Æskan - 01.01.1988, Síða 45
Vatn er nær ókeypis!
Það er dýrt að drekka mikið af gos-
drykkjum. Ef þú innbyrðir þína daglegu
vökvaþörf, sem er um einn lítri, í formi
gosdrykkja þá kostar það þig rúmar 30
þúsund krónur á ári að svala þorstanum.
Hugsaðu þér hvað þú gætir gert fyrir
alla þá peninga.
Vatn er traustur
náttúrudrykkur
Margir drykkir, sem fást í búðum, hafa í
sér rotvarnarefni og ýmis gervi- og litar-
efni sem geta skaðað líkamann og því er
rétt að forðast slík efni.
Slæmar matarvenjur stuðla að tann-
skemmdum. Sérstaklega á það við ef
sykurríkrar fæðu er neytt milli mála. í
mörgum drykkjum, svo sem gosdrykkj-
um og ýmsum ávaxtadrykkjum, er sykur
og þeir eru súrir. Slíkir drykkir geta
skemmt glerung tannanna, jafnvel þótt
þeir séu sykurskertir.
Vatn er traustur náttúrudrykkur því
að það endurnýjast reglulega í náttúr-
unni.
Vatn er alls staðar!
Öll fáum við vatnið rennandi til okkar,
beint heim í hús í gegnum vatnsleiðslur.
í skólanum, íþróttahúsinu, skátaheimil-
inu og heima getur þú alltaf svalað þorst-
anum með vatni.
Benjamín Árnason er framkvæmdastjóri Bandalags
íslenskra skáta. Hann hefur lengi starfað sem skáti
og á vegum þeirra.
ir ð
J
Jl’l
Þú færð ekki betri svaladrykk en hreint og tært vatn.
ÆSKAN
45