Æskan - 01.05.1976, Blaðsíða 27
Nú eru á þriSja þúsund ungir menn skráðir ( björg-
unarsveitirnar en f félagsdeildunum eru um þrjátíu
þúsund manns, þar af tólf þúsund konur. Þær hafa
síðan árið 1930 haft sínar eigin deildir og verið
geysilega dugmiklar, hreinlega gert kraftaverk í þágu
félagsins. Sumar félagsdeildirnar eru það smáar, að
ekki er grundvöllur fyrir starfrækslu sérstakrar björg-
unarsveitar, en deildirnar hafa margar nauðsynleg-
ustu björgunartæki. Sést það t. d. á því, að þótt ekkl
séu nema 78 björgunarsveitir er tækjabúnaður dreifð-
ur á yfir 160 staði á landinu.
Kvennadeildirnar eru þrjátíu og uppistaðan í þeim
hefur frá upphafi verið sjómannskonurnar. Þær starfa
í öllum stærstu sjávarplássum landsins og fjársöfnun
til handa björgunarsveitunum er aðalmarkmið kvenn-
anna.
Slysavarnafélagið fékk annars alveg sérstakan
hljómgrunn hjá þjóðinni um leið og það var stofnað.
Árið 1931 eignaðist t. d. nýstofnuð björgunarsveit
í Grindavík fluglínutæki og var fyrsta æfing með
tækin gerð í marsmánuði á túninu hjá einum bænd-
anna í nágrenninu. Aðeins viku síðar strandaði tog-
ari þar rétt fyrir utan og þrjátíu og átta mönnum
var þar bjargað á örskömmum tíma. Vitað var að
enginn þeirra manna hefði bjargast án tækjanna;
og nú hefur sveitin í Grindavík dregið á land 193
menn.
Félagið keypti strax við stofnun litla björgunar-
báta og árið 1938 björgunarskipið Sæbjörgu, sem
leigð var Landhelgisgæslunni og rekin í samráði við
hana.
Árið 1950 kom til Vestfjarða björgunarskipið Marfa
Júlía, sem byggt var af ríkinu, félaginu og deildum
félagsins á Vestfjörðum sameiginlega og notað var
jöfnum höndum til gæslustarfa og við björgunarstörf.
Síðan var Albert byggður með sömu samvinnu
og hlut Slysavarnarfélagsins lögðu norðlendingar
fram eftir margra ára söfnun.
'nn frá stofndegi þegar Jón forseti strandaði við
a nes. Þar fórust fimmtán menn, en tíu var bjarg-
frá stofndegi þegar Jón forseti strandaði við
Síðar var keypt með Landhelgisgæslunni þyrla árið
1965 og nú hafa aðrar tvær verið keyptar, sem báð-
ar eru líka að hálfb eign Slysavarnafélagsins.