Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1969, Page 44

Æskan - 01.10.1969, Page 44
SKATA- FRÉTTIR Skátamót í BOTNSDAL Að tilhlutan skátafélags Akraness var haldið skátamót í Botns- dal, er sett var af mótsstjóranum, Svavari Sigurðssyni, að kvöldi þess 3. júlí. Flokkakeppni hófst á föstudagsmorgun og tóku um 20 flokkar þátt í henni, en hún var mjög fjölbreytt og skemmtileg. Voru þá valdir úr 3 beztu flokkarnir af hvoru kyni og kepptu þeir síðan til úrslita á laugardag að viðstöddum forseta islands og frú hans. Gönguferðir hófust einnig sama dag og fóru 36 skátar á Botnssúlur. 100—-200 manns fóru í hvalveiðistöðina og í siglingu um Hvalfjörð, en ekki var farið út í Geirshólma. Tókst þessi ferð mjög vel. Milli 100—200 fóru í gönguferð að hæsta fossi landsins, Glym, sem fellur fram í hrikalegu gljúfri, og var gengið í 30 manna flokkum. Næturleikur fór fram á föstudagskvöld og voru þátttakendur aðallega yngri skátarnir, og heppnaðist hann vel., Á laugardag var mótið opnað gestum kl. 14. Klukkan 14.30 komu forseti islands, herra Kristján Eldjárn, og kona hans, frú Halldóra Eldjárn, i heimsókn á mótið. Þá komu einnig skátahöfð- ingi íslands Jónas B. Jónsson og fleiri úr stjórn B.Í.S. og fjöldi gesta, sem mótsstjórn hafði boðið að koma. Móttöku forseta- hjónanna var þannig háttað, að fyrst var gengið um búðirnar, þar sem skátarnir voru ýmist að starfi eða leik. Síðan var öllum gestum boðið til kaffidrykkju í stóru tjaldi, en að þvl loknu fór fram sérstök dagskrá á leikjaflötinni, þar sem m. a. fóru fram úrslit í flokkakeppninni o. fl. Þar var forseta íslands afhentur geysivandaður stalur, sem hagleiksmaður á Akranesi hafði gert. Siðan kvöddu forsetahjónin. Síðar hófust svo gönguferðir ylfinga og Ijósálfa, en þeim hafði verið boðið að koma á laugardag og dvelja fram á sunnu- dag. Var þetta fyrsta útilega þeirra flestra. Á sunnudag var einnig dagskrá fyrir ylfinga og Ijósálfa, en kl. 10.30 hófst guðsþjónusta og predikaði séra Jón Einarsson sóknarprestur að Saurbæ. Veðrið var ágætt mestallan tímann, en þó var nokkuð kalt framan af. Á sunnudeginum var veðrið eins og það getur bezt orðið í Botnsdal og er þá mikið sagt. Fjöldi skátanna, sem dvöldu á mótinu, var í kringum 660. Vlfingar og Ijósálfar voru um 40 og í fjölskyldubúðum dvöldu um það bil 150, þannig að um það bil 850 munu hafa dvalið á mót- inu um lengri eða skemmri tíma. Á varðeldinum á laugardagskvöldið munu hafa verið hátt í 1500 manns í yndislegu veðri og tókst hann mjög vel. Sjötta haustmót Birkibeina Dagana 8.—10. ágúst héldu Birkibeinar í Reykjavík sitt 6. haustmót. Að þessu sinni var mótsstaður valinn í Borgarvík við Úlfljótsvatn og komu þangað um 130 skátar frá Reykjavik, Hafnar- firði og Keflavík, en auk þeirra gisti 1 pólskur kvenskáti mótið. Einkunnarorð mótsins var 10. grein skátalaganna: „Allir skátar er góðir lagsmenn", og var með þvi reynt að auka kynni skát- anna á sem heilbrigðastan hátt. Þrátt fyrir undirbúningsvinnu Birkibeina hafði þeim láðst að semja við veðurguðina — enda var rigning með eindæmum og lá við, að um sundmót væri að ræða. Mótsgestir létu þó veðrahaminn lítt á sig fá og voru flestir hinir hressustu þrátt fyrir óþægindin. Af þessum sökum átti dag- skrárstjórn erfitt um vik, en þó var farið I gönguferð, flokka- keppni var háð og einstaklingskeppni var í gangi og margt fleira, að ógleymdum varðeldi og kvöldvökum við allra hæfi. í mótsblaðinu var gert góðlátlegt grín að veðrinu, og mátti þar sjá margar tillögur að hagnýtri notkun vatnsins, og þegar innheimt var mótsgjald, töluðu menn um „vatnsskattinn“. Hugmynd Birkibeina um aukna samvinnu skátanna átti þarna vel heima, þótt segja megi að þeir hafi fengið óvænta aðstoð við framkvæmdina. Hvað um það, þær rúmiega 100 skátasálin sem þarna voru, sneru heim á leið léttar í lund, því ekki geta nokkrir rigningardropar (hvað þá heilt syndaflóð) aftrað kátum og hraustum skátum frá útilegu, og erfiðleikarnir styrktu bara og efldu bræðralagið og skátaandann og hjálpsemin blómstraði sem aldrei fyrr. Allar upplýsingar um skáta- starf má fá i skrifstofu Banda- lags íslenzkra skáta, Tómas- arhaga 31 — Sími 2 31 90. Þar fæst einnig bókin: SKÁTAHREYFINGIN 460

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.