Æskan - 01.09.1975, Side 42
í bréfi til þáttarins er spurt m. a. um
störf þernu á millilandaskipum.
Ekki mun vera krafist neinnar ákveð-
innar menntunar af þeirri stúlku, sem
vill gerast skipsþerna, en- þó er það nú
áreiðanlega svo, að góð málakunnátta
mun áreiðanlega koma sér vel í þessu
starfi, t. d. enska og eitt Norðurlanda-
mál, auk íslensku. Störf þernunnar eru
einkum þau, að þrífa farþegaklefa og
búa um rúm farþega. Vilji farþegar
fremur borða mat sinn inni í sínum eig-
in klefa, færir þernan þeim matinn
þangað. Ennfremur verður skipsþern-
an að vera sérlega hjálpfús við þá,
sem þjást af sjóveiki eða eru e. t. v.
lasnir eða sjúkir meðan ferðin stendur
yfir. Vfirleitt munu ekki vera ráðnar í
þetta starf stúlkur, sem eru innan við
tvítugt, og einnig ekki aðrar en þær,
sem eru vel sjóhraustar.
Góð þerna þarf að vera reglusöm og
stundvís í starfi sínu. Hún þarf að vera
kurteis og traustvekjandi og vera
minnug þes, að mikið veltur á góðu
starfi hennar til þess að gera farþeg-
um ferðina ánægjulega og minnis-
stæða.
Aligóð laun munu þernur hafa hjá
skipafélögunum, en atvinnuhorfur eru
víst ótryggar hér á landi, því að síðan
Gullfoss var seldur úr landi, munu þau
ekki vera ýkja mörg farþegaskipin,
einkum þau, sem sigla á milli íslands
og annarra landa.
ÞAÐ SEM KUÐUNGURINN SAGÐI
Einu sinni hittust tveir menn nið-
ur við sjóinn og gengu spölkorn
með fjörunni.
„Hvað er þarna á sandinum?"
spurði annar.
„Það er kuðungur, já, meira að
segja stærðar hafkóngur."
Hann beygði sig niður að honum
og sagði:
„Hvað ertu nú að fara, stóri risi?“
„Ég er að fara hérna yfir sandinn,
bara að aðgæta hvernig muni vera
að eiga þar heima,“ svaraði snigill-
inn. Því í öllum kobbum búa aðeins
sniglar og er þá kobbinn aðeins hlíf
eða þak yfir þá.
„Hvað ertu lengi að komast
þessa leið?“
„Ég er ekki að hugsa um, hvað
langan tíma það tekur. Aðeins hvort
ég fæ að fara þetta óáreittur. Ég á
marga óvini sem vilja ná í mig og
hreint og beint éta mig,“ svara
snigillinn. „Mig langar til sS 11
eins og aðra. Ég treysti á húsið m1 •
Þegar það er óskemmt, er ég örugð
ur. Svo fer ég að eiga egg og Þa ’
eggin, fara að búa til hús handa e ^
um leið og þau þroskast.
komin ný kynslóð, sem við g
þó ekki náið samband við. ^a
mætti segja, að við séum þsS sej .
kalla má einhyggjudeildin í
náttúrunnar. *j
Nú stansaði snigillinn og fálr11^
út í loftið. Hann hefur enga ^
né heyrn, aðeins tvo fálmara, se
hann skoðar með umhverfi s'
Þessir fálmarar eru mjög nse.’
svo að hann skynjar allar hreyf'n
ar líkt og hann hefði bæði sjón 0
heyrn.
jón dh
Kjörorðið er: ÆSKAIM FYRIR ÆSKUIMA
40