rós mjúk í Þingi Húna. Óvíst er um höfund næstu vísu. Hildur vakti huga minn, hana á eg starði. Ó, ef hann væri uppnuminn, hann Árni á Geitaskarði. 292 Heimu er bezl

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.