Æskan - 01.05.1976, Blaðsíða 22
Marteinn: En af hverju kemur það, að maður,
sem drukkið hefur lítið, er kátur og fjörugur?
Kennarinn: Það er einmitt í sambandi við sjálfs-
stjórnina, sem við ræddum um. Þegar fíngerðustu
frumurnar í heilaberkinum lamast, hefur það venju-
lega þau áhrif, að manninum finnst hann vera spræk-
ur og fær í allt. En I raun og veru er þetta sjálfs-
blekking. Maðurinn hugsar ekki skýrt f þessu ástandi
né getur leyst af hendi verk, sem athygli og nákvæmni
þarf við.
Ólafur: Bílstjóri, sem hefur drukkið Iftið, er auð-
vitað ekki eins hættulegur og bílstjóri, sem hefur
drukkið mikið?
Kennarinn: Þessari spurningu var einu sinni beint
til læknis. Hvernig heldurðu, að hann hafi svarað?
„Sá, sem hefur drukkið lítið, er hættulegri við stýr-
ið en sá, sem er mikið drukkinn."
Eva: Það var undarlegt. Hvernig getur það verið?
Kennarinn: Jú, það kemur f Ijós, að flest þau
bifreiðaslys, sem stafa af áfengisnautn, verða af völd-
um bílstjóra, sem lítið hafa drukkið. En sá, sem er
mikið drukkinn, er venjulega hindraður í því að setj
ast undir stýri. En það ber ekki alltaf mikið á Þv 1
þegar menn hafa aðeins bragðað á áfengi. Sjál^r
er bílstjórinn öruggur um að geta ekið bílnum- En
það er ekki rétt, hann teflir á tæpasta vaðið, sem
hann hefði annars ekki gert, — og svo verður slys_
Áslaug: Er þetta ástæðan til þess, að bflstjóri m
ekki neyta áfengis?
Kennarinn: Já, og það gildir um alla þá, serT1
stjórna samgöngutækjum, t. d. strætisvagnastjóra
skipstjóra. Þeir mega ekki bragða áfengi nokkrar
stundir áður en þeir koma að starfi sínu.
Eva: Ég hef lesið um skip, sem strandaði, a
því að stýrimaðurinn var drukkinn.
Marteinn: Flugmenn hafa auðvitað ekki heldur
leyfi til að neyta áfengis?
Kennarinn: Nei, það mega þeir ekki. Flugmaður
verður að hafa skýra hugsun til þess að geta g®1
allra hinna nákvæmu tækja f flugvélinni.
Ólafur: Ég sá einu sinni lögregluna taka mann,
sem hafði ekið bíl. Það var brennivínsþefur af Þon-
um, og þeir sögðu, að lögreglan ætlaði að láta 9era
á honum blóðrannsókn.
Marteinn: Hvað er annars blóðrannsókn?
Kennarinn: Þið vitið, að áfengið fer f blóðið og
flyst með því um allan líkamann. Ef bílstjóri er grun'
aður um að hafa neytt áfengis, stendur í lögunum,
að læknir geti gert á honum blóðrannsókn. Læknit'
inn tekur úr honum ofurlftið blóð og rannsakar það-
Maður, sem er mikið drukkinn, getur haft tvo eða
þrjá af þúsundi (%c) af áfengi í blóðinu. Það er, að
f hverjum lítra blóðs eru tvö til þrjú grömm af áfengi’
Marteinn: Eru takmörkin 0,5 af þúsundi fyrir bd'
stjóra?