Æskan - 01.01.1988, Blaðsíða 43
bik Arizona frá því um 300 f. Kr.
til 1450 e.Kr. Alllengi hafa menn
vitað um leifar frá fyrri tímum á
þessum slóðum og fyrir tæpum
hundrað árum var staðurinn
rannsakaður fræðilega . Við svo-
nefnda Saltá mátti greina leifar af
skurðum um þveran og endilang-
an dalinn. Skurðir af stærra tagi
voru samtals um 500 km á lengd
og minni skurðir um það bil 1600
kílómetrar. („Hringvegurinn“ á
íslandi er 1450 km). Nú er mest
af verksummerkjum þessara heill-
andi mannvirkja horfið. Aðeins
10 km hafa staðist uppbygging-
una umhverfis Fönix, höfuðborg
Arizona, og jarðrask á stórbúum
nútímans.
Stjómleysi:
vatnið þornar
Skurðir þeir sem fornleifafræð-
ingar gátu rannsakað sl. áratug
voru mældir og gerð hafa verið
kort yfir áveitukerfið. Þverskurð-
ur skurðanna er ýmist U-laga eða
V-laga. Skurðirnir eru misbreiðir,
frá því um metri og allt að 10
metrum. Einnig eru þeir mis-
djúpir; sumir hafa aðeins verið
um hálfur metri á dýpt en þeir
dýpstu þrír og hálfur metri.
Kerfið var því mismunandi
þéttriðið net ólíkra skurða. En
margsinnis hefur vatnsveitan
skemmst af ýmsum ástæðum og
verið lögð að nýju, stundum með
öðru sniði. Við sjáum fyrir okkur
iðnar hendur Hohokam-mann-
anna við mokstur og hleðslu. Við
ímyndum okkur skeggræður um
skipulagið. Það er stritað og
glaðst að loknu verki.
Mikil flóð verða stundum í
landinu. Þau hrífa allt laust með
sér, rífa upp leir og mold og fylla
skurðina. Það er hafíst handa á
ný. Kynslóðir koma og fara; for-
feðurnir gleymast flestir en sögur
um vatn og veitur eru sagðar
mann fram af manni í þúsund ár
- þar til nú að allt er gleymt.
Talið er að áveitumenning þesi
hafi liðið undir lok vegna þess að
slakað var á heildarstjórn á
vatnsmiðlun í héraðinu. Vatns-
dreifmgin varð ójöfn og gróður
tók að skrælna. Landið lagðist í
eyði.
ÆSKANi
143