Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.11.1951, Qupperneq 28

Æskan - 01.11.1951, Qupperneq 28
Jólablað Æskunnar 1951 Saga rennilássins. Rennilásinn er nú talinn ómissandi um gervallan heim, enda er hann hið mesla þarfaþing og til margra hluta nytsamlegur. Saga þessa merkilega hlutar er í fáum orðum þessi: Fyrir rúmum 70 árum var Ameríkumaður að nafni Judgson eitt sinn að hjálpa lconu sinni við að hneppa kjól hennar að aftan. Verk þetta var það versta, sem Judgson fékkst við, og fór hann þá mikið að brjóta heilann um einhvern þægilegri út- búnað. Árangurinn var frekar lítill, en samt gaf hann verksmiðjueiganda einum í New Yorlc, sem Walker hét, hugmyndina. Walker leist vel á uppá- stungu Judgsons, og varði hann mörgum milljónum dollara til að finna rétta lausn á málinu. Rennilás sá, sem skapaðist í verksmiðju Walkers, náði aldrei útbreiðslu, enda var hann bæði mjög dýr og svo mjög ófullkominn. Árið 1908 fluttist ungur sænskur verkfræðingur til New York. Ilann hét Gideon Sundback, og var kominn vestur til að leita sér fjár og frama, en loks komst hann í verksmiðju Walkers, og fór þar að glíma við gátuna um að fullkomna rennilásinn. Loks árið 1914 var uppgötvunin fullgerð. En þá var verk- smiðja Walkers lcomin i svo miklar skuldir, að eigi var annað fyrir hendi en að loka. Nú var Sundback kosinn í stjórn fyrirtækisins og stóð nú til að fá heimseinkaleyfi á uppgötvuninni, en þá skall styrj- öldin mikla yfir og tafði allar framkvæmdir. Sund- back tókst þá að koma uppgölvuninni á framfæri við hergagnaverksmiðju eina á Englandi, og seldi hann henni réttinn til afnota fyrir 130 000 sterlings- pund. Peningarnir fóru til að hjarga verksmiðju f f f 1 i t ± f X í i i X •f i t f f ❖ t I I I t i f f I ► ♦*♦♦£♦♦*♦♦*♦ •*•**'♦ ♦*♦♦'*♦♦*♦♦*♦♦£♦♦*♦♦*■♦ ♦J* Verðlaunaþraut. Hér fáið þið nýja verðlaunaþraut að glíma við um jólin. Hún er ekkert ákaflega erfið, en líklega þvælist samt fyrir ýmsum að finna rétla ráðningu. Jæja, takið nú eftir: Bjarni, Finnur, Hjálmar og Þórarinn fóru niður að tjörn með bátana sína. Þeir ætl- uðu að reyna, hver þeirra sigldi bezt. Þeir ætluðu að láta þá sigla fjórum sinnum yfir tjörnina. I fyrsta sinn átli liver að sigla sin- um bát, en svo ætluðu þeir að skipta um, svo að hver þeirra léti alltaf nýjan hát sigla i hverri umferð. Enginn átti þannig að láta neinn bátinn sigla nema einu sinni. I annarri umferð sigldi Finnur Stiganda og Þórarinn Elliða. I þriðju umferð sigldi Hjálmar Skiðblaðni og Þórarinn Gammin- um. í síðustu umferð sigldi Finnur Skíð- hlaðni og Hjálmar Elliða. Hvern af hátunum átti hver drengjanna? 1. verðlaun eru 100 krónur. 2. verðlaun eru 50 krónur. 3. verðlaun eru 3 Æskubækur eigin vali. eftir í ♦*« ♦*♦ ♦*« ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*« ♦*♦ ♦*« ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*« ♦*♦ ♦*« ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ Walkers. Rennilásarnir, sem hin enska verksmiðja framleiddi, voru notaðir á yfirbreiðslur þær, sem notaðar voru þá á flugvélar, er stóðu úli yfir nóttu. Eftir viðurkenningu brezka liersins á gildi renni- lássins, fór hann loks sigurför yfir allan heim. Efnílegir unglingar. Harrie Jacobs Bond, frægur amer- ískur tónsmiður, er samdi lagið „Sannarlega elska ég þig“, tók að spila á píanó, þegar liann var 5 ára gamall. Georges Enesco, rúmenskt tónskáld, fór oft í kirkju er hann var barn og hlustaði þá með mikilli athygli á lög- in, sem hann heyrði sungin og spiluð þar. Þegar hann kom heim, gat liann jafnan spilað þessi sömu lög á fiðl- una sína. Jascha Heifetz útskrifaðist úr tón- listarskólanum í Vilna. Þegar hann var orðinn tuttugu og eins árs, var hann kominn i röð fremstu fiðlusnill- inga heimsins. 128 Jean Sibelius, hið fræga finnska tón- skáld, var vanur í æsku að taka fiðl- una sína, fara út í skóg og vera þar síðan einsamall lieila daga og stund- um einnig um nætur. Reyndi hann þá að túlka í tónum þá fegurð, sem um- kringdi hann i ríki náttúrunnar. Ignace Padcrewski hinn heimsfrægi pólski pianósnillingur, fékk þann vitn- isburð hjá fyrsta kennara sinum, að hann mundi aldrei verða góður píanó- leikari. „Ég held, að þú ættir heldur að læra á blásturshljóðfæri, drengur minn“, sagði kennari hans. Arturo Toscanini, liinn heimsfrægi ítalski hljómsveitarstjóri, er annálað- ur fyrir það, hve fádæma minnisgóð- ur hann er. Eitt sinn, þegar hann var unglingur, liugðist hann að stæla minni sitt og skrifaði þá, án þess að lita á nótur, forleikinn af Lohengrin- óperunni eftir Wagner, raddsettan fyr- ir hljómsveit. Samtíðin. ☆ 100 höfuáföt. Winston Churchill, hinn frægi stjórnmálamaður, hefur mikinn áhuga á að safna liöttum. Ilann á næstum því 100 liöfuðföt af alls konar gerð- um, allt frá rússneskum skinnliúfum til ósvikinna cowboy-hatta.

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.