Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1988, Side 7

Æskan - 01.01.1988, Side 7
c (/) O) <D X c <D þá var hann í ól vegna þeirra sem ekkert er um hunda gefxð. t>að átti vel við hann að vera mikið úti og greinilegt að það fannst honum skemmtilegt. Síðan byrjaði skólinn. Mér fann hræði- lega leiðinlegt að skilja hann aleinan eftir á morgnana en varð að sætta mig við það. Stundum fórum við með hann til ömmu og afa en þau átti heima rétt hjá skólan- um. Það var stundum erfitt að skilja hann eftir því að hann langaði svo mikið úl að fara með mér en þegar ég kom heim flaðraði hann upp um mig og var allur í uppnámi af gleði. Hann var mér góður vinur og reyndi aht fyrir mig að gera ef mér leið illa. Það var alltaf gott að létta á hjarta sínu og segja honum hluti sem ég þorði ekki að segja öðrum. Tobías elskaði mig mest af öllum í fjölskvldunni og elskaði ég hann alveg jafnmikið. Augun hans voru svo blíð og gáfuleg. Ég gat alltaf séð hvernig honum leið með þvf að horfa í þessi fal- legu brúnu augu. Tvö ár liðu. Allt gekk vel. En þá ÆSKAN== == dundu ósköpin yfir. Ég var að koma úr skólanum. Eins og alltaf hlakkaði ég til að hitta Tobías og flýtti mér því. En þegar ég var kominn nokkuð áleiðs sé ég að mikill mannfjöldi er saman kominn fyirr framan húsið okkar. Mér brá og ég tók á rás. Nágrann- arnir voru þar allir í hnapp. „Hvað hefur eiginlega gerst?“ spurði ég sjálfan mig. Mér leið illa. Rétt hjá var stór jeppi. Mamma kom á móti mér með útbreiddan faðminn og grét. Ég losaði mig úr örmum hennar og tróð mér í gegnum mannfjöldann. Hjartað í mér hætti að slá af geðshræringu. „Tobías. . . hann er dáinn,“ sagði mamma. Jeppinn hafði ekið á hann og drepið hann. „Tobías," öskraði ég og brast í grát. Fæturnir gáfu undan og ég féll á kné fyr- ir framan hann. Ég lyfti honum upp í kjöltu mér og vafði örmum mínum utan um hann. Mig langaði svo til að öskra en náði ekki andanum til þess. Ég gróf and- litið í feldinn hans. Hversu oft hafði ég ekki gert það og fundið hlýjuna frá lík- ama hans. Nú var hann ekki lengur heitur, bara lífvana og kaldur, dáinn! Ég heyrði skrafið í kerlingunum fyrir aftan mig. „Guð, hann hefur keyrt á hann!“ Ég grét og grét, grét í feldinn hans og gat ekkert gert til að hjálpa honum. Ég veit ekki hversu lengi ég kraup þarna og hélt á honum en pabbi tók mig í burtu frá honum. Ég sá augu hans stara á mig eins og hann gréti og væri að biðja mig að taka sig með. Ég fór ekki í skólann næstu vikuna. Ég lá bara inni í rúmi og grét og hugsaði um allt sem við Tobías höfðum gert sam- an. Tobías var jarðaður úti á túni þar sem við höfðum svo oft leikið okkur. Eg bjó til stóran kross og tálgaði í hann: HÉR HVÍLIR TOBÍAS, BESTI VINUR SEM ÉG HEF ÁTT. En ég lifði áfram og huggaði mig við það að einhvern u'mann myndi ég hitta hann á ný í nýju og betra lífi. —---------------- m?

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.