Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1982, Blaðsíða 23

Æskan - 01.01.1982, Blaðsíða 23
Hann Jón varð fyrir því óhappi, þegar hann var nýlega á dansieik, að tapa glasinu sínu með svala- drykknum fræga Coca-Cola. Hvernig sem hann hefur nú leitað, hefur honum ekki tekist að finna glasið. Getið þið hjálpað honum að finna giasið? Það á að finnast á einhverri síðu í þessu blaði. Til- „Ja—á," sagði Per. Svo fóru þessar bækur í töskuna. Pá kom lítil bók. Það var einkunna- bókin. Per brá ónotalega. Hann mælti: „Hvaða erindi átt þú?" Bókin svaraði: „Ég vil vita hvort þú ætlar líka að ferðast með mér." Per sagði: „Pöh! ætlar þú að ferð- ast? Þitt ferðalag verður þá ekki ann- að en hringsól um skúffu kennarans. Farðu niður í töskuna og sofðu. Þú ert i raun og veru ekki bók." Bókin svaraði: „Það má til sanns vegar færa. En ég er spegill." Per sagði: „Þú ert montin. Spegill? Ég hefði gaman af því að vita hverjum kæmi til hugar að spegla sig í þér." Drengurinn var mjög forviða. Einkunnabókin mælti: „Við tölum saman í sumarleyfinu. Á blöðum mínum getur þá að líta spegilmynd af þér, eða frammistöðu þinni í skólanum. Ég er hátt sett bók. Faðir þinn og móðir rita nöfn sín á mig." Per sagði: „Þú ert opinská." „Ja— há, þaðerég," svaraði bókin. „En ég vil vera vinur þinn. Ég óska þess, að þú verðir hreykinn af mér. Farðu í ferðalag meö öllum bókunum, sem talað hafa við þig í nótt. Vertu iðinn og góður. Svo fer ég með þér heim í sumarleyfinu, með fagra spegilmynd af þér frá skólaárinu. Það verður gaman. Af mér getur þú hlotió mikinn heiður. Og mín verður minnst lengst allra bókanna." Að svo mæltu fór einkunnabókin niður í töskuna. o o a m greina verður í svari ykkar stað og blaðsíðu þar sem þið hafið fundið það. Svör þurfa að hafa borist fyrir 1. mars næstkomandi. Fimm bókaverðlaun verða veitt fyrir rétt svör. Utanáskrift er: ÆSKAN, Box 14, 121 Reykjavík (Verðlauna- þraut). Gamalt máltæki segir: Öll byrjun er erfið og það gildir einnig í skák- inni. Um skákbyrjanir hafa verið skrifaðar margar bækur og svo verðureflaustennþágert um mörg ókomin ár, því alltaf eru menn að finna upp ný varnarkerfi við hinum ýmsu byrjunum og þá leiðir af sjálfu sér að einnig verður að finna upp nýjar byrjanir þegar hinar gömlu eru hættar að duga. Eins og að líkum lætur er það mjög þýð- ingarmikið að geta byrjað skák sína vel, kunna að staðsetja menn sína á sem bestum stöðum, byggja vel upp eins og kallað er, búa sig sem best undir væntanleg átök. Þegar t. d. kóngspeði er leikið fram um tvo reiti, e2—e4, þá opnar það leið fyrir bæði biskup og drottningu, og segjum svo að svartur svari alveg eins, e7—e5. Hvert er þá besta svarið hjá hvít- um? Rf3 er best, því þá hótar hv. að drepa peðió á e5 og það er mjög mikilsvert að geta hótað einhverju á raunhæfan hátt. Ekki borgar það sig t. d. að leika Ddl—h5 og hóta þannig peðinu, því þá valdar sv. peðið fyrst með Rb8—c6 og leikur síðan hinum riddaranum, Rg8— f6, hótar drottningunni og hún verður að hörfa og er best geymd heima hjá sér. Drottningarflan í byrjun skákar borgar sig sjaldan. Nú skulum við sjá hve illa getur farið, þegar ekki eru leiknir bestu svarleikirnir: 1. e2—e4 e7—e5 2. Rg1 — f3 f6?? (Svartur valdar peð sitt á rangan hátt. Hann á að valda það með riddaranum, Rb8—c6) 3. Rf3xe5! (Hvítur sér strax veiluna og ræðst þegar til atlögu, fórnar manni fyrir árásarmöguleika). 3. — f6xe5 4. Dd1 — h5+ Ke8—e7 (Ef 4. —g7 —g6, þá 5. Dh5xe5+ og síðan DxHh8). 5. Dh5xe5+ Ke7—f7 6. Bf1 — c4+ Kf7—g6 7. De5—f5 + Kg6—h6 8. d2—d4+ g7—g5 9. h2—h4! Kh6—g7 10. Df5—f7 + Kg 7— h6 11. h4xg5 + + mát. 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.