Æskan - 01.01.1988, Side 30
'ÆskU'
pósturma ]
-Fréttabréf úr Qarði-
Kæri Æskupóstur!
Okkur langaði til að senda stuttan
fréttapistil úr Garði. Kauptúnið okk-
ar er nyrsta þéttbýlið á Reykjanes-
skaga eða nánar tiltekið á Garðs-
skaga. íbúar eru 1067 að tölu. Grunn-
skólinn okkar heitir Gerðaskóli.
Nemendur eru 201 og félagslífið mjög
gott. Skólastjórinn heitir Eiríkur
Hermannsson. Hér er sparisjóður,
pósthús, bensínstöð, matvörubúð,
raftækjaverslun, skrifstofa og félags-
heimili, svo að eitthvað sé nefnt. Að-
alatvinnuvegur Garðbúa er sjávarút-
vegur og fullvinnsla sjávarafurða.
Knattspyrnufélagið okkar heitir Víðir
og lék í fyrstu deild í Islandsmótinu í
sumar.
Með þökk fyrir birtinguna.
Margrét Þórhalhdóttir og
Birgitta Unnarsdóttir.
Kveðjur-
Hæ, hæ, kæra Æska.
Mig langar til að senda krökkunum
í 6. bekk í Hveragerði æðislegar stuð-
kveðjur. Svo fá þeir sem þekkja mig
afganginn.
Bestu kveðjur.
Hrafnhildur.
Kæra Æska.
Ég ætla að senda kveðju til allra
pennavinkvenna minna en þó sér-
staklega til Mónu Sölku og Steinunn-
ar.
Petrina Þórarinsdóttir,
Tjamarholti 7, Raufarhöfn.
Hæ, hæ!
Ég vil senda öllum í 5. bekk
Grunnskóla Hvammstanga pottþéttar
stuðkveðjur og einnig öllum stelpun-
um í 6. bekk frábærar kveðjur.
Aðalbjörg í 5. bekk.
------Veggmyndir-------------
Kæra Æska.
Með þessu bréfi vil ég fyrst og
fremst þakka fyrir æðislegt blað. Mér
finnst það góð hugmynd að láta
límmiða fylgja því. Nú langar mig til
þess að biðja ykkur um að birta vegg-
myndir af Madonnu og Michael Jack-
son. Hvernig væri það? Einnig langar
mig til að spyrja hverjir ráða því
hvaða myndir eru á límmiðunum.
Kærar þakkir fyrir frábært blað.
Linda A.
Svar: Þakka þér fyrir bréfið, Linda.
Við getum glatt þig með því að við
höfum þegar birt veggmyndir af
Madonnu og Michael Jackson. Það
var fyrir 2-3 árum. Þú getur hringt
og pantað blöðin ef þú vilt nálgast
þcer. Varðandi seinni spumingu
þína þá erum það við, ritstjórar
blaðsins, sem veljum endanlega
myndir á límmiðana. Við tökum að
sjálfsögðu mið af því hvaða ein-
staklingar eða hljómsveitir eru í
miklu dálceti hjá lesendum Æskunn-
ar. Allar tillögur um myndir á
ncestu límmiða eru vel þegnar.
— Mætingakeppni í—
Laugalandsskóla
Hæ, kæra Æska.
Við erum hérna þrjár úr Lauga-
landsskóla í Holtum og ætlum að
segja ykkur lítillega frá skólanum
okkar. Við förum í skólann með
skólabílnum á hverjum degi. Kennsl-
an hefst kl. 9. Síðan er hringt í mat
kl. 12 og aftur í tíma korter fyrir eitt.
í síðustu frímínútunum erum við
rekin út til að viðra okkur. Milli
þriggja efstu bekkjanna er mætinga-
keppni og er hún einstaklingsbundin.
Þeir sem fá fæst eða engin skróp fara
í dagsferð að lokinni hverri önn. Það
eru um það bil 120 nemendur í skól-
anum á aldrinum frá 6 ára til 15 ára.
Með fyrirfram þökk fyrir birting-
una.
H. H. og S. Laugalandsskóla.
— Pennavinaklúbbur -
Kæra Æska!
Ég er hérna ein úr borginni og mig
langar til að biðja ykkur að birta fyrir
mig heimilisfang hjá pennavina-
klúbbi í Suður-Kóreu. Utanáskriftin
er:
Clover Overseas Pen Pals Society,
P.O. Box 3315,
Seoul 100,
S-Korea.
Munið að láta alþjóðlegt svarfrí-
merki fylgja með.
Ég.
— Bréf frá Jóni Hauki —
Kæri Æskupóstur.
Mig langar til að segja þér lítillega
frá sjálfum mér. Ég geng í Melaskóla
og einnig í Tónlistarskóla Sigursveins
D. Kristinssonar. Mér gengur vel í
náminu.
Að síðustu vil ég þakka fyrir gott
blað.
Jón Haukur 10 ára,
Tómasarhaga 20, 107 Reykjavík.
---------Brandarar---------------
Eitt sinn gekk Hafnfirðingur inn á
bar með útidyrnar undir hendinni.
Þá segir barþjónninn:
„Hvers vegna í ósköpunum ertu að
burðast með þessa útidyrahurð undir
hendinni?“
Þá svarar Hafnfirðingurinn:
„Það var þannig að í gærkvöldi
týndi ég lyklinum að henni og svona
til öryggis, ef einhver skyldi finna
hann og ætla að brjótast inn í húsið,
tók ég hurðina með mér.“
„En hvað ef þú týndir hurðinni?"
spyr barþjónninn.
„Nú það væri allt í lagi. Ég skildi
eftir opinn glugga.“
Frá áskrifanda.
Hafið þið heyrt um Kínverjann sem
var svo gráðugur að hann borðaði
með prjónavél?
DSC.
Pabbi: Heldur þú að sonur okkar hafi
gáfurnar frá mér?
Mamma: Það hlýtur bara að vera. Ég
hef mínar enn þá.
Sendandi: Hjörtur Waltersson 11
ára,
Melbce 10, Reykjavík.
30
ÆSKAN