Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1963, Síða 27

Æskan - 01.01.1963, Síða 27
ÆSKAN Litla lambið gekk til mömmu sinnar, sem horfði alvarlega á hnakkann á því. Og svo sagði mamman: „Þú þarft engu að kvíða. Það koma horn á þig með tíman- um.“ „Já, en ég vil fá hornin undir eins.“ „Það er bara ekki hægt. En þess verður ekki langt að bíða að þau komi. Þau verða auðvitað ekki stór, svona fyrst, en þau stækka ört. — En mikið hefir nú hann pabbi þinn falleg horn! Þau eru gríðarlega stór og svo fallega snúin.“ „Hvar er hann pabbi minn, mamma?“ spurði litla lambið og horfði eftirvæntingar- fullt á mömmu sína. „Það hefi ég ekki hugmynd um. Eg hefi ekki séð hann mama dao;a.“ „Hvað er dagur, mamma?“ „Það er frá því að sólin — sko, þetta stóra, rauða — byrjar að sjást, og þangað til hún fer á bak við þetta, sem hún er núna að hverfa á bak við. Þegar sólin kemur, er morgunn, en nú er að koma kvöld,“ svar- aði mamman, en litla lambið hlustaði á með mestu athygli. Þegar mamman hafði sagt þetta, fór litla lambið að reyna að horfa á sólina. Sólin var horfin að fjallabaki, þegar mamma litla lambsins kom til þess, þar sem það lá í hnipri. „Jæja, nri er kominn tími til þess að fara að sofa,“ sagði mamman. „En mamma, ég hef verið að sofa.“ „Já, en nú skaltu fá þér að drekka. Svo ætla ég að leggjast hjá þér og fara að hvíla mig. Mér veitir ekki af því að fá mér ræki- lega hvíld.“ Litla lambið stóð silalega á fætur 02: ö ö teygði vel úr sér. Mamma litla lambsins jórtraði ósköp róleg, lygndi aftur augun- um og var líkast því að hún væri hálfsof- andi og vissi ekkert af sér. Þegar litla lamb- ið snaraðist loks til hennar og greip fast um spenann, hrökk mamman við. Hún hafði nefnilega verið að hugsa um framtíð lambs- ins síns. Hún var fjarskalega glöð yfir því að eiga svona skynsamt og myndarlegt lamb. Henni fannst það hafa verið lang- myndarlegasta og fallegasta lambið, sem hún hafði séð á túninu og voru þau þó mörg glæsileg í þeim hópi. Mamman ætl- aði að gæta litla lambsins síns vel. Hún ætlaði alltaf að hafa nóga mjólk handa því. Svo varð hún að fara að kenna því eins fljótt og hún gat - já, að kenna því að kroppa. Og hún yrði að sjá til þess að litla Framhald í næsta blaði. ^^^^^^íttS^HKHKHKBKHKHKHKHKHKHKKBKHKBKHKHKHKBKHKBKHKHKHKHKHKHSKHKHKHKHKBKHKHKHKHKHKBKHKHKHKí- 25

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.