Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1968, Qupperneq 36

Æskan - 01.02.1968, Qupperneq 36
SSS8SSS88S8S8S8S8S8Í ypurninc^ar og, ói/or Ingibjörs og Guðrún skemmta börnum. Barnatfmi útvarpsins. KÆRA ÆSKA. Við systurnar hér í Árbæ, sem erum fjórar, þökkum þér fyrir alla þá skemmtun og þann fróðleik, sem þú færir okkur með hverju blaði þínu. Að þessu sinni erum við að hugsa um að biðja þig cinnar bónar. Getur þú ckki komið því til Ieiðar, að þáttur sá, sem þær Ingibjörg Þorbergs og Guðrún Guðmundsdóttir sjá um fyrir barnatíma ríkisútvarpsins, komi þar oftar en hann hefur gert í vetur. Þáttur þessi er svo fjöl- breyttur og skemmtilegur, að við hlökkum alltaf svo mikið til þeirra stunda, sem þáttur þeirra stendur. — Viltu færa henni Ingibjörgu okkar beztu kveðjur og þakkir fyrir þætti hennar í Æskunni. Við eigum einn gítar hér á heimilinu, og við rífumst um að æfa lögin hennar úr þáttunum. En eitt langar okkur að spyrja blaðið um, en það er, hvort ekki sé hægt að fá fleiri síður í hverju blaði en nú er undir svona skemmtilegt efni. Gaman væri ef þú gætir birt mynd af systrunum á Akureyri, sem komu fram í þætti þeirra Ingibjargar og Guðrúnar á nýjársdag s.l. Fjórar í Árbæ. Svar: Við þökkum systrunum liið ágæta bréf. Því miður ráð- um við því ekki liér hjá Æskunni, live oft þáttur þeirra Ingi- hjargar og Guðrúnar kemur i barnatíma ríkisútvarpsins, en á þessum vetri hefur hann að jafnaði verið þriðja hvern sunnudag. Þið, sem eruð svo duglegar að skrifa, ættuð að skrifa til skrif- stofu ríkisútvarpsins og láta óskir ykkar þar í ljós. Hver veit nema ráðamenn stofnunarinnar verði við óskum ykkar? Við hér á blaðinu erum alveg sammála ykkur um það, að þáttur þeirra Ingibjargar og Guðrúnar cr eitt af þvi fjölbreyttasta og skemmti- legasta efni, sem barnatíminn hefur upp á að bjóða, og ætti sjón- varpið að athuga hvort það gæti ekki fengið þær í lið með sér, til dærnis í „Stundina okkar“. Fyrst þegar Ingibjörg Þorbergs fór að skrifa fyrir Æskuna — en það var i marz 1967 — var þáttur hennar ein blaðsíða, en nú orðið er liann oftast tvær blaðsíður, og vonandi verður hann cnn stærri og fjölbreyttari með tímanum, því efni þáttanna er eitt af þvi bezta, sem blaðið getur boðið lesendum sínum. '0*0*0#0»0#i 0»0«0«0*0*0*0l Sex synájandi systur. Hér sjáið þið sex systur á Akureyri, sem spila á hljóðfæri og syngja. Þær komu allar fram í þætti þeirra Ingibjargar Þorbergs og Guðrúnar á nýársdag s.I. og þótti söngur þeirra og hljómlist takast sérstaklega vel. Elzta systirin er Þor- björg, sem er 14 ára gömul. Hún hefur sungið og spilað á gítar á skemmtunum að undanförnu, ásamt fleiri stúlkum. Næst í röðinni er Sólveig, 13 ára. Hún stundar nám við Tónlistarskólann á Akureyri. Þriðja í röðinni er Svanfríð- ur, 12 ára. Hún syngur mikið. Fjórða er María, 7 ára, sem er að læra á píanó. Fimmta er Katrín, 6 ára, og sjötta er Eyrún, 3ja ára, þær syngja báðar mikið. Systurnar starfa allar í skátahreyfingunni á Akureyri. Foreldrar þeirra eru Sólveig Jónsdóttir og Ingvi Rafn .Tóhannsson, rafvirkja- meistari. Ingvi er sonur Jóhanns heitins Ó. Haraldssonar, tónskálds. Lög Jóhanns eru mörg vel þekkt, einB og til dæm- is „Sumar er í sveitum“ o. fl. Ingvi leikur á hljóðfæri og syngur í kór. 92

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.