Æskan - 01.10.1969, Page 30
Hvað viltu verða?
0
nokkrum bréfum til þáttarins er beðið
um upplýsingar um flugmál og allt,
sem að flugi lýtur. Flugið er nú orðið
snar þáttur í samgöngumálum okkar hér á
landi ekki síður en með öðrum þjóðum,
og ekki er því að neita, að nokkrar at-
vinnugreinar hafa skapazt kringum þennan
þátt samgangnanna.
Áður höfum við hér í þessum þáttum
spjallað um störf flugfreyjanna og skulum
við því athuga nánar hinar atvinnugreinar
flugsins, en þær eru: Flugvallastjórn, flug-
umferðarstjórn, flugvirkjun, loftskeytamenn
og flugmenn.
Atvinnuflugmaður þarf að vera vel af
guði gerður og sérlega hraustur, bæði and-
lega og líkamlega. Sjón hans og heyrn
þarf að vera eðlileg, og ekki má hann
vera litblindur. Honum hentar vel að hafa
góða og trausta skapgerð og sterkar taug-
ar. Hann þarf að vera snarráður og ákveð-
inn, þegar taka þarf skjótar ákvarðanir.
Eftirlit er haft með heilsu flugmanna,
einkum þeirra, sem stjórna farþegaflug-
vélum. Mun hann þurfa að gangast undir
nákvæma læknisskoðun tvisvar á ári eða
þar um bil. Er það trúnaðarlæknir flugfé-
lags þess, er hann starfar hjá, sem þessa
skoðun framkvæmir.
Sá, sem vill gerast atvinnuflugmaður,
þarf að ganga í flugskóla, en tií þess að
komast í hann þarf gagnfræðapróf, en þó
er stúdentspróf talið bezta undirbúnings-
menntunin. í flugskólanum fá nemendur
tilsögn í flestu því, sem að flugi lýtur, t. d.
flugumferðarreglur, siglingafræði, veður-
fræði, vélfræði og flugeðlisfræði. Um lengd
námstimans er það að segja, að venju-
lega Ijúka flugnemar náminu á 11/2—2 ár-
um, en að þessu námi loknu öðlast nem-
andinn blindflugs- og aðstoðarflugmanns-
réttindi.
Að þessum prófum úr flugskólanum
loknum getur flugmaðurinn sótt um stöðu
hjá flugfélagi, en þau gera oft allstrangar
kröfur til þeirra og verða nýliðarnir oft að
Flugmaður
gangast undir — og standast — ýmiss
konar hæfnispróf, áður en þeir eru ráðnir,
og oft eru þeir sendir á ýmis framhalds-
Viámskeið í flugmennsku.
Störf atvinnuflugmannsins eru í því fólg-
in að stjórna og stýra flugvélum í flugtaki,
á flugi og við lendingu. Hann þarf að reyna
hreyflana og ýmis önnur tæki, áður en flug
hefst, og fullvissa sig um að þau séu í
eðlilegu ásigkomulagi. Hann athugar veð-
urútlit og flugáætlun fyrir ferðina. í flug-
vélum, sem hafa fleiri en tveggja manna
áhöfn, er flugmaðurinn flugstjóri og þá
einnig æðsti maður vélarinnar. Þegar flug-
maður hefur flogið 1200 tíma flug, öðlast
hann oft flugstjóraréttindi og þá hærri laun,
en ýmis flugfélög gera þó strangari kröfur
um lengd flugtíma, og oft kemur það fyrif.
að væntanlegur flugstjóri þarf að sækja
námskeið erlendis til þess að læra meðferð
nýrra véla. Starfsaldur flugmanna er ekki
sérlega hár, og hætta margir þeirra um
fimmtugsaldur.
Flugskólar eru til einir þrír í Reykjavík
og einn á Akureyri. Ekki er því að leyna,
að þetta er dýrt nám. Hver einstakur flug'
tími í skólunum kostar núna um kr. 900,
en þó er námið hvergi nærri eins dýrt og
menn halda. Námskostnaðurinn fer eftir
fjölda flugtímanna og að nokkru eftir stærð
vélarinnar, sem notuð er til kennslunnar.
Námstíminn. Lágmarkskröfur um fjölda
flugtíma eru ákveðnar í lögum, en flug'
kennarinn segir til um hæfni flugnemans.
hvenær hann sé til dæmis fær um að
stjórna flugvél einn. Talið er, að flestir þurfi
að taka 15 til 20 flugtíma til þess að geta
stjórnað flugvél á eigin spýtur. Fulltrúi
loftferðaeftirlitsins sker úr um, hvort flug'
nemi telst hæfur til einliðaflugs (sóló)-
Samkvæmt lögum þarf flugneminn að hafa
lokið að minnsta kosti 40 flugtimum, áður
en hann öðlast einkaflugmannsréttindi. Auk
þess verður hann að þreyta próf í verkleg'
um og þóklegum greinum.
Réttindi. Einkaflugmannspróf veitir réttindi
til að flytja farþega hvert á land sem er
án greiðsiu. Sá, sem vill gerast atvinnu-
flugmaður, verður að eiga að minnsta kosti
200 flugtíma að baki og ganga undir verk-
legt og bóklegt próf. Atvinnuflugmannsprói
veitir réttindi til að flytja farþega gegn
greiðslu. Ef menn afla sér auk þess rétt'
inda til blindflugs, standa þeir betur að
vígi um starf sem aðstoðarflugmenn bjá
stóru flugfélögunum.
Námstilhögun. Kennari og nemandi geta
að nokkru komið sér sarrian um, hversu
langur tími líður milli kennslustunda. Al'
gengt og æskilegt er talið að taka 2 til 3
flugtima í viku. Er flugneminn þá 4 til ®
mánuði að öðlast einkaflugmannsréttind''
Mörgum kann að koma þetur að dreif3
flugtímanum á lengra bil. Náminu má *
stuttu máli haga eftir efnum og ástæðum-
Aldur. Flug má læra á öllum aldri. Þó má
flugneminn ekki vera yngri en 17 ára,
einkaílugmannsréttindi eru bundin við
ára lágmarksaldur. Engin ákvæði eru 11
um hámarksaldur.
G. H.