Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1967, Side 30

Æskan - 01.02.1967, Side 30
þrotlaus barátta og gagnslausar tilraunir til :ið vinna sig áfram. í lífi þeirra virðist stórkostlegt ósamræmi milli erf- iðis þeirra og þess, er þeir bera úr býtum. Við segjum, að sól og loft séu öllum frjálsar guðs gjaf- ir. En er því svo háttað? í fátækrahverfum stórborga skín ekki sól, og loftið er lævi blandið. Æ, maður, hvernig geturðu gleymt bróður jjínum og beðið: „Gef oss í dag vort daglegt brauð,“ Jjegar hann á ekkert til. Ég vildi óska, að mennirnir vildu yfirgefa borgirnar, dýrð þeirra, glaum og gull, og sneru aftur út í skóga og merkur til hins einfalda lífs. Þá mundu börn jjeirra vaxa eins og trén, há og tign- arleg, og hugsanir jjeirra verða ljúfar og hreinar eins og blómin við veginn. Mér er ómögulegt annað en hugsa um Jjetta allt, Jjegar ég sný aftur frá borginni til sveitarinn- ar. Kynni mín af ýmsum mikilmennum hefur verið hin dásamlegasta reynsla í lííi mínu. Mér er minnisstætt, er ég sem barn sat á kné Brooks biskups, og ungfrú Sullivan stafaði í lófa minn öll hin vísdómslegu orð, sem hann sagði mér. Eitt sinn, er ég var í hálfgerðum vandræðum út af Jjví, að svo mörg trúarbrögð væru í heiminum, mælti hann: „Það eru aðeins ein allsherjar trúarbrögð til, Helen, trúarbrögð kærleikans. Elska þú föður þinn í himninum af öllu fijarta Jjínu og allri sálu þinni, elskaðu hvert guðs barn eins og þér er unnt, og minnztu Jjess, að máttur hins góða er meiri en máttur hins illa. Ef Jjú gerir þetta, áttu lykla himnaríkis.“ í öllu lífi sínu sýndi hann Jjessa fögru trú í verki. í hans göfugu sál var kærleikur og hin dýpsta vizka samein- uð ríkri trúarsannfæringu. Hann sá guð huggunar og kærleika jafnt í háu sem lágu. Hann sagði: „Guð er kærleikur. Hann er faðir okkar, og við erum börn hans. Þess vegna mun jafnvel Jiin- um dimmustu sorgarélum létta upp. Og þó að réttlætið fari hallloka, mun ranglætið ekki bera sigur úr býtum." Hin hljóða rödd Helenar Keller þagnaði. Við höfum hlustað hljóð, og hljóðlát hverfum við af fundi hennar. Ævi þessarar göfugu konu, sem lifað hefur í ljóslausri veröld og eilífri Jjögn, er sem mikilúðug helgimynd, mót- uð af hinni háleitu trúarjátningu Brooks biskups. Vinur hennar einn birti þau ummæli um hana, að sennilega væri hún hjartahreinasta kona, sem uppi hefði verið. Og veröldin er í hennar augum jafnhrein og hugtir hennar. Hún hefur jafnvel ekki lært Jjá list, sem margir hrósa sér af: gremju yfir ranglætinu. Guðm. M. I»orláksson. Infano kaj patrino en Thule. En la januara numero vi vidis bildon de infano en Vietnamio. Tiu ci bildo prezentas infanon kaj patrinon en la norda parto de Gronlando. Vi vidas, ge la bluzo de la virino estas el felo kaj si portas sian infanon surdorse. Eskimoj logas en Gronlando, Alasko kaj Norda — Kanado. Vi provas legi pri ili interesjan librojn en la islanda lingvo, ekzemple la libron KAK de Vilhjálmur Stefánsson. í janúarblaðinu sáuð Jjið mynd af barni í Víetnanr- Myndin hérna er af barni og móður í norðurhluta Græn- lands. Þið sjáið að stakkurinn konunnar er úr skinni (feldi) og hún ber barnið sitt á bakinu. Eskimóar búa í Grænlandi, Alaska og Norður-Kanada- Þið getið lesið um Jjá skemmtilegar bækur á íslenzku* t. d. bókina KAK eftir Vilhjálm Stefánsson. 78

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.