Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1969, Síða 62

Æskan - 01.10.1969, Síða 62
SPURNINGAR OG SYÖR Svar til Stjána: Fyrsta reiðskólann mun Hestamannafélagið Fákur í Reykjavík hafa rekið, og var fyrsti kennari hans Hos- mary Þorleifsdóttir. Síðan hafa ýmis hestamannafélög starfrækt reiðskóla, enda er slík starfsemi kærkomin ])eim börnum, sem áhuga hafa á hestum, en geta ekki á annan hátt komið því við að kynnast meðferð þeirra. Við vitum um, að árið 1968 ráku þrjú hestamannafélög slika reiðskóla, Fákur i Reykjavik, Léttfeti á Sauðárkróki og Léttir á Akureyri, og voru j>að árið 198 nem- endur í þessum skólum. f ár munu nokkru fleiri hestamanna- félög hafa hafið rekstur slíkra skóla, auk þess sem nokkrir einkaaðilar ráku slika skóla á síðastliðnu sumri, svo sem Rosmary Þorleifsdóttir, húsfreyja að Geldingaholti i Hreppum. Ennfremur hefur Landssamband hestamannafélaga nú hafið farandkennslu í reiðmennsku. Góður hnakkur kostar vart minna en 12 þúsund krónur og beizli um 2 þúsund krónur, þótt eflaust sé þetta eitthvað mis- munandi. Reiðfatakostnaður er kominn undir nægjusemi hvers og eins. Reiðskólar^ Það er margt auðveldara en að fjölyrða um hestaverð, enda margbreytilegt og fer oft leynt. Þó má segja, að meðalgóður reiðhestur verði nú vart fenginn fyrir minna en 20 þúsund krónur. Hitt heyrir til undantekninga, fari góðhestur fyrir meira en 30—40 þúsund krónur. Sala islenzkra hrossa til annarra landa liefur færzt allmjög í vöxt á síðustu árum, og munu útflutningshross þetta árið liomin nokkuð yfir þúsundið. Helzti hrossamarkaðurinn erlendis hefur verið í Þýzkalandi, en nú eru víða að skapast nýir markaðir, svo sem í Sviþjóð og Bandaríkjunum. Landssamband hestamannafélaga var stofnað árið 1949. Nú eru í sambandinu 32 hestamannafélög með 2850 félaga. Hross á landinu munu vera um 35—40 þúsund talsins, en af þeim eru hestar og hryssur um það bil tveir þriðju hlutar, liitt folöld og tryppi. Fyrsta hestamannafélag landsins var Fákur, stofnaður árið 1922, og er það stærsta félagið, en það hýsir nú um 450 hesta i húsum sínum við bæjardyr Reykjavíkur. it Hafrannsóknir Svar til Ásgríms í Keflavík: virkastur við þær rannsóknir Hér við ísland munu almenn- mun dr. Bjarni Sæmundsson ar hafrannsóknir hafa hafizt í hafa verið, en hann má telja byrjun þessarar aldar. Stór- einn af helztu brautryðjendum Árni Friðriksson í fiskirannsóknum í Norður- Atlantshafi. — Kerf ishundnar fiskirannsóknir á nútímavisu hófust, er dr. Árni Friðriksson hóf störf við Fiskifélag Islands árið 1931. Vann Árni þar mérkilegt hrautryðjandastarf, og þegar Fiskideild Atvinnu- deildar Háskólans var stofnuð árið 1937, gerðist Árni forstjóri hennar og gegndi því starfi til ársins 1954, er liann tók við starfi framkvæmdastjóra Al- þjóðahafrannsóknaráðsins, er hafði skrifstofu sína i Dan- mörku. Árið 1965 var gerð all víðtæk skipulagsbreyting á Hafrannsóknaskipið „Árni Friðriksson" rannsóknamálum hérlendis. Var þá meðal annars breytt nafni Fiskideildarinnar, og heitir hún nú Hafrannsókna- stofnunin. Forstjóri hennar er nú Jón Jónsson fiskifræðingur. Við stofnunina starfa 14 sér- fræðingar og 22 aðstoðarmenn- Auk ]iess starfa um 20 manns a skipum stofnunarinnar, en þaU eru tvö: Árni Friðriksson «g Hafþór. Nú er í smíðum þriðja skipið, sem mun hljóta nafnið Bjarni Sæmundsson. 478

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.