Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.11.1951, Qupperneq 9

Æskan - 01.11.1951, Qupperneq 9
Jólablað Æskunnar 1951 Sögukafli þessi er tekinn úr nýrri sögu eftir Ragnheiði ]ónsdóttur, sem er í þann veginn að koma út, og heitir í Glaðheimum. -— Heldur höfundur þar áfram að segja frá Herái og Helgu, en þau munu góðkunningjar margra ykkkar. Seinasti dagurinn í skólanum fyrir jólafriið. Engin kennsla, ekkert nenia söngur og sögur, jólasálmar og jólasögur. Elín hefur hjálpað okkur lil að skrevta stofuna okkar með grenigreinum og mislitum pappír. Svarta taflan er ekki lengur svört. Þar er komin mynd af húsum og mörgu fólki, sem er á leið til kirkjunnar á jóladaginn. Myndin er máluð i skærum litum, nema hvað það er snjóföl á jörðinni og snjóflyksur á við og Jóladagurinn rann upp, kaldur en hjartur. Um hádegið var Grímur beðinn að fara með hestana fram að Hlið. Um morguninn hafði þeim verið hrynnt og gefið vel. Átli Grímur að skila þeim hoð- um til Jóns gamla, að liann skyldi taka hestana á hús og hey, því þeir væru ekki færir um að ganga lengur. Þegar börnin heyrðu, að liestarnir ættu að fara, hlupu þau út á lilaðið, þó að kalt væri, til þess að lcveðja jólagestina. Þarna kom Grímur norðan túnið og rak hestana á undan sér. Fyrst fór gamall, grár hestur. Börnin þekktu liann vel. Á eftir fóru tveir dökkir hestar yngri. Þegar Gráni kom heim á lilaðið, hneggjaði hann lágt eða lcumraði og leit til barnanna. „Hann er að heilsa okkur og hjóða okkur gleði- leg jól“, sagði Ingvar litli. „Ætli það“, sagði faðir þeirra. „Hann er líklega að þakka ykkur fyrir heyið og húsaskjólið.“ „Já, já“, sögðu börnin öll i einu og hlupu inn til mömmu sinnar til þess að segja henni orð föðurs þeirra. Það hlaut að vera rétt, sem hann sagði. dreif um mislit húsaþökin. Við fáum að hjóða litlu krökkunum úr fyrsta og öðrum bekk inn i stofuna til okkar, og þau horfa stórhrifin á myndina á töfl- unni og allt skrautið. Það er nokkuð þröngt inni, en það kemur ekki að sök, af því að allir eru svo stilltir og prúðir. Við syngjum alla jólasálmana, sem við kunnum, og Elín spilar undir á gítarinn. Svo segir hún okkur langa sögu af vitringunum í Austurlöndum, miklu skemmtilegri en þá i biblíusögunum. Þetta er ferða- saga og segir mest frá fjórða vitringnum, sem lagði af stað með dýrindis gjafir til þess að færa hinum nýfædda konungi. Hann var óratíma á leiðinni og lenti i miklum mannraunum og eyddi smátt og smátt öllum gjöf- unum til hjálpar nauðslöddu fólki, sem varð á vegi hans. Afi kemur og lætur okkur öll lesa með sér sög- una um fæðingu Jesú. Svo talar hann um, að það liafi hvergi verið rúm fyrir frelsarann, nema í fjár- húsjötu, og hann segir, að mennirnir haldi stöðugt áfram að útliýsa honum, þó að þeir þykist trúa á hann. — Ég liélt að frelsarinn hefði ekki fæðst nema einu sinni, segir Stebbi. Hann er aldrei feiminn. — Þið munið eftir þessum orðum Jesú: Það sem þér gerið einum mínum minnstu bræðra, það hafið þér mér gjört. — Það eru engin smáhörn látin í jötu lengur, segir Stebhi. — En það eru mörg börn i ljótum rúmum, og sum eiga engin, segir Stína. — Þarna sjáið þið, segir afi, og það er ekki nóg að halda jól og minnast fæðingar Jesú. Við verð- um líka að reyna að breyta eftir hoðum hans. Við skulum standa upp og taka undir, segir afi, þegar krakkarnir i fjórða bekk hyrja að syngja „Heims um ból“. Elín er lijá þeim, á meðan afi er lijá olckur, og nú syngur allur hópurinn, og við göngum syngjandi út úr stofunni. 109

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.