Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1972, Síða 20

Æskan - 01.04.1972, Síða 20
koll á þilfarinu. Nú barSi Pési á báSar hendur eins og ber- serkur, og brátt var enginn sjóræningi uppistandandi á skiplnu. Pési ferðalangur var að brjóta heilann um það, hvernlg hann ætti að hreinsa til á þilfarinu, þegar hann vaknaði! Þetta var þá bara draumur! 4. Pési stóð á fætur og sá þá, að fyrir framan hann stóð gamall skröggur með asna í taumi. Á asnanum voru geysi- stórar klyfjar af skóflum, pottum, pönnum, sóflum, hnífum, harmonikum og alls konar skrani. „Hvert ert þú að fara, lagsi?" sagði skröggurlnn við Pésa ferðalang. ,,Ég er nú á leiðinni til Bala Hala,“ sagði Pési. ,,Þú kemst aldrei þangað sjóleiðina," sagðl sá gamli. ,,Nei,“ svaraði Pési. „En ég vil skipta við þig á asnanum og bátnum.“ „Því er ég samþykkur," sagði karlinn. „Þá er það klappað og klárt. En viltu ekki gefa mér þessa gömlu, Ijótu harmoniku?" spurði Pési. Karlinn féllst á það, en sagði þó, að harmonikan væri hvorki gömul né Ijót, heldur afbragðsfalleg. Svo hjálpaði hann Pésa til þess að taka farangurinn úr Dísu og binda hann í klyfjar á asnann. Svo lagði Pési af stað. Þeim kom vei saman, asnanum og Pésa, því að Pési lék á harmonikuna sína og stundum söng asninn fyrir Pésa. Pésl kallaði hann Grána. Nokkru síðar voru þeir stöðvaðir af hræðilega Ijótum karli. Pési ætlaði að fara að ávarpa hann kurteislega, þeg- ar karlinn (hann hét Hektor) hrópaði: „Ekkert þvaður!“ Síðan sló hann Pésa af asnanum með stóra stafnum sln- um og reif allt dótið hans Pésa niður og henti því á jörðina. Svo settist hann á bak asnanum og reið á brott. Pési náði sér brátt eftir löðrunginn. Hektor hafði skllið eftir gamalt, ryðgað hjól. Pési hugsaði með sér, að hann yrði að notast við það hér eftir á leiðinni til Bala Hala. Hann tók saman pjönkur sínar, batt þær á bak sér og hélt áfram. 5. Nú hjólaði hann eftir langri götu, og sér til mikillar skelf- ingar sá hann skyndilega, að Hektor stóð þar á miðjum veginum. Hektor kallaði Pésa þjóf og sakaði hann um að hafa stolið hjólinu sínu. Lögregluþjónn kom þar að, og þegar hann heyrði sögu Hektors, sagðist hann verða að taka Pésa fastan og fara með hann í steininn. Hann sagði, að það væri eins gott fyrir Pésa að koma strax með sér, annars mundi hann verða skotinn. Pési sagði lögreglu- manninum, að Hektor segði ósatt, en samt þörði hann ekki 18

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.