Æskan - 01.02.1992, Page 5
og í margs konar keppni heima. Svo
hef ég keppt á ýmsum alþjóðlegum
mótum sem mér hefur verið boðið á
hér og þar um heiminn."
- Hvað hefurðu unnið til
margra verðiaunapeninga?
„Ja, þarna komstu með góða
spurningu!! Ég á eitthvað rúmlega
þrjú hundruð gullþeninga heima.“
- Hvernig varð þér við þegar
þú varst kosin íþróttamaður
ársins?
„Það var stórkostlegt - bara ynd-
islegt. Ég frétti af því í beinni útsend-
ingu að ég hefði verið valin. Ég var
þá stödd heima í jólafríi en fór utan
aftur daginn eftir.“
- Keppirðu ekki á Ólympíu-
leikunum í sumar?
„Jú. Ég er að æfa mig af krafti
undir þá; æfi sund tvisvar á dag og
lyfti einu sinni á dag svo að æfing-
arnar eru svona sex klukkustundir
daglega."
- Hver er munurinn á æfingum
fyrir mót og venjulegum æf-
ingum?
„Fyrir mót er lögð meiri áhersla
á snerpu og spretti og öll tækniat-
riði eru æfð vandlega."
- Fylgistu með öðrum
íþróttagreinum?
„Já, ég reyni það. Hér fylgist ég
mest með körfubolta en heima með
knattspyrnu á sumrin og handbolta
á veturna. Ég hef alltaf fylgst mikið
með fótbolta heima."
SKÓLI OG ÆFINGAR í 13
KLUKKUSTUNDIR Á DAG!
tlarðu að halda á-
fram að æfa sund í
framtíðinni?
„Nei, ekki til að keppa
og ég mun ekki æfa jafnmikið og ég
geri núna. Ég brautskráist úr skól-
anum í vor og byrja að vinna heima
á íslandi næsta sumar. Ég verð
sundþjálfari á Akranesi."
- Geturðu lýst
venjulegum degi hjá þér?
„Ég byrja á æfingum svona
fimmtán mínútur yfir fimm á morgn-
ana og klukkan átta fer ég í skólann.
Um tvöleytið er fyrirlestrunum lok-
ið og þá fer ég beint á æfingu. Yfir-
leitt er ég komin heim um sexleyt-
ið.“
- Er þessi háskólabær eins
og maður sér slfka í
kvikmyndum?
„Já, ég hugsa að kvikmyndirnar
rrir tæpum fimm árum ...)
gefi sanna mynd af þessum bæ!“
- Eru margir nemendur f
skólanum?
„Já, ég held að við séum um tutt-
ugu þúsund. Bærinn, sem ég dvelst
í, er reistur af háskólanum og það
er eiginlega ekkert annað hér en há-
skólinn og háskólanemar. Þetta er
ágætis bær-eins og Alabama raun-
ar er.“
- Hefurðu ferðast eitthvað
um Bandaríkin?
„Já, ég hef ferðast mjög mikið.
Ég heffariðtil Louisiana, New York,
um allt í Flórída, Texas, til Nýju
Mexíkó - og enn víðar. En ég sé lít-
ið annað en sundlaugar á þessum
stöðum!"
- Þú hittir Albert prins þegar
þú kepptir f Mónakó fyrir
mörgum árum...
„Við fórum saman út að borða.
Það var allt í lagi með hann. Hann
var ósköp venjulegur, ungur maður
og eðlilegur, ekkert eins og maður
heldurað prinsar séu.“
- En hefurðu hitt eða séð
eitthvað af frægu fólki í
Bandaríkjunum?
„Aðallega þekkt íþróttafólk - það
hitti ég oft. Svo hef ég séð leikara
hér og þar - en maður var ekkert að
stökkva á svo frægt fólk! Ég hef upþ-
götvað að þetta eru frægir leikarar
þegar ég sé margt fólk þyrpast að
einni manneskju! Þá hlýtur það að
vera einhverfrægur."
- Langar þig
ekki stundum heim?
„Jú, ég sakna fjölskyldunnar og
finnst leiðinlegt að geta ekki séð
hana reglulega."
- Hlakkarðu til að koma
heim?
„Já, en ég veit að ég á samt eftir
að sakna margs sem hér er. Sem
betur fer á ég góðar minningar héð-
an en ekki slæmar.“
- Hver er helsti kosturinn við
að vera f Bandaríkjunum?
„Hann er auðvitað fyrst og fremst
sá að það er miklu ódýrara að dvelj-
ast hér en heima. Það er auðvelt að
gera ýmislegt hér, sem maður myndi
ekki gera heima, og lífið er rólegra
en þar. Fólk er ekki eins „stressað"
hér og heima. Mér finnst fólkið
heima of of streitt - hér virðist það
njóta lífsins betur.“
Æ S K A N S