Æskan - 01.11.1955, Side 40
Jólablað Æskunnar 1955
Skrítnar skepnur. að hjálpa þeim út úr vandræðunum,
Þú sérð, að teiknarinn hefur haft taka gegnsæan pappír og teikna skepn-
hausavíxl á skepnunum. Þú ættir nú una upp eins og liún á að vera.
bjálfar, sem ég stjórna. Náttúru-
fræði mín, hvað hefur þú að segja
okkur?
NÁTTÚRUFRÆÐI (Hóstar og
ræskir sig): Þið verðið að afsaka,
að ég er dálítið kvefuð. Og það er
svo sem engin furða, því að mitt
heimkynni er alls staðar, frá fjalla-
tindum og niður i hafdjúpið. Og
veðrið er oft rysjótt, eins og allir
vita. Ég var í morgun að reyna að
kenna börnunum, hvernig veður-
fræðingarnir fara að því að spá um
veðrið. Ég þurfti að skreppa nokk-
uð hátt upp í loftið til að litast um,
140
en þá lenti ég í lemjandi krapa-
hryðju og norðangjósti, og síðan
er ég alltaf að hósta og hnerra. En
ég er nú samt ekki að kvarta. Það
er svo gaman að sjá augu barnanna
Ijóma af áhuga, þegar ég er að
segja þeim frá ýmsum dýrum og
blómum og undrum tækninnar og
fjölda sóllcerfanna í geimnum og
LEIKFIMI: Já, þú hefur frá
mörgu að segja. Þú gætir nú víst
sagt, ekki síður en Landafræðin,
að þú sért heimsfræg, því að mér
skilst þú vera einhver merkasta
vísindagreinin. En þetta er nú nóg.
Reikningurinn þykist líklega eitt-
hvað hafa að segja líka.
REIKNINGUR: 5 og 6 eru 11, og
7 frá 31 er 24. Ég get liclzt ekki
talað öðruvísi en í tölum, og ég
skammast mín ekkert fyrir það,
því að tölurnar eru alheimsiUál.
% ldló af kjöti, 1% kíló af lauk,
% kíló af salti, þetta verður saman-
lagt 2% kíló, en Matreiðsla verður
að segja til, livort mátulegt er af
hverju. Ég veit það ekki.
LEIKFIMI: Hún er nú ekki við,
en við látum það gott lieita og bú-
um bara til kjötbollur úr þessu —.
REIKNINGUR: Ekki trufla mig.
4%% af 92 krónum í 1 mánuð og
4 daga verður . .. látum okkur
sjá ....
LEIKFIMI: Já, ekki er það lítið,
sem þú kennir blessuðum börn-
unum —.
REIKNINGUR: Þau vita þó all-
ténd, að 7X9 er 63.
LEIKFIMI: Ja, það skyldi nú
vera. En lilustum nú á, hvað Saga
vinkona okkar hefur að segja. Al-
heimsmálið þitt er dálilið þurrt,
ef maður fær of mikið af því í
einu. En það er gott með öðru í
bland. Jæja, Saga mín.
SAGA: Ég heiti fullu nafni ís-
landssaga, og það er veglegt nafn.
Eg kann að greina frá mörgum
ágætum mönnum og konum. Ég
minni ykkur aðeins á Ingólf og
Njál og Snorra og Jón Arason og
Jón Sigurðsson. Ég tala um þessa
ágætu menn við börnin og kenni
þeim að virða þá og dást að þeim.
LEIKFIMI: Já, við berum lika
mikla virðingu fyrir þér, Saga. Þér
eigum við að þakka það, að við
vitum, að Gunnar gat stokkið hæð
sína upp í loft í öllum herklæðum
og Skarphéðinn tólf kílómetra
austur fyrir Markarfljót-------.
SAGA (gripur fram i): Gunnar
stökk hæð sína í loft upp, en ekki
ujip í loft, og Skarphéðinn hljóp
tólf álnir, en ekki kílómetra —.
LEIKFIMI: Já-já-já, ég held það
sé sama, hvort maður segir upp
i loft eða í loft upp, og mér finnst
nú gamaldags að kalla kílómetrana
álnir. Og svo vil ég ekki, að neinn