Æskan - 01.05.1976, Blaðsíða 30
EDITH UIMNERSTAD
Kastrúlluferðin
SIGURLAUG RÓSINKRANS ÞÝDDI.
— Það er naumast að þú ert staffirug, sagði pabbi.
Veslings hnappasöiuspesialisti verður alveg orðlaus af því
að hlusta á þig og heyra um sölukunnáttu þína!
— Oh, það er miklu meira, sagði mamma glöð. — Við
verðum líka að auglýsa. Dessí, sem er svo dugleg að
teikna, getur gert auglýsingaspjöld, eitt á hvorn vagn. Á
skiltinu á að vera mynd af kastrúllunni og svo nöfnin
Pip og Larsons patent, eða eitthvað í þá áttina. Við setj-
um þau upp á þakið, svo að þau sjáist langt að. í aftari vagn-
inum skulum við hafa eldhús, opið að aftan svo það sjáist
vel inn. Þar höfum við prímus, á honum elda ég matinn og
kynni Pip fyrir fólki sem kemur, svo það fái að vita hve
góður hann er. Verður það ekki fín auglýsing? Og það
kostar ekkert. Svo finnst mér, Patrik, að þú takir þér sum-
arfríið, þegar skólinn hættir og fáir þér svo dálítið auka-
frí ef þarf, því þú færð áreiðanlega nóg að gera með
Pip. En ef þú vilt það ekki, geturðu gert annan vagninn
svo stóran, að þú fáir pláss í honum fyrir sýnishornatösk-
urnar þinar. Þá getur þú inn á milli selt saumadótið, tvinna,
tölur og því um líkt, eftir því sem þú hefur tíma til og
löngun.
— Var það ekki eitthvað meira? sagði pabbi og reis á
fætur.
— Nægir þetta ekki? sagði mamma. — Jú, ég gleymdi
einu. Við þurfum að hafa einhvers konar þvottaborð. Ef
það er ekki hafa krakkarnir það sem afsökun, þegar þau
vilja ekki þvo sér. Já, Lassi, ég sé að þú hefur ekki þveg-
ið þér um hálsinn í dag.
— Vilt þú ekki líka hafa baðker, sturtu og W.C. í vagn-
inum, sagði pabbi. — Heyrið þið krakkar, sitjið þið ekki
svona bara og gapið. Ég skil að ykkur þykir þetta skemmti-
legt. Sýnið það þá, öll á fætur. Nú skulum við tollera\
mömmu. Nú er hún dálítið skrítin, það er alveg víst, en
þetta gerði hún vel, er það ekki?
— Sleppið þið, sagði mamma, — ég þekki ekkert
verra en að vera tolleruð.
— Já, en í dag sleppur þú ekki, sagði pabbi. — Þú
verður svolítið að hugsa um skemmtun fyrir okkur. Mirra
og Lassi takið í. Svona hæ, hæ. Þung er hún ekki, þessi
litli hnykill, eða hvað segir þú, Mirra? Húrra fyrir mömmu.
Þið getið rétt ímyndað ykkur að við hrópuðum húrra.
Því nú sáum við, að hvernig svo sem það færi með fyrir-
ætlanir mömmu, þá var það þó Ijóst að við færum f lang-
ferð með Lottu og Laban. Við æptum og góluðum ennþá
meira en sjálf Pip-kastrúllan. Mamma spriklaði og bað
okkur að hætta, en við ætluðum aldrei að hætta.
palh1
SVO
Allt í einu var dyrabjöllunni hringt. Það var g^a
frænka.
— Ég mátti til með að vita, hvað um væri að vera
snemma morguns, sagði hún. — Á eitthvert ykkar afm
eða hafið þið unnið í happdrætti? Eða eruð þið 0
snarvitlaus? 8i
— Já, það erum við orðin. Húrra, húrra, húrra! Mam^
sem loksins hafði fengið að standa í fæturna, stóð Þ
ringluð með flaksandi hárið, eldrauð í andliti. *j
— Vertu ekkert óróleg út af okkur, kæra fraenka, sa^
mamma. — Það er bara þannig, að við erum öll a®
í sýningarferð. ka
— Ætlar fjölskyldan að fara í leikför? sagði Palm "
undrandi. L|.
— Kannski það, sagði mamma. — Já, að vissu
— Svo þið ætlið þá að fara að ferðast?
— Jú, jú, sagði pabbi. — Það verður víst svo. En {
ið ykkur nú af stað, krakkar, annars komið þið of se
í skólann! tóg
Um leið og við þutum fram hjá Palm frænku, sem
þarna alveg undrandi, hrópuðum við:
— Við ætlum út að aka með hestum, við setlum
fara í KASTRÚLLUFERÐ!
ÞRIÐJI KAPITULI.
Þetta varð mjög einkennilegt vor. Það var eins ^.(j
værum öll með hita. Það var ekki neinn óþægilsgur t
í skrokknum, þvert á móti. En við vorum óróleg og ían
tíminn svo lengi að Ifða. Við ráfuðum stöðugt á
íbúðarinnar og ölgerðarinnar, þar sem þau Lotta og l-a
komu öðru hvoru og fóru svo aftur með skröltandi öl' 0
ur í vagninum. Klukkan fimm voru þau alltaf komin
og voru þá látin inn [ hesthúsið. Þó að þau væru nú 0 .
in okkar eign, unnu þau áfram fyrir ölgerðina. Pabbi n
lánað þau af því að bæði ökumaðurinn og hestasveinn1^
töldu að það væri betra fyrir hestana að vinna, heldur
að standa stöðugt [ hesthúsinu hreyfingarlausir og r'
Pabbi vann á kvöldin við að fullgera vagnana. Stun
vann hann langt fram á nótt. Okkur sýndist vagna ^
verða virkilega fallegir. Pabbi gat galdrað með hamrl
nöglum. Hann hamraði plötur, skar gler með 9,ersk r
með demantsoddi, hann kíttaði og heflaði og skrúfaði r
28