Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1982, Síða 16

Æskan - 01.01.1982, Síða 16
Þaö var einu sinni lítill drengur, sem hét Andrés, og hann hafói fengið nýja húfu. Enginn átti eins fallega húfu, því að mamma hafði prjónað hana handa honum, og enginn getur búið til eins fallega hluti og mamma. Húfan var hárauð, nema toppurinn á henni. Hann var grænn, af því að rauða prjónagarnið var of lítið. En skúfurinn var blár. Bræður hans og systur horfðu á húfuna og urðu alveg gul af öfund. En það fékkst Andrés ekkert um. Hann stakk aðeins höndunum í vasana og gekk um, því að hann vildi lofa sem flestum að sjá, hve hann væri fínn. Fyrst mætti hann syni húsmanns- ins, sem varð að flytja mó í vagni og hottaði á hestinn. Hann hneigði sig svo djúpt, að hann brotnaði næstum í tvennt, en hann var sneyptur, þegar hann sá, að þetta var Andrés. „Heyrðu, ég hélt að þetta væri sjálfur greifasonurinn," sagði hann. Og svo bauð hann Andrési að setjast upp á vagninn. En sá, sem er með fína rauða húfu með bláum skúf, er of fínn til að sitja á móhlassi, svo að Andrés gekk reistur fram hjá. Á vegamótunum mætti hann Lár- usi, syni sútarans. Hann var svo stór, að hann notaði stórt skónúmer og átti vasahníf. Hann glápti á húfuna og gat ekki stillt sig um að hreyfa við skúfn- um. „Eigum við að skipta á húfum," sagði hann. „Ég gef hnífinn minn á milli." Hnífurinn var girnilegur, þó að blaðið væri slitið og sprunga í skaft- inu, og Andrés vissi, að allir sem hefðu vasahníf, væru taldir nærri því fullorðnir, en hann vildi samt ekki skipta á húfunni frá mömmu. „Nei, svo heimskur er ég ekki," svaraði hann. Hann kvaddi Lárus og fór. En Lárus glennti sig á eftir honum, því að hann hafði ekki fengið gott uppeldi, og svo var hann svo gramur yfir, að hafa ekki getað lokkað húfuna af Andrési. Sá næsti, sem Andrés mætti, var gömul kona og hún hneigði sig djúpt fyrir honum, og sagði „herra minn" við hann, og svo sagði hún, að hann væri svo fínn, að hann gæti farið á dansleik hjá hirðinni. „Já, hvers vegna ekki," sagði And- rés. „Fyrst ég er svona fínn, þá get ég skroppið og heilsað kónginum." Og svo fór hann til kóngsins. í hallargarðinum voru tveir hermenn með gljáandi hjálma og byssu á öxl- inni, og þegar Andrés kom gangandi, sneru þeir byssunum að honum. „Hvert ætlar þú?“ spurði annar þeirra. „Á dansleik hjá hirðinni," svaraði Andrés. „Nei, bíddu við,“ sagði hinn og setti fótinn fyrir hann. „Þangað kemst enginn, nema í einkennisbúningi." En í þessu kom prinsessan þjótandi yfir hallargarðinn. Hún var í hvítum silkikjól með gullbryddingum, og þegar hún sá Andrés og hermennina, hljóp hún til þeirra. „Heyrðu," sagði hún, „en hvað þú hefur fallega húfu. Hún getur vel komið í staðinn fyrir einkennisbún- ing." Svo tók hún í höndina á Andrési og leiddi hann upp breiðu marmara- tröppurnar, í gegnum skrautlega sali, þar sem allt hirðfólkið í silki- og flos- klæðum hneigði sig fyrir honum. Það hélt víst, að hann væri prins, þegar það sá fallegu húfuna hans. í stærsta salnum var dúkað borð með gulldiskum og gullbikurum í löngum röðum. Þar voru pýramídar af kökum á stórum silfurfötum. Prins- essan settist undir hásætishimin með rósvöndum og bað Andrés að setjast í gylltan armstól við hliðina á henni. „En þú getur ekki borðað með húfuna?" sagði hún og ætlaði að taka hana af honum. „Jú, það get ég vel," svaraði And- rés og hélt um húfuna sína, því að ef hún væri tekin af honum, mundi eng- inn trúa því, að hann væri prins, og það var ekki víst, að hann fengi hana aftur. „Nei, lofaðu mér að fá hana, þá skal ég gefa þér koss," sagði prinsessan. Auðvitað var prinsessan fögur og hann vildi gjarnan fá koss hjá henni, en húfuna, sem mamma hafði prjónað handa honum vildi hann ekki missa. Hann hristi aðeins höfuðið. „Jæja, þá," sagði prinsessan og fyllti vasa hans af kökum, hengdi fögru gullfestina sína um hálsinn á honum og kyssti hann. En hann færði sig aðeins lengra upp í stólinn og hélt húfunni fastri með báöum höndum. Svo opnuðust dyrnar og kóngurinn kom inn og í fylgd með honum var hópur hirðmanna í fínum klæðum og báru hatta með fjöðrum. Og kóngur- inn var í purpurarauðri kápu bryddri með loðskinni, og á hvíthærðu höfð- inu hafði hann stóra gullkórónu. Hann brosti, þegar hann sá Andrés sitja í gullstólnum. „En hvað þú átt fallega húfu," sagði hann. „Já, svaraði Andrés. „Hún erfalleg. Mamma hefur prjónað hana sjálf úr besta bandinu sínu, og allir vilja ná henni frá mér." 16

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.