Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1969, Side 16

Æskan - 01.10.1969, Side 16
Góður matur var borinn fram. rödd flugstjórans, Skúla Magnússonar, í hátalaranum. Hann bauð farþega velkomna og tilkynnti, að flogið yrði f 29 000 feta hæð til Færeyja, en þar yrði flugið lækkað um 2 000 fet það sem eftir væri til Kaupmannahafnar. Skúli lýsti því sem íyrir augun bar. Vakti athygli á Þingvallavatni til vinstri og brátt voru Vest- mannaeyjar framundan til hægri. Þau Jóhanna og Jóhann höfðu varla við að skoða og dásama landslagið. Þau fluttu sig slðan yfir í vinstri hlið þotunnar og horfðu á Tungnafellsjökul, Sprengi- sand og Vatnajökul. Yfirflugfreyjan í þessari ferð, Matthildur Haraldsdóttir, kom og bar þeim svaladrykk og þeim fannst næst- um ótrúlegt að þjóta hér áfram í háloftum og njóta þessara dá- Vestmannaeyjum, 29. ágúst 1969 Kæra Æska! Ég var bæði undrandi og glöð, þegar ég frétti að ég hefði verið svo heppin að hljóta ferðina til Danmcrkur á vegum Æskunnar og Flugfélagsins. Ferðin var í alla staði mjög skemrr.tileg og fróðleg. Eftir- minnileg verður mér heimsókn- in í H. C. Andersenssafnið, og mjög skemmtilegt var að koma i Tivoli. Þá ekki sizt að fá að fljúga með Gullfaxa, þotu Flug- félagsins. Ég þakka ferðafélög- um minum, þeim Grimi Engil- berts og Sveini Sæmundssyni, innilega fyrir alit það sem þeir gerðu fyrir mig. ÞAKKIR Með innilegu þakklæti. Jóhanna Margrét Þórðardóttir Vestmannaeyjum. semda. Sólin skein inn um gluggana, og þau fundu raunar alls ekki til þess að svo mikil ferð væri á farkostinum. Þetta var rétt eins og að sitja heima i góðum þægilegum stólum og láta fara vel um sig. Þar sem ferðin hófst kl. 3:15 frá Keflavíkurflugvelli var ekki matartími á leiðinni til Kaupmannahafnar. Flugið þangað var áaetl' að að tæki aðeins 2 klst. og 20 mín. Hins vegar báru flugfreyj' urnar fram smurt brauð og gosdrykki og kaffi, og Grímur hafð' tekið með nýjustu blöðin af Æskunni, sem reyndar var varla komih út, og þau sökktu sér niður í lesturinn, enda hafði nú tekið fydr útsýnið og því fátt að sjá út um gluggana. Þotan geystist áfram i háloftunum, en fyrir neðan þau var endalaus skýjabreiða, sem sólin glampaði á. Brátt kom flugfreyjan með skilaboð frá Skúla flugstjóra og bauð þeim Jóhönnu og Jóhanni fram í flugstjórnarklefa. Það létu þau ekki bjóða sér tvisvar: Að sjá stjórntæki nýtízku þotu var eftirsóknarvert og fróðlegt. Þarna var allt fullt af mælitækjum o9 þarna sátu þrír menn, Skúli flugstjóri vinstra megin, Frosti Bjarnason aðstoðarflugmaður hægra megin og fyrir aftan Þ® Qddur A. Pálsson flugvélstjóri. Þeim þótti gaman að sjá í rat' sjána. í henni sást Hjaltland greinilega fyrir framan á stjórnborða- Því miður var skýjahula yfir Færeyjum, svo að þær urðu ekki séðar á þessu flugi, en gaman var að hafa verið svona nálaeg1 þessari næstu frændþjóð. Eftir að hafa rætt við flugmennina oQ skoðað sig um að vild héldu þau til sæta sinna. Og áíram hélt flugið. Brátt tilkynnti Skúli flugstjóri, að Stav- anger væri framundan eftir nokkrar mínútur, og meðan beðið var eftir að strönd' Noregs birtist lásu börnin blöð og Jóhann tók myndir. Þvi miður sást norska ströndin aldrei. Skýin légu ýtir landinu og byrgðu útsýnið, en nokkru slðar var flogið inn ýfir vesturströnd Jóilands. Yfir dönsku sundunum lá skýjalag, og Þa® var mjög fagurt að sjá, hvernig sólin brauzt í gegnum skýin, °9 efra tóku þau á sig kynjamyndir, sum voru eins og risar atl önnur eins og fjöll á þessari skýjahásléttu. Gullfaxi lækkaði flugið og Danmörk kom í Ijós og svo var lent á Kastrup, flugvélin rann spölkorn eftir flugbrautinni efl beygði síðan upp að flugstöðinni. Þau voru komin til Danmerkut- Á flugvellinum hittu þau Ólaf Bertelsen stöðvarstjóra Flugfélag5" ins á Kastrupflugvelli og islenzka hlaðfreyju, sem starfar bjá Flugfélaginu í Kaupmannahöfn, og eftir að hafa heilsað ÞeirT1 var haldið eftir löngum göngum inn i sjálfa flugstöðina. stundarkorni liðnu komu töskurnar á færibandi og þau gengú 1 gegnum forsalinn og út á götuna, þar sem náð var ( bifreið °9 haldið til gistihússins I Löngangstræde 27. Þar tók á móti ÞeirT1 síðhærður unglingur, alúðlegur náungi, sem bar töskurnar. Síðan innrituðu þau sig á hótelið. Slðhærði unglingurinn bar töskurnar upp á loft og Sveinn sagði, að nú skyldu þau jafna sig og hvilaS* i 15—20 mínútur áður en haldið yrði út til að skoða borgina. 432

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.